Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 56
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
bókagagnrýni
„Nursing in action. Strengthen-
ing nursing and midwifery to
support health for all.“
Bók þessari er ritstýrt af Jane
Salvage, sem er ráðgjafi á
Evrópusvæði Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar (WHO) og
byggir bókin á efni sem áður
hefur verið gefið út af WHO.
Bókinni er ætlað að marka nýja
stefnu í hjúkrunarþjónustu (ljós-
mæðraþjónusta innifalin) í
Evrópu, og kemur þannig til
móts við breyttar heilbrigðis-
þarfir hinna ólíku íbúa nýju
Evrópu.
Árið 1988 komu evrópskir
hjúkrunarfræðingar og ljósmæður
saman á ráðstefnu á vegum WHO
og mörkuðu stefnu fyrir hjúkrun
í Evrópu framtíðarinnar. í fram-
haldi af ráðstefnunni hafa síðan
vinnuhópar unnið að nánari
útfærslu. Helstu niðurstöður ráð-
stefnunnar voru að markmið
hjúkrunar væri hjúkrun fyrir alla.
Einnig að leggja þyrfti áherslu á
hjúkrunarfræðinginn sem sjálf-
stæðan og færan fagmann sem
geti unnið einn eða í samstarfi
við aðra heilbrigðisstarfsmenn.
Hlutverk hans sé ekki að þjóna
öðrum fagstéttum heldur að
upplýsa, styðja og annast skjól-
stæðinga sína. Hjúkrunarfræð-
ingar eigi að þjóna skjólstæð-
ingum fyrst og fremst, en ekki
kerfinu. Grunnmenntun eigi að
gefa hjúkrunarfræðingnum
breiða, almenna hjúkrunarfræði-
menntun sem undirbúi hann
undir að geta starfað sem víðast
við hjúkrun. Sameiginleg þeim
fimm milljónum einstaklinga,
sem vinna við hjúkrun í Evrópu,
í mismunandi mæli, séu vanda-
mál sem orsakast af valdaleysi. í
öðru lagi er ójafnt kynjahlutfall
og því tengd lág laun, litlir
möguleikar á stöðuhækkunum og
léleg menntun. í þriðja lagi eru
yfirráð lækna og hugmyndafræði
læknisfræðilíkansins.
Meginhluti bókarinnar fjallar
um hvernig ná megi markmiðinu
hjúkrun fyrir alla sem fyrr var
greint frá og þá sérstaklega
hvernig hjúkrunarfræðingar þurfi
að breyta áherslum í hjúkrunar-
þjónustunni og í menntunar-
málum auk mikilvægi þess að
þeir komist í áhrifastöður í
heilbrigðiskerfinu. Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunin mun leitast
við að aðstoða lönd við að ná
þessu markmiði undir heitinu
„Nursing in action“.
Bókinni er skipt í fimm kafla
og fjalla þeir um eftirfarandi
atriði í stuttu máli: Fyrsti kaflinn
fjallar um þörf fyrir skýra stefnu-
mörkun í málefnum hjúkrunar.
Bent er á þætti sem breyta þarf,
s.s. áherslubreytingar í kennslu
heilbrigðisstétta og að nýjan
skilning þurfi á hugtakinu heil-
brigði og þar með áherslubreyt-
ingar í heilbrigðisþjónustunni.
Annar kafli fjallar um eðli breyt-
inga og þörf hjúkrunarfræðinga á
að þekkja breytingaferlið og ekki
síst að þeir séu í forsvari fyrir
breytingar á hjúkrunarstarfinu og
heilbrigðisþjónustunni í heild.
Þriðji kafli skýrir frá mikilvægi
þess að settar séu reglur og að
kerfi séu þróuð sem lúta að
inntökuskilyrðum í hjúkrunar-
fræði, veitingu hjúkrunarleyfa, að
starfssvið séu skilgreind og viður-
kennd, að launakerfið og fram-
gangskerfi séu þróuð í þeim
tilgangi að skapa hjúkrunarstarf-
inu aukna virðingu. í kafla fjögur
er bent á þörf fyrir breytingar á
hjúkrunarmenntun. Áhersla er
lögð á heildræna hjúkrun og að
hjúkrunarnám byggi á hugmynd-
um um fullorðinsfræðslu. Síðasti
kaflinn fjallar um mikilvægi þess
að þróa og þroska forystuhæfi-
leika hjúkrunarfræðinga. Rætt er
um að þessa hæfileika þurfi að
þroska markvisst með námi.
í heild finnst mér þessi bók
athyglisverð og aðgengileg
aflestrar. Lögð er rík áhersla á að
þarfir hvers samfélags fyrir sig
séu metnar og hjúkrunarþjón-
ustan byggi á því mati. Einnig að
hjúkrunarfræðingar skilgreini sig
út frá heilbrigðisþörfum síns
samfélags. Jafnfamt að vandamál
hjúkrunar eru mjög ólík í hinum
mismunandi samfélögum Evrópu.
Þó svo að ég telji ísland standa
þokkalega framarlega miðað við
margar Evrópuþjóðir hvað hjúkr-
unarmenntun og þjónustu varðar,
er ýmislegt í bókinni fróðlegt,
ekki síst hvað varðar stefnumót-
un og mikilvægi þess að hjúkr-
unarfræðingar sitji í áhrifastöðum
í sérhverju þjóðfélagi.
Helga Jónsdóttir, lektor
Uppkomin börn alkóhólista
Nýlega kom út hjá Almenna
bókafélaginu bókin „Uppkomin
börn alkóhólista“ eftir Árna Þór
Hilmarsson. Bókin er óinn-
bundin, 109 síður, og fjallar um
afleiðingar þess fyrir einstakling-
inn að alast upp við aðstæður
þar sem alkóhólismi hefur ráðið
ríkjum.
Höfundur bókarinnar, Árni Þór
Hilmarsson, hefur lokið BA prófi