Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1992, Blaðsíða 43
» FRÉTTIR «
Bætur fyrir líkamstjón
A síöustu vordögum gaf Lögfræö-
ingaþjónustan hf. út ritiö Bœtur fyrir
Líkamstjón sem einkum er ætlað
þeim sem veröa fyrir líkamstjóni
vegna slysa, t.d. í umferðinni eða við
vinnu.
í ritinu er leitast við að svara
ýmsum spurningum sem vakna
þegar líkams- og heilsutjón verður.
★
Frá Landlæknisembættinu
Heimilishjálp og heima-
hjúkrun þarf að efla
Margir tala um að kostnaður við
heilbrigðisþjónustu sé orðinn of hár.
Menn benda því á ýmsar leiðir til
úrbóta, m.a. aukna hagræðingu og
jafnvel aukningu á eigin greiðslum
fólks fyrir meðferð og aðgerðir. Oft
gleymist að stærsti hluti kostnaðar er
vegna þeirra eldri sem sjúkir eru og
þess vegna ekki auðvelt að draga úr
kostnaði.
En hvað er hægt að gera til
úrbóta? Er hægt að beita meiri hag-
kvæmni án þess að auka heildarút-
gjöld? Margt bendir til þess að svo
sé. T.d. má nefna hagræðingu í lyfja-
kostnaði sem nú er unnið að. Rekstur
fimmdaga-deilda, flutning minni-
háttar aðgerða út fyrir sjúkrahúsin,
væntanlegan samruna tveggja stóru
sjúkrahúsanna í Reykjavík o.fl.
Lítið hefur verið aðhafst varðandi
hagræðingu í öldrunarþjónustu en
verulegur kostnaður fer til þeirrar
þjónustu og sífellt eykst stofnana-
rýmið. Stofnanarými er meira fyrir
aldraða hér á landi en í nágranna-
löndum en við leysum frekar vanda-
mál gamals fólks með stofnanavistun
en nágrannaþjóðirnar. Sjá töflu I.
Taflal
Hlutfallslegur fjöldi 65 ára og eldri
á elli- og hjúkrunardeildum
á Norðurlöndunum 1986-1987
Island Danmörk Finnland Noregur Sviþjód
9,7 5,4 6,3 6,8 3,8
11 1984
Social tryghed i Nordiske lande,>
K0benhavn 1989
Nágrannaþjóðir sinna þó ekki
síður eldra fólki en við, en gefa því
mun meiri möguleika á að dvelja
heima, sbr. töflu II.
Tafla II
Fjöldi einstaklinga er fá heimilishjálp
á Norðurlöndum
Fjöldi Á 1000 íbúa
Land einstaklinga 65 áraogeldri
fsland 3.400 127,0
Danmörk1' 191.000 239,0
Finnland 432.000 653,0
Noregur 128.000 185,0
Svíþjóð 309.000 204,0
Health Stat Nordic Counlríes 1966-921
21 1988
Á íslandi fá færri heimilishjálp
meðal 65 ára og eldri en í nágranna-
löndunum.
Um fjölda þeirra er fá heima-
hjúkrun má lesa um í töflu III.
Tafla III
Heimahjúkrun á Norðurlöndum
fyrir 65 ára og eldri árið 1989
Fjöldi Á 1000 íbúa
Land einstaklinga 65 ára og eldri
ísland um 2.400 90,0
Danmörk - 222.000 277,0
Finnland - 75.000 113,0
Noregur - 114.000 165,0
Svíþjóð - 116.000 76,0
Health Stat Nordic Countries 1966-92*
Að öllu jöfnu fá til muna færri
HJÚKRUN 'M - 68. árgangur 39