Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.07.1991, Page 44
» FRÉTTIR «
Frá landlæknisembættinu:
Bólusetning gegn
lungnabólgubakteríum
Landlæknir hefur ákveðið í sam-
ráði við Farsóttanefnd ríkisins að
ráðleggja bólusetningu gegn lungna-
bólgubakteríum.
Inngangur:
Lungnabólgubakteríur (pneumo-
kokkar) eru algengur og oft alvar-
legur sjúkdómsvaldur meðal manna.
Þær valda einkum lungnabólgu,
blóðsýkingu og heilahimnubólgu
með hárri dánartíðni hjá þeim sem
eru eldri en 65 ára og miðeyrnabólgu
hjá börnum innan 3 ára.
Ef tekið er mið af rannsóknum á
lungnabólgum á sjúkrahúsum í
Reykjavík á árunum 1983-1984 (1,2)
má búast við allt að 500 lungnabólgu-
tilfellum á landinu öllu sem leiða til
sjúkrahúsvistar eða koma fyrir á
sjúkrahúsum hérlendis. Af þeim má
gera ráð fyrir að minnsta kosti
þriðjungur stafi af lungnabólgubakt-
eríum. Nýgengi blóðsýkinga af
völdum þessarar bakteríu í öllum
aldurshópum er um 12/100.000 og
heilahimnubólgu um 1/100.000 (3).
Bóluefni:
Til er á markaði hérlendis bóluefni
gegn lungnabólgubakteríum. Nefn-
ist það Imovax Pneumo og er sam-
sett úr 23 mismunandi mótefna-
vökum fjölsykrunga úr hjúpi bakt-
eríanna. Samanburður á samsetn-
ingu mótefnavaka í bóluefninu og
sjúkdómsvaldandi lungnabólgu-
baktería á íslandi benda til þess að
bóluefnið eigi vel við hérlendis (3).
Nýverið hefur bóluefni þessu verið
lýst í Læknablaðinu (4) með kostum
þess og göllum.
Virkni bólusetningar:
Flest bendir til þess að bóluefnið
sé gagnlegt (5). Virkni (efficacy)
bóluefnisins er talin um 70% meðal
einstaklinga sem eru yfir 50-55 ára
aldri (6,7). Virkni bóluefnisins er
lægri eða um 60% meðal þeirra sem
eru í áhættuhópum fyrir lungna-
bólgu svo sem áfengissjúklingum,
sykursýkissjúklingum og sjúklingum
með lungna-, hjarta- og nýrnasjúk-
dóma (5). Rannsóknir benda til þess
að bólusetning gegn lungnabólgu-
bakteríum sé fjárhagslega arðbær
(7,8). Bóluefnið gagnast ekki
börnum undir 2ja ára aldri vegna
lélegrar mótefnasvörunar.
Aukaverkanir:
Hiti og vægar staðbundnar auka-
verkanir með roða, eymslum og
hersli á stungustað eru algengar en
þær líða að jafnaði hjá innan tveggja
sólarhringa. Alvarlegar aukaverk-
anir svo sem liðverkir, vöðvaverkir
og anafylaktískar svaranir eru sjald-
gæfar. Endurbólusetning er óráðleg
innan 5 ára frá frumbólusetningu
þar sem aukaverkanir eru meiri ef
styttri tími líður frá fyrstu bólusetn-
ingu.
Framkvœmd bólusetningar:
Ákveðið er að bólusetning hefjist
haustið 1991. Mælst er til þess að
eftirtöldum verði boðin bólusetning:
1. Öllum sem náð hafa 60 ára aldri.
2. Öllum sem fengið hafa lungna-
bólgu og eru í sérstakri áhættu á
að fá sjúkdóma af völdum lungna-
bólgubaktería vegna langvinnra
sjúkdóma (þ.e. hjarta-, æða- og
lungnasjúkdóma, sykursýki,
áfengissýki, skorpulifur og mænu-
vökvaleka).
3. HIV smituðum með eða án ein-
kenna.
4. Öllummeðskertónæmiskerfisvo
sem vegna illkynja sjúkdóma,
ónæmisbælandi meðferðar, miltis-
leysis og nýrnabilunar.
Tímasetning bólusetningar:
1. Mikilvœgt er að bólusetning gegn
lungnabólgubakteríu verði skráð
og sjúklingi sé gert Ijóst að slík
bólusetning hafi verið fram-
kvœmd þar sem óráðlegt er talið
að endurtaka bólusetninguna
innan 5 árafráfrumbólusetningu.
2. Einstaklingum í áhættuhópum
verði boðin bólusetning á 5 ára
fresti. Öðrum verði boðin bólu-
setning á 10 ára fresti.
3. Ákjósanlegt er að t.d. bjóða fólki
bólusetningu um leið og það
kemur til inflúensubólusetningar.
Frábending:
Varðar einstaklinga er hafa fengið
bóluefnið áður og fengið ofnæmi
fyrir því.
Bólusetningu er unnt að fá á:
1) heilsugæslustöð, 2) sjúkrahúsum
og3) öldrunarheimilum.
HEIMILDIR:
1) Guðbjörnsson B. et al. Læknablaðið
1987;73:359-63.
2) Haraldsson Á. et al. Læknablaðið
1989; 57-61.
3) Jónsdóttir K. Óbirtar niðurstöður.
4) Bárðardóttir E. Jónsson S. Lækna-
blaðið 1988;74:251-3.
5) CDC. MMWR; 1989: 64-76.
6) Sims R.V. et al. Ann Intern Med
1988; 108: 653-7.
7) Gable C.B. et al. JAMA 1990; 264:
2910-15.
8) Sisk J.E., Riegelman R.K. Ann Int-
ern MED 1986; 104: 79-86.
Landlœknir
Styrkur
til könnunar
Framkvæmdastjórn HFI sam-
þykkti á fundi sínum þann 4.
apríl sl. að veita Ragnheiði Har-
aldsdóttur lektor styrk að upp-
hæð kr. 150.000. Styrkurinn er
veittur til könnunar á högum og
viðhorfum hjúkrunarfræðinga til
starfa og náms. Þessi könnun er
gerð í tengslum við undirbúning
og skipulagningu á viðbótarnámi
fyrir hjúkrunarfræðinga.
Heilbrigði fyrir heiminn
- samræmd hjúkrun
ICN hefur látið gera skyggnur sem
nota má til að útskýra uppruna.
40 HJÚKRUN 2Ai — 67. árgangur