Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Blaðsíða 13
Ásta Thoroddsen, lektor í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands og klínískur sérfræðingur í hjúkrun á
Landspítala-háskólasjúkrahúsi og Kristín Þórarinsdóttir, lektor í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akur-
eyri og verkefnastjóri í skráningu hjúkrunar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
Samræmt fagmál í hjúkrun:
notkun hjúkrunargreininga í klínísku starfi*
Lykilhugtök: hjúkrunarskráning; hjúkrunargreiningar; flokkunarkerfi
Útdráttur
NANDA-hjúkrunargreiningar hafa verið þýddar á íslensku og
nýleg tilmœli Landlœknisembœttisins um lágmarksskráningu
vistunarupplýsinga gera ráð fýrir notkun NANDA-hjúkrunar-
greininga við skráningu hjúkrunarvandamála.
Gerð var lýsandi, afturvirk rannsókn á hjúkrunargrein-
ingum í hjúkrunarskrám 1103 sjúklinga á endurhœfingar- og
taugalækningadeild og tveimur lyflœkningadeildum. Tilgangur
rannsóknarinnar var að kanna hvort skráðar hefðu verið
hjúkrunargreiningar fyrir sjúklinga, algengi þeirra almennt og
i ákveðnum sjúklingahópum og hvort þœr vœru samkvæmt
flokkunarkerji NANDA.
Fyrir greiningu gagna þróaði aðalrannsakandi kvarða
sem byggist á PES-viðmiðunum. Sjúkraskrár án hjúkrunar-
greininga voru 40%. Alls var 2171 hjúkrunargreining í úrtak-
inu. Hver hjúkrunargreining var flokkuð út frá heiti hennar,
skráðum einkennum og orsakaþáttum. Nœrri 60% hjúkrunar-
greininga voru samkvœmt flokkunarkerft NANDA. Alls komu
88 mismunandi tegundir hjúkrunargreininga jýrir í úrtakinu.
Fimm algengustu hjúkrunargreiningarnar voru breyting á
líðan, skert sjálfsbjargargeta, skert líkamleg hreyjigeta, and-
leg vanlíðan og hœgðatregða. Stœrsti sjúklingahópur i úrtak-
inu hafði sjúkdómsgreininguna „cerebrovascular accident
Þrír jjórðu greininganna flokkuðust undir þrjá heilsufars-
lykla: sjálfsbjörg, hreyjingu, virkni og þjálfun; vistmuni og
skynjun; og næringu, efnaskipti og húð. Skráning líkamlegra
hjúkrunarvandamála er því í miklum meirihluta.
Rannsóknin bendir sterklega til þess að hjúkrunargrein-
ingar auk sjúkdómsgreininga dragi upp mun heildstæðari og
skýrari mynd af heilsufarslegu ástandi sjúklinga en sjúkdóms-
greiningin ein.
Unified nursing language: Utilization of
nursing diagnoses in clinical practice
Abstract
NANDA nursing diagnoses have been translated into Icelandic
and recent recommendation by the Directorate General in
Health has suggested use of NANDA diagnoses for docu-
mentation of patients’ problems. A retrospective chart review
was conducted and 1103 nursing charts from patients on a
neuro-rehabilitation unit, and two internal medicine units ana-
lyzed. Charts without nursing diagnoses were 40%. The nursing
diagnoses statements analysed were 2171. The purpose of the
study was to explore if nursing diagnoses had been documented
for admitted patients, prevalence in general and in certain
patient groups and if they were according to the NANDA
taxonomy. For the analysis of data the principal investigator
developed a grading scale based on the PES criteria. Each
nursing diagnosis was classified according to the label, signs
and symptoms and etiology factors documented. Almost 60% of
the nursing diagnoses were according to the NANDA taxonomy.
Eighty-eight dijferent types of diagnoses were in the sample.
The most prevalent nursing diagnoses were altered comfort, self
care deficit, impaired physical mobility, emotional discomfort,
and constipation. The largest patient group in the sample had
been diagnosed with cerebrovascular accident. Three quarters
Ásta Thoroddsen lauk meistaraprófi í hjúkrunarfræði ffá University of Rochester, Rochester, New York, árið 1989. Hún er lektor við hjúkrunar- fræðideild Háskóla lslands, starfar með þróunarhópi um skráningu hjúkrunar á Landspítala-háskólasjúkrahúsi og er ráðgjafi hjá eMR. astat@hi.is
fpw' Kristín Þórarinsdóttir, lauk BSc prófi í hjúkrunarfræði frá HÍ 1985 og meistaraprófi i hjúkrunarfræði frá Manchesterháskóla - Háskólanum á Akureyri 2002. Hún er lektor við Háskólann á Akureyri og verkefnastjóri í skráningu hjúkrunar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. kristin@unak.is
* Ritrýnd grein
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 1. tbl. 78. árg. 2002
13