Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 20
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Hvernig er frϚslan veitt?
Af þeim sem svöruðu (58) fengu 38 sjúklingar
(66%) einstaklinghæfða fræðslu og 27 sjúklingar
(47%) fengu hópfræðslu. Hægt var að velja fleiri
en eitt svar. í könnuninni töldu 52 (98%) sjúkl-
ingar fræðsluna vera á einföldu og skýru máli.
Hvernig vilja sjúklingamir aö fræöslan sé
veitt?
Niðurstöður sýna að 42 sjúklingar (72%)
vildu einstaklingshæfða fræðslu, 35 sjúklingar
(60%) vildu hópfræðslu, 32 sjúklingar (55%)
vildu fræðslu á prentuðu máli og 30 (52%)
vildu fræðsluefni á myndbandi. Hægt var að
velja fleiri en eitt svar.
Hverjir veita frϚsluna?
Eins og sést á mynd 2 töldu 35 sjúklingar
hjúkrunarfræðinga hafa veitt töluverða eða
mikla fræðslu en 23 töldu hjúkrunarfræðinga
hafa veitt litla eða enga fræðslu. 29 sjúklingar
töldu lækna hafa veitt töluverða eða mikla
fræðslu og sami fjöldi taldi þá hafa veitt litla
eða enga fræðslu.
Ef tekið er meðaltal þeirrar fræðslu sem hver
starfsstétt veitir (skv. tölugildum á Likert -
kvarða) kemur í ljós að hjúkrunarfræðingar
fræða sjúklingana mest (1,69), læknar og sjúkra-
þjálfarar fylgja fast á eftir (1,55 og 1,26).
Hver er árangur frœöslunnar?
Fram kemur að 90% einstaklinganna svör-
uðu þeirri spurningu játandi að þeir breyttu um
lífsstíl í kjölfar fræðslunnar. Hins vegar gerðu
10% einstaklinganna það ekki.
Eins og mynd 3 sýnir virðist fræðslan bera
árangur. Af þeim 29 einstaklingum, sem telja
reykingar vera einn af sínum áhættuþáttum,
segjast 23 hafa hætt að reykja eða 79%. Af þeim
17 einstaklingum, sem telja offitu eða of hátt
kólesteról vera einn af sínum áhættuþáttum,
segjast 16 hafa breytt um mataræði eða 94%.
Niðurstöður könnunarinnar sýna að 50%
sjúklinganna töldu reykingar vera sinn áhættu-
þátt, 35% andlegt álag eða streitu, 29% of hátt
kólesteról eðaoffitu, 29% fjölskyldusögu, 19%
hreyfíngarleysi, 10% vinnuálag eða líkamlegt
álag, 10% of háan blóðþrýsting og 4% sykur-
sýki.
í könnuninni reyndust 59% svarenda vera á
aldrinum 56-67 ára. Meirihluti þeirra eru karl-
menn eða 76%. í ljós kom að ekki er marktækur
munur (p>0,05) á fræðslu veittri körlum og
konum. Aldur og menntun hafði ekki áhrif
Fjöldi
sjúklinga
H úkrunarfræðingar Læknar
Sjúkraþjálfarar Samsjúklingar Sjúkraliðar Næringarfræðingar
Starfsstéttir
MYND 2. Frœösla sem mismunandi starfsstéttir veittu. (Hcegt var að velja fleiri en eitt svar).