Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 22

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 22
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993 Niðurstöðurnar sýna að fræðsluþörf sjúkling- anna er lítið eða ekki metin áður en fræðslan er veitt. Helmingur sjúklinganna taldi sig vita mikið eða töluvert um áhættuþætti kransæða- stíflu áður en þeir fengu hana. Þrátt fyrir það töldu þeir sig fá mesta fræðslu um áhættuþætti. f könnuninni vildu 72% sjúklinganna ein- staklingshæfða fræðslu, 60% vildu hópfræðslu, 55% vildu fræðslu á prentuðu máli og 52% vildu fræðslu á myndbandi. Hér á landi hefur fræðslan verið byggð á töluðu og prentuðu máli. Því vekur athygli að 52% svarenda vilja fá fræðslu á myndbandi. Þetta er í samræmi við þær kenningar innan kennslufræðinnar að fræðslan eigi að höfða til sem flestra skilningar- vita (Whitman o.fl., 1986). í þessari könnun er athyglisvert hversu fáir eða 10% telja vinnuálag eða líkamlegt álag vera sinn helsta áhættuþátt. í erlendum könnunum er þetta hlutfall mun hærra eða um 32% (Murray,1989). Þetta stingur í stúf við þá umræðu að íslendingar vinni að meðaltali meira en aðrar þjóðir. Einnig er athyglisvert að 50% telja reykingar vera sinn áhættuþátt en erlendar kannanir sýna þetta hlutfall mun lægra eða um 24% (Murray, 1989). Má vel velta því fyrir sér hvort þetta háa hlutfall þeirra sem telja reyk- ingar vera sinn áhættuþátt sé árangur fræðslu og áróðurs um skaðsemi reykinga. Fram kemur að 90% sjúklinga segjast breyta um lífsstíl í kjölfar fræðslunnar en 10% ekki. Þrátt fyrir að fræðsluþörfum sjúklinga sé alls ekki fullnægt virðist sú fræðsla, sem þeir fá, bera góðan árangur. Eins og sjá má á mynd 3 um árangur fræðslunnar kemur í ljós að af þeim 29 einstaklingum, sem telja reykingar vera sinn Helmlldatkrá Anna Lilja Gunnarsdóttir, Ingibjörg ívarsdóttir, Sólveig Hauks- dóttir og Steinunn Gunnarsdóttir (1985). Könnun á frœðsluþörfum kransœöasjúklinga á hjartadeild Land- spitalans. Óbirt BS - ritgerð: Háskóli íslands, námsbraut í hjúkrunarfræði. Chan, V. (1990). Content areas for cardiac teaching: patients’ perceptions of the importance of teaching content after myocardial infarction, fournal of Advanced Nursing, 15, 1139 - 1145. áhættuþátt, segjast 23 hætta að reykja. Af þeim 17 einstaklingum, sem telja offitu eða of hátt kólesteról vera einn af sínum áhættuþáttum, segjast 16 breyta um mataræði. Því má ekki gleyma að sjúkdómurinn og mikill kvíði sem fylgir honum getur haft áhrif á breyttan lífsstíl eftir útskrift. Hafa ber í huga að einungis eru liðnir 1-11 mánuðir frá því að viðkomandi fær kransæðastíflu og útskrifast af hjartadeildinni þar til hann svarar spurningalistanum. Á þess- um tíma eru margir utanaðkomandi þættir sem geta haft áhrif á þennan breytta lífsstfl. Sjúkl- ingar, sem útskrifast eftir kransæðastíflu, eru frá vinnu samkvæmt læknisráði í 2 - 3 mánuði, en það getur skýrt hversu margir minnkuðu við sig vinnu. Margir fara í endurhæfingu eftir útskrift og gæti það skýrt hversu margir auka við sig hreyfingu. Því væri fróðlegt að kanna síðar t.d. eftir 2 ár hjá sömu einstaklingum hvort þetta breytta lífsmynstur sé enn þá til staðar. Alhæfingargildi þessarar könnunar er tak- markað. Hins vegar er hægt að álykta út frá niðurstöðum hennar fyrir úrtakið. Niðurstöður könnunarinnar gefa vísbend- ingu um hvað skortir á fræðslu sem veitt er sjúklingum sem fengið hafa kransæðastíflu. Könnunin gæti því komið að góðum notum við undirbúning og skipulagningu fræðsluefnis fyrir kransæðasjúklinga. Sérstakar þakklr fá Margrét Björnsdóttlr, hjúkrunar- framkvæmdastjórl á Borgarspftalanum, fyrlr góöar lelöbelningar og frábæran stuönlng vlö gerö könn- unarlnnarog Helgl Þórsson, hjá Reiknlstofnun Há- skólans, fyrlr ómetanlega aðstoð vlð tölvuvlnnslu. Garding, B.S., Kerr, J.C., og Bay, K. (1988). Effectiveness of a program of information and support for myocardial infarc- tionpatientsrecoveringathome.Heart&Lung, 17, 355-62. Karlik, B.A., og Yarcheski, A. (1987). Learning needs of cardiac patients: a partial replication study. Heart and Lung, 16, 544 - 551. Lindsay, N., Judith, A., Jennrich og Biemolt, M. (1991). Pro- grammed instruction booklet for cardiac rehabilitation teaching Heart and Lung, 20, 648 - 653.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.