Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Blaðsíða 40

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.03.2002, Blaðsíða 40
Steinasafnið frá Sigurborgu Einarsdóttur. nú nægan tíma. „Hvar ætti það svo sem að vera?“ spurði Ingibjörg. „Nú, þú gætir farið hér yfir ganginn, þar er boðið upp á ýmis námskeið,“ var svarið. „Og hver er með það?“ spurði hún. „Það er hjá öldruðum,“ var svarið. Ingibjörg segist hafa haldið að hún yrði ekki eldri við þetta svar. Hún hafi þó ákveðið að spyrjast íyrir um námskeið, enda orðin 71 árs, og innritað sig í tvö þeirra, byrjaði íyrst í postulínsmálun hjá Ingrid Hlíðberg og svo í glernámskeiði hjá Rebekku Gunnarsdóttur. Hjá þeim var hún svo næstu árin og segist vera þakklát íyrir góða kennslu. í fyrravetur var Ingibjörg í glerbrennslu og leirmótun á námskeiðum hjá Glit og í vetur sækir hún postulínsnámskeið hjá Félagsmiðstöðinni í Hraunbæ 105, en heldur áfram að vinna við glerið heima og á til þess öll nauðsynleg áhöld og verkfæri. A jólafundinum lagði Ingibjörg áherslu á að sá áhugi sem hjúkrunarfræðingarnir sýndu henni með því að spyrja hvort henni leiddist ekki hefði haft í for með sér að hún hefði átt ótal ánægjustundir í föndrinu. „Mér fannst þeim ekki vera sama og það kom við mitt litla hjarta. Mig langar því til að hvetja hjúkrunarfræðinga t.d. til að rabba við gamla fólkið, spyrja hvað það hafi íyrir stafni, hvort það eigi ekki einhver áhugamál, láta það finna að ykkur er ekki sama hvemig því líður. Bara það að fara út úr húsi, hitta aðra, spjalla, fá jafnvel einhvem til að hlusta - umfram allt, látið ykkur ekki vera sama fremur en vinum mínum á Vesturgötunni.“ A þeim átta árum sem liðin eru frá því hún skráði sig á fyrsta námskeiðið hefúr hún því unnið við ótal verk eins og heimili liennar ber vott um. I blómaskála hanga glermyndir í gluggum og i glugga- kistum eru fallegir glerlampar. I eldhúsinu er gamaldags rekkur með fallega máluðum postulínsdiskum. í hillu þar eru jóla- sveinar og jólakerlingar, ýmist unnir úr gleri, leir eða hand- málað postulín. í stofú er hvitur handmálaður postulínslampi og stór vasi með sama mynstri, nokkrir minni vasar og tveir lampar skreyttir íslenskum agatsteinum, ópölum og jaspis. „Þessir fallegu steinar eru gjafir frá góðri vinkonu minni, Sigurborgu Einarsdóttur, fyrrum hjúkrunarforstjóra í Heilsu- gæslustöðinni á Eskifirði. Hún hefúr gefið mér marga fallega steina og á mjög fallegt steinasafn. Hún og maður hennar, Sören Sörensen, klifra um öll fjöll á Austfjörðum og safna steinum. Þegar heim er komið þvo þau þá og hreinsa og setja í hillur og poka, suma kljúfa þau niður, slipa í tromlu með misgrófum sandi eða skera í sneiðar.“ Við hliðina á skrifborði Ingibjargar er falleg stytta af konu í hvíldarstellingu. Þessa styttu gerði Ingibjörg af Nönnu Jónasdóttur vinkonu sinni sem sat fýrir hjá henni. Hún var fyrst mótuð í leir og síðan unnin í gifs. Aðspurð um hvor hana hafi aldrei langað að fara í listnám segir hún að tiúlega hafi Hiuti aflistmunum sem /ngibjörg hefur unnið, m.a. skálarnar á borðinu, lampinn, leirvasinn og kertastjakinn. löngunin aldrei verið nógu sterk enda ólíkir tímar og færri tækifæri en nú er. En hún hafi alltaf haft gaman af að mála og alla tið sinnt alls konar handiðn. Hún segir foreldra sína hafa verið mikið handverksfólk, faðir hennar hafi verið handa- vinnukennari og móðir hennar unnið mikið við hannyrðar svo hún hafi fengið heilmikla tilsögn frá þeim, hún hafi hins vegar ekki fengið beina menntun í myndlist. Ingibjörg var eina stelpan í barnahópnum, átti fimm bræður og segist hafa verið alin upp eins og strákur og stelpa, lærði að sauma, prjóna og hekla í barnaskólanum en heima lærði hún smíðar og að mála og veggfóðra eins og strákarnir. „Kunni ekki einu sinni að skipta á bleyju“ Ingibjörg hefur sinnt fleiru en listgyðjunni eftir að hún fór á eftirlaun. „Nokkrum mánuðum eftir að ég hætti að vinna var ég beðin um að passa lítinn frænda minn, Magnús Friðrik, nokkurra mánaða gamlan, hann var með eymabólgu og gat ekki verið hjá dagmömmu. Þegar bróðurdóttir mín, móðir Magnúsar litla, hringdi til mín og spurði hvort ég gæti gætt hans íyrir sig á daginn vom mín fýrstu viðbrögð að segja: „Drottinn minn dýri, 40 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 78. árg. 2002
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.