Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 7
Tímarit hjúkrunarfræðinga /. tbl. 1. árg. 1993
Lovísa Baldursdóttir og Sólveig Sverrisdóttir
Loftskipti utan líkama
Hjúkrun sjúklings sem þarfnast TECLA
(total extracorporeal lung assistance)
Markmið TECLA (total extracorporeal lung assistance)
meðferðar er að ná fram loftskiptum utan líkama þegar
nauðsynlegt er að hvíla sjúk lungu sjúklings. Skýrt er frá
aðdraganda og framkvcemd meðferðar einstaklings sem misst
hafði annað lungað í slysi. Sjúklingur fékk ARDS (adult
respiratory distress syndrome) og reyndist ekki mögulegt að
viðhalda viðunandi loftskiptum með hefðbundnum aðferðum.
Fjallað er um viðfangsefni sem sértœk eru fyrir þessa
meðferð, m.a. skert loftskipti, breytingu á nœringarþörf,
framkvœmd og viðhald kælingar og meðvitundarleysis, áhrif
hátæknimeðferðar og líðan aðstandenda.
Lovísa Baldursdóttir
lauk B.S. prófi t hjúkr-
unarfrceöi frá Háskóla
fslands árið 1979 og M.S.
prófi í hjúkrun gjörgceslu-
sjúklinga frá University of
Wisconsin - Madison,
Bandaríkjunum, árið
1985. Hún er hjúkrunar-
framkvæmdastjóri á gjör-
gœsludeild og bráðamót-
tökudeild Landspítalans og
stundakennari við Háskóla
fslands, námsbraut t hjúkr-
unarfrœði.
Sólveig Sverrisdóttir
lauk B.S. prófi í hjúkr-
unarfrœði frá Háskóla
íslands árið 1988. Hún
var aðstoðardeildarstjóri á
gjörgæsludeild 1991-1992
og er nú deildarstjóri á
bæklunarlækningadeild
Landspítalans.
TECLA (total extracorporeal lung assistance)
meðferð er sérhæfð og áhættusöm. Markmið
meðferðar er að hvíla sjúk lungu sjúklings og
gefa þeim tíma til bata meðan loftskiptum er
náð utan líkama. Beiting ECLA meðferðar er
umdeild einkum vegna alvarlegra fylgikvilla,
mikils kostnaðar og ótryggs árangurs. Þessi
meðferð hefur einu sinni verið veitt sjúklingi
á íslandi hingað til, og var það á gjörgæsludeild
Landspítalans. Tilgangurinn með þessari grein
er að kynna hjúkrun sjúklings sem þurfti á loft-
skiptum utan líkama að halda.
SJúkdómssaga
Um er að ræða ungling sem lenti í slysi með
þeim afleiðingum að vinstra lunga skaddaðist
og reyndist nauðsynlegt að fjarlægja það sam-
dægurs. Hægra lunga marðist, loftbrjóst
(pneumothorax) myndaðist og rif brotnuðu.
Aðrir áverkar voru ekki til staðar utan marblettir
hér og þar, og var sjúklingur með meðvitund
við komu á sjúkrahús. Unglingurinn hafði ávallt
verið hraustur og tekið mikinn þátt í íþróttum
og félagslífi.
Eftir lungnaaðgerðina var sjúklingur í
öndunarvél. Næstu tvo sólarhringa versnaði
virkni hægra lunga. Lungnamynd sýndi út-
breiddar þéttingar, loftskipti versnuðu svo og
almennt ástand. Sjúkdómsgreining var ARDS
(adult respiratory distress syndrome). Þrýst-
ingur í loftvegum við innöndun hækkaði því
þangeta (compliance) lungans minnkaði stöð-
ugt. Sjúklingur var að lokum kominn á 100%
súrefni með innöndunarþrýsting yfir 50
cmH20 og var þrýstingsáverki (barotrauma) á
lungað yfirvofandi. Skipt var frá Servo 900 C
öndunarvél yfir í hátíöniöndunarvél (high
frequency jet ventilator). [Hátíðniöndun bætir
súrefnisupptöku og eykur koltvíoxíðútskilnað
án þess að valda þrýstingshækkun í loftvegum
(Hurst, Branson og DeHaven,1987; White,
Richardson og Raibstein,1990) ólíkt því sem
gerist þegar hefðbundinni meðferð í öndunar-
vél er beitt.]jafnframt var súrefnisþörf sjúklings