Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.1996, Side 44
ISLENSK HEILBRIGÐISAÆTLUN
- ENDURSKOÐUN OG ENDURBÆTUR
HÁSKÓLINN
A AKUREYRI
Námsstyrkir
Heilbrigðisdeild
Háskólans á Akureyri
auglýsir lausa til umsóknar
tvo námsstyrld að upphæð
400 þús. kr. hvorn,
til þeirra sem eru í síðari hluta
doktorsnáms í hjúkrunarfræði.
Gert er ráð fyrir að styrkþegar
komi til staifa við
Háskólann á Akureyri um minnst
tveggja ára skeið.
Umsóknir um styrkina skulu hafa
borist Háskólanum á Akureyri
í’yrir 15. mars 1996.
Upplýsingar veitir
forstöðumaður heilbrigðisdeildar
Háskólans á Akureyri
í síma 463 0900.
Samkvæmt tilnefningu Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga hefur heilbrigðis-
ráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir, skipað
Ástu Möller, formann Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga, í nefnd sem er ætlað
að endurskoða og endurbæta íslenska
heilbrigðisáætlun sem samþykkt var á
Alþingi 1991.
Hlutverk nefndarinnar er m.a. að
setja mælanleg markmið fyrir alla
heilbrigðisþjónustu í landinu til að
leggja grunn að nýrri heilbrigðisáætlun
sem lögð verður fyrir Alþingi.
Ásta var áður skipuð í nefnd um
framtíðarþróun í íslenska heilbrigðis-
kerfinu. í janúar sl. ákvað ráðheiTa að
endurskipa nefndina og fjölga f henni.
Nefndinni er ætlað að gera tillögur til
ráðherra sem nái annars vegar til næstu
fjögurra ára og liins vegar til tíu ára
tímabils þar á eftir.
Áætlun til fjöguna ára skal lokið
eigi síðar en 1. nóvember 1996. I
störfum sínum skal nefndin fylgjast með
vinnu nefndar sem fjallar um forgangs-
röðun verkefna í heilbrigðisþjónustu og
hafa náið samstarf við nefnd sem fjallar
um framkvæmdir og uppbyggingu
heilbrigðisstofnana.
Fyrir 1. mars 1997 skal nefndin
skila lokatillögum um áætlun næstu tíu
ára þar sem lekið er tillit til lielstu
niðurstaðna frá báðum þessum nefndum.
Auk Ástu Möller eiga sæti f nefndinni:
Davíð Á. Gunnarsson, ráðuneytisstjóri,
formaður nefndarinnar
Jónas Magnússon. prófessor, lilnefndur
af læknadeild Háskóla íslands
Pálmi V. Jónsson, læknir, tilnefndur af
Læknafélagi íslands
Ólafur Ólafsson, landlæknir
Birgir Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjúkrahúss Skagfirðinga
Sighvatur Björgvinsson, alþingismaður
og fyrrverandi ráðherra
Svavar Gestsson, alþingismaður og
fyrrverandi ráðherra
Inga Jóna Þórðardóttir, fyrrverandi
aðstoðarmaður ráðherra og
Þórir Haraldsson, aðstoðarmaður
ráðherra
Starfsmenn nefndarinnar verða Símon
Steingrímsson, verkfræðingur, og
Jón Sæmundur Sigurjónsson,
hagfræðingur
Ritari nefndarinnar verður Ragnhildur
Arnljótsdóttir, deildarstjóri
d 3 3 5 o
TAXI °0
Sími 552-0790 - Fax: 552-0677
Strax á fax: Uppl. í S. 800-8222, bls. 3100 og 3101
Netfang: HTTP: // WWW spomet IS/SD
S. D. smyrslið af vítamínum er ríkt
gefur húðinni silkimýkt
T. d. með hreistuga og hrjúfa húð
það fæst í næstu búð.
S.D. líka fyrir hestinn okkar
sem létt fyrir mig brokkar.
Múkk í kjúkunni meiðir
S.D. Hestasmyrslið gott af sér leiðir.