Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 66
___________________Deltu 10 ám_________________________________________
Lyfjaverksmiðjan Delta hf. tók til staifa í janúar 1983 og á því 10 ára afmœli um þessar
mundir. A þessum áratug hefur fyrirtœkið náð þeim árangri að verða stœrsti lyfjaframleið-
andi á íslenskum markaði. Auk þess er um fjórðungur framleiðslunnar fluttur út til
Norðurlandanna, Bretlands og Irlands. Jafnframt hefur fyrirtœkið tekið að sér ráðgjöfvið
upphyggingu lyfjaverksmiðja erlendis og einnig séð erlendum fyrirtœkjum fyrir tœknilegum
upplýsingum í nokkrum mæli.
Hjá Delta starfa nú um 45 manns, þar af 15 lyfjafrœðingar, ífimm deildum: Framleiðslu-
deild, gœðaeftirlitsdeild, þróunardeild, rannsóknadeild og markaðs- og söludeild. Hjáfyrir-
tœkinu eru framleiddar um 150 tegundir lyfja í eftirtöldum lyfjaformum: Töflur, hylki, enda-
þarmsstílar, mixtúrur, dropar, smyrsli og áburðir auk sáravatns og sótthreinsandi lausna.
Frá upphafi hafa starfsmenn Delta lagt metnað sinn í, að geeði framleiðslunnar verði sem
mest. Sjúklingar og læknar geta treyst því að lyfinfrá Delta séu góður kostur,
gœðalyfá hagk\’œmu verði.
REYKJAVÍKURVEGI 78
HAFNARFJÖRÐUR