Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 36
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
1988. Sœmd hinni íslensku fálkaorðu af Vigdísi,
forseta, ásamt Þórarni Guðnasyni, lcekni.
Hjúkrunarforstjóri á Akureyri ásamt Guðfinnu
Thorlacius hjúkrunarkennara.
Ég gekk í Menntaskólann á Akureyri, lauk þaðan gagnfræðaprófi vorið 1941.
í skólanum var þriggja vetra gagnfræðanám og þriggja vetra menntadeild sem lauk
með stúdentsprófi. Það var ekki mikið rætt heima fyrir að ég héldi áfram námi og
lyki stúdentsprófi. Því hefl ég alltaf séð eftir, og eftir að ég kom til Reykjavíkur
fór ég í öldungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð og lauk þaðan stúdentsprófi.
Það má nefna ýmislegt sem sýnir tíöarandann á þessum árum og aðstöðu fólks til
að mennta börn sín. Þetta voru stríðstímar. Mikil kreppa hafði ríkt hér sem og
erlendis. íslendingar voru að byrja að rétta úr kútnum, farnir að sjá peninga. Við
vorum sex systkinin, pabbi var kennari og hafði lítil efni á að kosta allan sinn
barnahóp til langskólanáms. Þá þótti það eðlilegra að bræður mínir héldu áfram
námi en ég. Þrír þeirra luku háskólanámi og tveir iðnnámi. Ég var miklu betri í
raungreinum, stærðfræði og efnafræði, en málum. Ég hefði því farið í stærðfræði-
deild ef ég hefði haldið áfram í skólanum. Það þótti ekki beinlínis kvenlegt eða
skynsamlegt fyrir stúlkur í þá daga. Örfáar stúlkur höfðu farið í stærðfræðideild. í
mínum bekk héldu aðeins þrjár stúlkur áfram námi, allar í máladeild. Nokkrum
árum síðar fjölgaði verulega stúlkum í skólanum og nú er svo komið að fleiri
stúlkur en piltar halda áfram menntaskólanámi. Tíðarandinn hefur gjörbreyst hvað
skólagöngu og starfsval kvenna snertir enda langt um liðið og ekki vanþörf á
breytingum.
Ehthvorn veglnn U leUln I hjúkrun og þaöan belnt / stöðu hjúkrunarforstjóra Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyrl. Hvernlg gerðlst það?
Ekki veit ég hvort það var tilviljun eða forlög. Ég er ekki ein þeirra sem höfðu
brennandi áhuga á hjúkrun. Sem unglingi datt mér það starf aldrei í hug og nálægt
spítala eða sjúklingum hafði ég varla komið. Ég fór í íþróttakennaraskóla og
kenndi síðan iþróttir í fjögur ár. Á Siglufirði í eitt ár og síðan í Reykjavík. Á eftir
v