Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1996, Qupperneq 43

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1996, Qupperneq 43
VÍSINDASJÓÐUR Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunar- fræðinga í Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins um áramót er hverju sinni til úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A og B hluta. A-hluti í A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins og skal þeim varið til að greiða hverjum sjóðsfélaga árlega framlag fyrir útlögðum kostnaði vegna endurmenntunar, rannsóknar- eða þróunarstarfa. Félagið sér um að greiða úr A-hluta sjóðsins til félagsmanna á fyrsta ársfjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækja sérstaklega um framlagið, upphæðin er lögð inn á bankareikning félagsmanna, sem hafa geíið upp reiknings- og bankanúmer sitt hjá félaginu. Vísindasjóður A-hluti Greiðslur úr A-hluta Vísindasjóðs félagsins verða lagðar beint inn ó bankareikning félagsmanna í lok mars nk. Félagsmaður, sem hefur verið í fullu starfi tímabilið I. janúar til 30. nóvember árið fyrir úlhlutun, á rétt á fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag. Ekki er úthlutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. september árið fyrir úthlutun. B-hluti Ur B-hluta Vísindasjóðsins er þeim 10% sem eftir eru af tekjum sjóðsins varið til að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að TfMARIT HJÚKRUNARFRÆDINGA 1. tbl. 72. árg. 1996 styrkja rannsókna- og þróunarverkefni. Úr þeim hlula er úthlutað einu sinni á ári. Umsóknarfrestur fyrir styrk úr B-hluta Vísindasjóðs er tO 15. apríl 1996. Umsóknarfrestur fyrir styrk úr B-hluta Vísindasjóðs er til 15. apríl 1996. Úr starfsreglum fyrir B-hluta Vísindasjóðs Hjúkmnarfræðingar sem eiga aðild að sjóðnum geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræðimennsku. Umsóknir skulu metnar af stjórn Visindasjóðs og sérfróðum aðilum á hverju sérsviði hjúkrunar. I þverfaglegum verkefnum, sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki eru allir aðilar að sjóðnum, getur upp- hæð styrkjar aldrei orðið hærri en sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu. Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni nemenda í B.S. nánii eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu geta verið styrkhæf að uppfylltum almennum skilyrðum, enda sé viðkomandi hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr A-hluta sjóðsins ávinnst. Styrkupphæðir verða greiddar út í áföngum í samræmi við framgang verksins enda skili styrkþegi inn áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað til stjórnar vísindasjóðsins ásamt niðurstöðum t.d. tímaritsgrein. Vísindasjóðurinn hefur á hverjum tíma yfírlit yfír allar styrkumsóknir og styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann liluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins. I umsókn um styrk þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn umsækjanda, menntun, starfs- reynsla og reynsla af rannsókna- eða þróunarvinnu. Greinaskrif: Heiti rannsóknaiTerkefnis/þróunar- verkefnis. Markmið með vinnu verkefnis. Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir hjúkrun/heilbrigðisvísindi. Rannsóknaráætlun/verkáætlun. Aðferðafræði. Heimildaskrá. Mælitæki. Tímaáætlun. Kostnaðaráætlu n. Við mal á styrkhæfni skulu þessi atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum: Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða þróunar? Hvert er mikilvægið? Er framsetning markmiða skýr? Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í samræmi við markmið? Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking umsækjanda fullnægjandi? Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug? Er hægt að fella niður eða lækka einhverja kostnaðarliði, hvernig? Almennar athugasemdir um umsókn og verkefni. Hver ofangreindra þátta verði metinn samkvæmt ákveðnum kvarða t.d. 0-5 til að auðvelda mat og ákvarðanatöku við styrkveitingar. Styrkir úr vísindasjóði geta nýst til að Ijúka verkefnum til kynningar ó róðstefnum.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.