Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1993, Blaðsíða 32
Tímarit hjúkrunarfræðinga 1. tbl. 1. árg. 1993
Jóna Siggeirsdóttir og Þórunn Pálsdóttir
Nú eru tæplega þrjú ár síðan bann við reyking-
um gekk í gildi á Ríkisspítölum. Áætlun stjórn-
arnefndar Ríkisspítala var að afnema allar reyk-
ingar nema reykingar sjúklinga sem kynnu að
fá undanþágu frá banninu (Ása Guðmunds-
dóttir o. fl., 1990). Á geðdeildunum voru og
eru mjög skiptar skoðanir meðal starfsmanna
um það hvort slíkt bann sé framkvæmanlegt
eða ekki. Oft hefur verið litið þannig á að geð-
sjúklingar geti ekki takmarkað reykingar sínar.
Starfsfólk heilbrigðisþjónustunnar hefur haft
áhyggjur af því að takmörkun á reykingum
kunni að hafa slæm áhrif á meðferð (Erwin og
Biordi, 1991). í rannsókn sem Smith og Grant
(1989) gerðu, þar sem miðað var við að draga
úr reykingum á geðdeild og skoða þau vanda-
mál sem upp kynnu að koma við að breyta
reglum um reykingar, kom fram að starfsfólkið
sá fyrir mun fleiri vandamál en raun varð á.
Niðurstaða þeirra varð sú að geðsjúklingar gætu
dregið úr reykingum sínum engu síður en fólk
almennt.
Jóna Siggeirsdóttir lauk
námi frá námsbraut í
hjúkrunarfrceöi árið 1977
og stundaði nám í geð-
hjúkrun við lowaháskóla,
Bandarikjunum, 1980.
Frá árinu 1987 hefur hún
verið verkefnisstjóri við
geðdeild Landspítalans.
Þórunn Pálsdóttir lauk
prófi frá Hjúkrunarskóla
fslands árið 1960 og geð-
hjúkrunarnámi frá Statens
Special Skole í Noregi árið
1966, stundaði stjórnunar-
nám við Royal College of
Nursing í London 1971 -
1972 og nám í Kennara-
háskóla fslands 1977 -
1979. Hefur verið hjúkr-
unarforstjóri geðdeildar
Landspítalans frá 1970.
Aðferö
Síðastliðin þrjú ár hefur farið fram mat á hjúkr-
unarþjónustu á geðdeildum Landspítalans. Mat
þetta fór þannig fram að spurningalisti var
lagður fyrir alla sjúklinga deildanna nema á
tveimur barnadeildum, einni langlegudeild og
göngudeildum. Verkefnastjóri fór á hverja deild
spítalans í febrúar og mars 1991, 1992 og 1993,
lagði listann fyrir og aðstoðaði sjúklinga ef þörf
krafði. Til úrtaksins töldust þeir sjúklingar sem
voru á deildinni þann dag sem spyrjandi kom.
Árið 1991 var svörun 80,6%, 1992 var hún
78%. í febrúar 1993 voru samtals 210 sjúkl-
ingar á þessum deildum, 174 svör voru nýtileg
eða 82,8% svörun. Skipting úrtaksins eftir kyni
kemur fram í töflu 1. Eins og sjá má er hlutfall
karla mun hærra en kvenna.
Tafla 1. Skipting úrtaks sjúklinga eftir kyni
1991 1992 1993
karlar 68,6% 67,1% 55,7%
konur 31,4% 32,9% 44,3%
Reykingabann meðal
sjúklinga geðdeildar
Landspítalans
Niðurstöður könnunar þessarar, sem gerð var meðal allra
sjúklinga á geðdeild Landspítalans í febrúar og mars árin
1991, 1992 og 1993, sýna að reykingar eru miklar meðal
sjúklinga geðdeildarinnar. Þannig reyktu árið 1991 71,2%,
1992 72,9% og 1993 66,9% aðspurðra sjúklinga. Viðhorf
þeirra til reykingabanns á stofnuninni hafa lítið breyst frá
því reykingabanni var komið á.