Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Blaðsíða 2
Bólgueyðandi og verkjastillandi
LYFJAÞRÓUN • HUGVIT • GÆÐI
www.delta.is
Töflur: M 0 1 A E 01. Hvertafla inniheldur: Ibuprofenum
INN 200 mg, 400 mg eöa 600 mg. Ábendingar:
Bólgueyöandi og verkjastillandi lyf, ætlaö til notkunar
viö liðagigt, slitgigt, tíöaverkjum, tannpínu og höfuöverk.
Lyfiö má einnig nota sem verkjalyf eftir minni háttar
aögeröir, t.d. tanndrátt. Skammtar og lyfjagjöf:
Skammtastæröir handa fullorönum: Sjúkdómseinkenni
og lyfjasvörun ákvarða hæfilegan skammt hjá hverjum
einstaklingi. Skammtar eru venjulega 600 - 2000 mg
á dag og ekki er mælt meö stærri dagskammti en 2400
mg. Hæfilegt er að gefa lyfið 3-4 sinnum á dag í
jöfnum skömmtum. Morgunskammt má gefa á fastandi
maga til aö draga fljótt úr morgunstirðleika. Viö
nýrnabilun þarf aö minnka skammta. Skammtastæröir
handa börnum: Venjulegir skammtar eru 20 mg/kg
líkamsþunga á dag, gefið í 3-4 jöfnum skömmtum.
Börnum sem vega innan viö 30 kg skal eigi gefa meira
en 500 mg á dag. Frábendingar: Lyfiö er ekki ætlað
vanfærum konum. Lyfiö skal ekki notaö ef
lifrarstarfsemi er skert. Sjúklingar sem hafa fengið
asma, rhinitis eöa ofsakláöa eftirtöku acetýlsalicýlsýru
eöa annarra bólgueyöandi lyfja (annarra en barkstera),
skulu ekki nota lyfiö. Milliverkanir: Getur aukiö virkni
ýmissa lyfja svo sem blóöþynningarlyfja og
flogaveikilyfja. Aukaverkanir: Ofnæmi (útbrot).
Meltingaróþægindi svo sem niðurgangur og ógleöi.
Lyfiö skal nota meö varúö hjá sjúklingum meö
tilhneigingu til magasárs eöa sögu um slík sár.
Lifrarbólgu hefur veriö lýst af völdum lyfeins (toxiskum
hepatitis). Asmi gegur versnaö viö notkun lyfsins.
Lyfhrif/lyfjahvörf: íbúprófen er bólgueyðandi lyf meö
svipaðar verkanir og acetýlsaIicýlsýra. Hefur
bólgueyöandi, verkjastillandi og hitalækkandi verkun.
Lyfiö frásogast hratt eftir inntöku og helmingunartimi
í blóöi er u.þ.b. 2 klst. Um 60% útskilst í þvagi en 40%
meö galli í saur. Próteinbinding í sermi er um 99%.
Pakkingar og hámarksverö (01.10.01): Töflur 200 mg:
20 stk. (L) 246 kr.; 100 stk. 773 kr. Töflur 400 mg: 30
stk. 532 kr.; 100 stk. 818 kr. Töflur 600 mg: 30 stk. 792
kr.; 100 stk. 1.040 kr. Heimilt er aö selja takmarkað
magn lyfsins í lausasölu, sbr. ofangreinda pakkningu
merkta (L). Mest 20 stk. handa einstaklingi. Hverri
pakkningu skulu fylgja viöurkenndar leiðbeiningar á
íslensku um notkun lyfsins. Handhafi markaösleyfis:
Delta hf. Reykjavíkurvegi 78, Hafnarfiröi 1.11.01.