Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Blaðsíða 50
Vsndasjöður Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. apríl.
"T T innuveitendur greiða sem nemur V 1,5% af fostum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í vísindasjóð Félags Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22.
íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein
eign sjóðsins um áramót er hverju sinni
til úthlutunar. Sjóðurinn er í vörslu
félagsins og skiptist í A- og B-hluta.
A-hluti
j A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins
og skal þeim varið til að greiða hverj-
um sjóðfélaga árlega framlag fyrir
útlögðum kostnaði vegna endurmennt-
unar, rannsóknar- eða þróunarstarfa.
Félagið sér um að greiða úr A-hluta
sjóðsins til félagsmanna á fyrsta árs-
ijórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækja
sérstaklega um framlagið, upphæðin er
lögð inn á bankareikning félagsmanna,
sem hafa gefið upp reiknings- og
bankanúmer sitt hjá félaginu, eða send
með ávísun heim.
Félagsmaður, sem hefúr verið í
fullu starfi tímabilið 1. janúar til 30.
nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á
fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur
unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt
á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag.
Ekki er úthlutað til félagsmanna sem
hófu störf eftir 1. september árið fyrir
úthlutun.
B-hluti
Úr B-hluta vísindasjóðs er þeim 10%,
sem eftir eru af tekjum sjóðsins, varið
til að stuðla að aukinni fræðimennsku í
hjúkrun með því að styrkja rannsóknar-
Vísindasjóður A-hluti
Greiðslur úr A-hluta
vísindasjóös félagsins verða
lagðar beint inn
á bankareikning
félagsmanna í lok
rnars nk.
og þróunarverkefni. Úr þeim hluta er
úthlutað einu sinni á ári.
Úr starfsreglum fyrir B-hluta vís-
indasjóðs
Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að
sjóðnum, geta sótt um sfyrki úr honum
til að sinna fræðimennsku. Umsóknir
skulu metnar af stjórn vísindasjóðs og
sérfróðunr aðilum á hverju sérsviði
hjúkrunar. í þverfaglegunr verkefnum,
sem fleiri en einn aðili sækir um og
ekki eru allir aðilar að sjóðnum, getur
upphæð styrks aldrei orðið hærri en
sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í
verkefninu.
Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta
á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur
við sjóðinn næsta ár á eftir. Loka-
verkefni nemenda í B.S. námi eru ekki
styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða
doktorsgráðu geta verið sfyrkhæf að
uppfylltum almennum skilyrðum enda
sé viðkomandi hjúkrunarfræðingur
aðili að sjóðnum árið sem réttur til
úthlutunar úr A-hluta sjóðsins ávinnst.
Styrkupphæðir verða greiddar út í
áfongum í samræmi við framgang
verksins enda skili styrkþegi inn
áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað
til stjómar vísindasjóðs ásamt niður-
stöðum, t.d. tímaritsgrein.
Vísindasjóður hefur á hverjum tíma
yfirlit yfir allar styrkumsóknir og
styrkveitingar frá stofnun sjóðsins í
janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni
eða því ekki lokið af einhveijum
ástæðum skal styrkþegi gera stjóm
sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og
endurgreiða þann hluta sfyrksins sem
ekki hefúr verið notaður til
verkefnisins.
í umsókn um styrk þurfa að koma
fram eftirfarandi upplýsingar:
Nafn umsækjanda, menntun, starfs-
reynsla og reynsla af rannsóknar- eða
þróunarvinnu.
Greinaskrif:
• Heiti rannsóknar-
verkefnis/þróunarverkefnis.
• Markmið með vinnu verkefnis.
• Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir
hjúkrun/heilbrigðisvísindi.
• Rannsóknaráætlun/verkáætlun.
• Aðferðafræði.
• Heimildaskrá.
• Mælitæki.
• Tímaáætlun.
• Kostnaðaráætlun.
Við mat á styrkhæfhi skulu þessi
atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum:
Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar
eða þróunar? Hvert er mikilvægið?
Er framsetning markmiða skýr?
Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í
samræmi við markmið? Er nauðsynleg
aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking
umsækjanda fullnægjandi? Er
kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug?
Er hægt að fella niður eða lækka
einhverja kostnaðarliði, hvernig?
Almennar athugasemdir um
umsókn og verkefni.
Hver ofangreindra þátta verði
metinn samkvæmt ákveðnum kvarða,
t.d. 0-5, til að auðvelda mat og
ákvarðanatöku við styrkveitingar.
Styrkir úr vísindasjóði
geta nýst til að Ijúka
verkefnum til kynningar
á ráðstefnum.
50
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002