Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.06.1998, Page 37
Ásta Möller
formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
^koV'tUY'á
ijúkrunarfræðingum til starfa
Niðurstaða könnunar á vegum Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
Skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa á heilbrigðisstofn-
unum hefur verið viðvarandi hér á landi árum saman.
Starfandi hjúkrunarfræðingar á íslandi á árið 1997 voru
2150 og er þá átt við þá sem taka laun skv. kjarasamningi
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Þá eru ekki taldir með
þeir sem taka laun skv. kjarasamningum annarra stéttar-
félaga t.d. þeir sem stunda kennslu í framhalds- og há-
skólum eða starfa hjá einkafyrirtækjum. Undanfarin ár hafa
árlega útskrifast á bilinu 80-100 hjúkrunarfræðingar, en
það hefur ekki dugað til að fylla lausar stöður.
í byrjun árs 1998 tók stjórn Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga ákvörðun um að gera athugun á skorti á hjúkr-
unarfræðingum til starfa hér á landi. Spurningalisti var
sendur til hjúkrunarforstjóra allra heilbrigðisstofnana í febrúar
s.l. þar sem óskað var upplýsinga um mönnun á viðkom-
andi heilbrigðisstofnun miðað við 1. janúar 1998. í fram-
haldi af þessu hefur stjórn félagsins ákveðið á að skoða
nánar vinnumarkað stéttarinnar, þörf fyrir hjúkrunar-
fræðinga á heilbrigðisstofnunum, ástæður fyrir skorti á
þeim til starfa og jafnframt gera tillögur til úrbóta. Mun
stjórnin í samvinnu við fagdeild hjúkrunarforstjóra á sjúkra-
húsum og að áeggjan þeirra setja á stofn nefnd sem mun
taka þetta til athugunar á næstu mánuðum.
Fyrri kannanir
Kannanir á skorti á hjúkrunarfræðingum hafa verið gerðar
með óreglulegu millibili undanfarin ár. Hjúkrunarfélag ís-
lands gerði slíka könnun á árinu 1984 og var spurningalisti
sendur til 52 heilbrigðisstofnana hér á landi. Svör bárust
frá 46 stofnunum eða 88,5%. Samkvæmt könnuninni eru
aðeins nýtt 85,7% stöðugilda hjúkrunarfræðinga. Þannig
mældur var skorturinn því 14,3% árið 1984.1
í könnun Landlæknisembættisins árið 1985 var leitað
upplýsinga um hjúkrunarfræðinga í starfi á sjúkrahúsum og
langdvalarstofnunum. í athuguninni kom í Ijós að á deildar-
skiptum sjúkrahúsum voru 83% stöðugilda notuð og á
geðdeildum 63% stöðugilda. Þar sem stöðuheimildir
hjúkrunarfræðinga höfðu ekki verið ákvarðaðar á mörgum
öldrunarstofnunum, var ekki hægt að lesa úr niðurstöðum
hve marga vantaði til starfa þar. Á heilsugæslustöðvum
voru hjúkrunarfræðingar ráðnir í 95% heimilaðra stöðu-
gilda hjúkrunarfræðinga.2
Hjúkrunarfélag (slands (HFÍ) og Félag háskólamennt-
aðra hjúkrunarfræðinga (Fhh) stóðu saman að gerð könn-
unar á skorti á hjúkrunarfræðingum og sjúkraliðum til
starfa á árinu 1992. Spurningalisti var sendur til hjúkrunar-
forstjóra allra heilbrigðisstofnana hér á landi. Óskað var upp-
lýsinga um stöðuheimildir stéttanna á viðkomandi stofnun,
notkun á stöðugildum og fjölda hjúkrunarfræðinga (mælt í
stöðugildum) í leyfum. Skv. niðurstöðum könnunarinnar
voru 82% stöðugilda hjúkrunarfræðinga setin og skortur á
hjúkrunarfræðingum á heilbrigðistofnunum var því þannig
mældur 18% á árinu 1992. Þó var skorturinn afar mis-
munandi eftir tegund heilbrigðisstofnana. Á öldrunarstofn-
unum voru hjúkrunarfræðingar í 71,6%, á heilsugæslustöðv-
um í 88,2% og á sjúkrahúsum í 82,9% stöðuheimilda. Á
árinu 1992 var því skortur á hjúkrunarfræðingum til starfa
um 18% m.v. heimiluð/áætluð stöðugildi.3
Könnun Félags íslenskra
hjúkrunarfræðinga 1998
í febrúar 1998 sendi Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
spurningalista til hjúkrunarforstjóra allra heilbrigðisstofnana
hér á landi, sem töldust vera 104. Óskað var eftir að fá upp-
lýsingar um eftirfarandi:
1. Setin stöðugildi hjúkrunarfræðinga á stofnuninni
(þ.m.t. stöðugildi hjúkrunarfræðinga í náms-, veikinda- og
barnsburðarleyfum).
2. Hve mörg stöðugildi þar af eru í barnsburðar-, náms-
og veikindaleyfum.
3. Hve marga hjúkrunarfræðinga vantar til starfa miðað
við heimiluð stöðugildi.
4. Hve mörg stöðugildi hjúkrunarfræðinga vantar til
starfa á stofnunina miðað við áætlaða þörf fyrir hjúkrunar-
fræðinga.
Upplýsingarnar skyldu miðaðar við 1. janúar 1998. Sér-
staklega var tekið fram, vegna sameiningar sjúkrahúsa og
heilsugæslustöðva á ýmsum stöðum á landsbyggðinni um
þessi áramót, að óskað var eftir sundurliðuðum upplýs-
ingum frá þessum stofnunum.
Þegar talað er um heimiluð stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga á stofnun er átt við reiknaðan eða áætlaðan fjölda
stöðugilda sem metið er að þurfi m.v. fjölda og hjúkrunar-
þörf skjólstæðinga stofnunar og sem fjárhagsáætlanir mið-
173
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 74. árg. 1998