Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1998, Page 34
Asta Möller
Sótt um
aukaaðild PCN
Stjórn Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga samþykkti á fundi sínum 2.
febrúar sl. að sækja um aukaaðild að
samtökum félaga hjúkrunarfræðinga í
löndum Evrópusambandsins, öðru
nafni PCN (Standing committee of
Nurses of the EU, en hét áður „Per-
manent commitee of Nurses of the
EC" (PCN)) en samtökin mynda
fastanefnd um hjúkrunarmál innan
Evrópusambandsins (ESB). í þessari
grein verður í stuttu máli gerð grein
fyrir starfi samtakanna og ákvörðun
stjórnar Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga um að gerast aðilar að
þeim.
Bakgrunnur PCN
Ýmsar ráðgefandi nefndir eru starfandi
innan ESB og hafa þær hver um sig
ákveðið starfssvið. Félög hjúkrunar-
fræðinga í löndum ESB mynduðu á
árinu 1971 ráðgefandi nefnd um
hjúkrunarmál og er hún viðurkennd
opinberlega innan sambandsins.
Nefndin mótaði m.a. tilskipanir um
gagnkvæma viðurkenningu á starfs-
réttindum og menntun hjúkrunarfræð-
inga í löndum ESB og hefur hin síðari
ár verið vettvangur til að skoða og
styðja við þróun hjúkrunar í Evrópu.
Aðild að samtökunum eiga félög
hjúkrunarfræðinga þeirra landa sem
eiga aðild að ESB. Samtök hjúkrun-
arfræðinga í löndum sem hafa form-
lega sótt um aðild að ESB hafa átt
rétt til að senda áheyrnarfulltrúa á
fundi nefndarinnar, ásamt Samvinnu
hjúkrunarfræðinga á Norðurlöndum
(SSN) og Alþjóðasamtökum
hjúkrunarfræðinga (ICN). í nóvember
sl. var tekin ákvörðun um að bjóða
félögum hjúkrunarfræðinga landa
sem eiga aðild að Evrópuráðinu og
170
eru jafnframt aðilar að ICN að gerast
aukaaðilar að samtökunum og barst
Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga
slíkt boð í desember sl. Fjölmörg
félög hjúkrunarfræðinga í Evrópu,
sem eru utan ESB hafa þekkst
boðið.
Fundir PCN eru haldnir tvisvar ári,
tvo daga í senn. Á haustfundum sl.
tvö ár hafa jafnframt verið haldnir form-
legir samráðsfundir samtakanna með
Evrópudeild Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar annars vegar og evr-
ópskum samtökum hjúkrunarfræð-
inga innan sérgreina hin.s vegar.
Núverandi formaður samtakanna
er Christine Hancock, framkvæmda-
stjóri The Royal College of Nursing,
en hún tók við af Kirsten Stallknecht,
formanni ICN. PCN hefur fasta skrif-
stofu I Brussel og einn starfsmann.
Tilgangur og verkefni
Tilgangur PCN er aavekja athygli
ESB á raunverulegu og hugsanlegu
samstarfi hjúkrunarfræðinga til að
takast á við heilbrigðisþarfir þegna
bandalagsins og að standa vörð um
starf, stöðu og hagsmuni hjúkrunar-
fræðinga innan bandalagsins.
Meðal markmiða PCN er að
skoða, skilgreina, bregðast við, vera
ráðgefandi um og hafa áhrif á öll mál
sem tengjast hjúkrun, hjúkrunarfræð-
ingum og heilbrigðismálum innan
ESB. Einnig að hafa samvinnu við
alþjóðlegar og evrópskar stofnanir,
samtök og félög sem vinna að hjúkr-
unar- og heilbrigðismálum.
ESB hefur ekki afskipti af skipu-
lagningu heilbrigðisþjónustu í löndum
sambandsins, en hefur sett fram
ákveðin markmið til að takast á við
tiltekin heilbrigðisvandamál, m.a. til
að samræma átak landanna. Má þar
nefna áætlanir til að auka heilbrigði,
um aðgerðir gegn krabbameini,
alnæmi og misnotkun vímuefna og
um öryggi á vinnustað. Þá hefur
verið unnið að því að styrkja hjúkr-
unarannsóknir innan aðildarland-
anna. Kom þessi ákvörðun í kjölfar
fundar heilbrigðisráðherra landanna
1990 og var hugsuð sem liður í að
styrkja nám hjúkrunarfræðinga og
rannsóknir innan hjúkrunar.
PCN hefur safnað og miðlað
upplýsingum um heilbrigðis- og
hjúkrunarmál sem hefur verið mikill
styrkur fyrir samtök hjúkrunarfræð-
inga og stuðlað að framförum í
málefnum hjúkrunar jafnt á vettvangi
ESB, sem innan hvers aðildarlands.
Meðal athugana sem PCN hefur
staðið að er könnun á hvernig lögum
og reglugerðum um hjúkrun er
háttað, könnun á skorti á
hjúkrunarfræðingum og úttekt á
menntun hjúkrunarfræðinga í aðildar-
löndum bandalagsins. Sérstakt átak
var hafið á árinu 1992 á vegum PCN
til að skoða og efla kennslu og mennt-
un hjúkrunarfræðinga um krabba-
mein í aðildarlöndum ESB. Þá hefur
PCN skipulagt fjölmargar ráðstefnur
um málefni hjúkrunar og nýtur styrkja
frá ESB í því sambandi.
Stjórn Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga telur mikilvægt að
félagið taki virkan þátt í samstarfi
evrópskra félaga hjúkrunarfræðinga
innan PCN, sem er heilbrigðis-
pólitískur vettvangur innan ESB. Með
þátttöku í starfi PCN gefst tækifæri til
að fylgjast með og hafa áhrif á
ákvarðanir um málefni hjúkrunar sem
teknar eru á vettvangi Evrópusam-
bandsins, en allar slíkar ákvarðanir
hafa áhrif á íslenska
hjúkrunarfræðinga og íslenska
heilbrigðiskerfið vegna þátttöku
íslendinga innan evrópska efnahags-
svæðisins.
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 74. árg. 1998