Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1996, Blaðsíða 43
VÍSINDASJÓÐUR
Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5%
af föstum dagvinnulaunum hjúkrunar-
fræðinga í Vísindasjóð Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins
um áramót er hverju sinni til úthlutunar.
Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist
í A og B hluta.
A-hluti
í A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins
og skal þeim varið til að greiða hverjum
sjóðsfélaga árlega framlag fyrir útlögðum
kostnaði vegna endurmenntunar,
rannsóknar- eða þróunarstarfa. Félagið
sér um að greiða úr A-hluta sjóðsins til
félagsmanna á fyrsta ársfjórðungi hvert
ár. Ekki þarf að sækja sérstaklega um
framlagið, upphæðin er lögð inn á
bankareikning félagsmanna, sem hafa
geíið upp reiknings- og bankanúmer sitt
hjá félaginu.
Vísindasjóður A-hluti
Greiðslur úr A-hluta
Vísindasjóðs félagsins
verða lagðar beint inn ó
bankareikning félagsmanna
í lok mars nk.
Félagsmaður, sem hefur verið í fullu
starfi tímabilið I. janúar til 30.
nóvember árið fyrir úlhlutun, á rétt á
fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur
unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á
úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag.
Ekki er úthlutað til félagsmanna sem
hófu störf eftir 1. september árið fyrir
úthlutun.
B-hluti
Ur B-hluta Vísindasjóðsins er þeim
10% sem eftir eru af tekjum sjóðsins
varið til að stuðla að aukinni
fræðimennsku í hjúkrun með því að
TfMARIT HJÚKRUNARFRÆDINGA 1. tbl. 72. árg. 1996
styrkja rannsókna- og þróunarverkefni.
Úr þeim hlula er úthlutað einu sinni á
ári.
Umsóknarfrestur fyrir styrk úr
B-hluta Vísindasjóðs er tO 15. apríl
1996.
Umsóknarfrestur fyrir
styrk úr B-hluta
Vísindasjóðs er til
15. apríl 1996.
Úr starfsreglum fyrir B-hluta
Vísindasjóðs
Hjúkmnarfræðingar sem eiga aðild að
sjóðnum geta sótt um styrki úr honum til
að sinna fræðimennsku. Umsóknir skulu
metnar af stjórn Visindasjóðs og
sérfróðum aðilum á hverju sérsviði
hjúkrunar. I þverfaglegum verkefnum,
sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki
eru allir aðilar að sjóðnum, getur upp-
hæð styrkjar aldrei orðið hærri en sem
nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í
verkefninu.
Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta
á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur
við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni
nemenda í B.S. nánii eru ekki styrkhæf.
Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu
geta verið styrkhæf að uppfylltum
almennum skilyrðum, enda sé
viðkomandi hjúkrunarfræðingur aðili að
sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr
A-hluta sjóðsins ávinnst.
Styrkupphæðir verða greiddar út í
áföngum í samræmi við framgang
verksins enda skili styrkþegi inn
áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað
til stjórnar vísindasjóðsins ásamt
niðurstöðum t.d. tímaritsgrein.
Vísindasjóðurinn hefur á hverjum
tíma yfírlit yfír allar styrkumsóknir og
styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í
janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni
eða því ekki lokið af einhverjum
ástæðum skal styrkþegi gera stjórn
sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og
endurgreiða þann liluta styrksins sem
ekki hefur verið notaður til verkefnisins.
I umsókn um styrk þurfa að koma fram
eftirfarandi upplýsingar:
Nafn umsækjanda, menntun, starfs-
reynsla og reynsla af rannsókna-
eða þróunarvinnu.
Greinaskrif:
Heiti rannsóknaiTerkefnis/þróunar-
verkefnis.
Markmið með vinnu verkefnis.
Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir
hjúkrun/heilbrigðisvísindi.
Rannsóknaráætlun/verkáætlun.
Aðferðafræði.
Heimildaskrá.
Mælitæki.
Tímaáætlun.
Kostnaðaráætlu n.
Við mal á styrkhæfni skulu þessi atriði
metin skv. eftirfarandi viðmiðum:
Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða
þróunar?
Hvert er mikilvægið?
Er framsetning markmiða skýr?
Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í
samræmi við markmið?
Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi?
Er fagleg þekking umsækjanda
fullnægjandi?
Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug?
Er hægt að fella niður eða lækka
einhverja kostnaðarliði, hvernig?
Almennar athugasemdir um umsókn og
verkefni.
Hver ofangreindra þátta verði metinn
samkvæmt ákveðnum kvarða t.d.
0-5 til að auðvelda mat og
ákvarðanatöku við styrkveitingar.
Styrkir úr vísindasjóði
geta nýst til að Ijúka
verkefnum til kynningar
ó róðstefnum.