Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1998, Page 27
Helga Björk Eiríksdóttir
Fjölbreytni í hjúkrun
Hlutverk heilsugæslunnar á íslandi er að veita öllu fólki grunnheilbrigðisþjón-
ustu. Samkvæmt lögum hefur heilsugæslan mjög víðtækar skyldur en nær
hins vegar ekki að sinna nema hluta af því sem henni er ætlað. Starfsfólk
hennar er misjafnt eftir stöðum, samsetning íbúa hvergi sú sama, aðbúnaður
ekki alls staðar jafngóður og því verða áherslur breytilegar. Yfirleitt er þó rót
vandans mannekla og peningaskortur. Er munur á starfi hjúkrunarfræðinga í
heilsugæslu eftir því hvar á landinu þeir starfa? Ragnhildur Rós Indriðadóttir
á Egilsstöðum og Ingibjörg Ásgeirsdóttir í Hafnarfirði varpa Ijósi á þessa
spurningu.
Hjúkrunarfræðingur og Ijósmóðir
Ragnhildur Rós Indriðadóttir vinnur á heilsugæslustöðinni
á Egilsstöðum. Hún býr ásamt manni sínum og þremur
börnum hinum megin við Lagarfljótið, í Fellabæ. Hún er
fædd í Reykjavík fyrir rúmum 40 árum en hefur búið eystra
í 10 ár.
Ragnhildur hóf nám í málfræði við Háskóla íslands, en
fór svo í Hjúkrunarskólann og lauk þaðan prófi árið 1982.
Eftir það sfarfaði hún meðal annars í Eþíópíu en þar
kviknaði áhugi hennar á Ijósmóðurstarfinu. Þegar heim
kom fór hún því í Ljósmæðraskólann og útskrifaðist þaðan
árið 1987. Aftur hélt Ragnhildur til útlanda á vit nýrra
ævintýra. Ári seinna lá leiðin austur þar sem hún hefur alið
manninn síðan.
Til að byrja með gegndi Ragnhildur tveimur stöðum á
sjúkrahúsinu á Egilsstöðum. „Ég var í 40% vinnu sem Ijós-
móðir og í 50% vinnu sem hjúkrunarfræðingur. Ég hætti
sem Ijósmóðir árið 1994.“ Fjölskylda Ragnhildar stækkaði
ört og þá hentaði reglulegur vinnutími á heilsugæslustöð-
inni betur.
Frá útlöndum til Egilsstaða
Ragnhildur hafði starfað meira í útlöndum en á almennum
deildum í Reykjavík þegar hún ákvað að flytja út á land. Af
hverju Egilsstaðir? „Ég kom hingað af því að mig langaði
ekki að búa í Reykjavík eftir að ég kom heim frá útlöndum.
Ég er líka ættuð héðan, ég þekkti fólk hérna og hef alltaf
verið í góðum tengslum við svæðið og hér kynntist ég
manninum mínum, Skarphéðni Þórissyni." Hann er kennari
við Menntaskólann á Egilsstöðum, Reykvíkingur sem flutti
austur nokkru á undan Ragnhildi.
Unnið hraðar á sumrin
Heilsugæslustöðin á Egilsstöðum þjónar um 3.000 íbúum
á Egilsstöðum og í nágrannabyggðunum. „Við erum þrír
hjúkrunarfræðingar í hlutastörfum - sjálf er ég í 70%
vinnu,“ segir Ragnhildur. Hún sinnir ungbarnaeftirlitinu mest
þar sem hún er Ijósmóðir og því ekki óeðlilegt að skipu-
lagning þess hafi fallið í hennar hlut.
„Starfssvið hjúkrunarfræðinga á heilsugæslunni skiptist
gróflega í fernt," segir Ragnhildur. „Það er ungbarnaeftir-
litið og allt sem að því lýtur, vitjanir, skoðanir og fræðsla.
Sumt af fræðsluefninu semjum við sjálf. Síðan er það
heimahjúkrunin með vitjunum, lyfjagjöfum og annarri
umönnun. í þriðja lagi er það skiptistofan þar sem tekið er
á móti fólki, skipt á sárum og læknarnir aðstoðaðir. Og
loks er það skólahjúkrunin."
Ragnhildur segir að hjúkrunarfræðingarnir á stöðinni
þurfi náttúrulega að vera tilbúnir til að gera allt. „Ef slys verða
þurfum við ýmist að fara í útköll eða taka á móti þeim hér á
stöðinni. Við þurfum einnig að fara í sjúkraflug. Ef dauðsföll
verða í heimahúsum þurfum við að koma að því líka.“
Á sumrin er mikil umferð ferðafólks á Héraði og við það
breytist starfið á heilsugæslunni. „Við erum á bakvöktum
um helgar á sumrin. Fólki fjölgar verulega hér yfir sumar-
tímann og þá er oft mikið álag. Um leið og ferðamennirnir
—
Tímarit hjúkrunarfræðinga leitaði eftir samstarfi við
nemendur í hagnýtri fjölmiðlun í Háskóla íslands
um greinaskrif i blaðið. Helga Björk Eiríksdóttir var
í framhaldi af því fengin til að kynna sér fjölbreytni
f hjúkrun með viðtölum við hjúkrunarfræðinga.
Helga Björk er með BA-próf í ensku og ítölsku.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 74. árg. 1998
163