Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 35
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Þorgerður Ragnarsdóttir
Ein tillagan var Ingibjargarstaðir
Allir íslenskir hjúkrunarfrœðingar kannast við hana
Ingibjörgu í ráðuneytinu. Núna er hún að hœtta þar
störfum, ,,komin á aldur“ eins og sagt er. í meira en 22 ár
hefur hún leynt og Ijóst unnið að því að bœta hjúkrun í
landinu. Af eldmóði hefur hún barist fyrir hugsjónum sínum.
Hver er bakgrunnur þessarar sterku konu? Ingibjörg var
beðin um að segja svolítið frá starfi sínu í Tímariti hjúkr-
unarfrœðinga ef reynsla hennar mcetti verða yngri hjúkr-
unarfrœðingum til gagns eða fróðleiks.
Ingibjörg R. Magnúsdóttir fæddist 6 Akureyri 23. júnl 1923 og ólst þar upp. Hvernig var
tlöarandinn þá? Hvaða möguleika átti ung og efnileg stúlka / þá daga?
Tíðarandinn var á margan hátt gjörólíkur því sem nú er en var trúlega að breyt-
ast meira á mínum unglingsárum en ég gerði mér grein fyrir. Jafnrétti kvenna og
karla var ekki mikið til umræðu. Stúdentspróf og háskólanám tilheyrðu að mestu
körlum og miklu minni ástæða þótti fyrir stúlkur að halda áfram bóknámi en
drengi. Stúlkur áttu að vera þægar og góðar, fara í hússtjórnarskóla og ná sér í
gott mannsefni. Þá voru þær tryggðar fyrir framtíðina.
,,Ég hefi átt því láni að
fagna að eiga góða yfir-
menn, ráðherra og ráðu-
neytisstjóra, og gott
samstarfsfólk. Auðvitað
yfirgefur maður ekki
slíkan vinnustað án eftir-
sjár, en það er dýrmœtt
að eiga góðar endur-
minningar. “