Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Page 28

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Page 28
í þessu skyni fór fram ítarleg umræða innan FLE, stjórnin kynnti sér stöðu þessara mála í nágrannalönd- um okkar og tók upp viðræður við hagsmunaaðila um málið. Niðurstaðan varð sú, að í samstarfi við fjármála- og viðskiptaráðuneyti var samið frumvarp til breytinga á lögum nr. 51/1968 um bókhald. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir að við lögin bætist nýr kafli er fjalli um Reikningsskilaráð og góða reikningsskila-venju. Reikningsskilaráð skal skipað fimm sérfróðum mönnum skipuðum til fjögurra ára í senn. Skal einn nefndarmanna til-nefndur af Félagi lög- giltra endurskoðenda, annar af viðskipta-deild Háskóla íslands, þriðji af Verslunarráði íslands, sá fjórði skal vera Ríkisendurskoðandi, en einn nefndarmaður er skipaður af ráðherra án tilnefningar. Hlutverk Reikn- ingsskilaráðs skal vera að stuðla að mótun góðrar reikningsskilavenju með útgáfu og kynningu sam- ræmdra reglna, sem farið skal eftir við gerð reikn-ings- skila. Einnig skal ráðið gefa álit á því, hvað telst vera góð reikningsskilavenja á hverjum tíma. Reikningsskil- aráð skal samkvæmt ákvæðum frumvarpsins árlega auglýsa í Lögbirtingar-blaðinu skrá yfir útgefnar reglur og álit og skal starfa í nánu samráði við Félag löggiltra endurskoðenda og hagsmunaaðila. Þegar þetta er ritað standa vonir til að frumvarpið verði lagt fram á Alþingi haustið 1991. í>að er álit stjórnar FLE að ákvæði frumvarpsins bæti úr flestum þeim ágöllum sem verið hafa á málsmeðferð þeirri, sem nýjar reikningsskilaaðferðir þurfa að fá, áður en þær hljóta viðurkenningu sem góð reikningsskilavenja og vikið hefur verið að í greininni hér að framan. Á það ber að lokum að leggja áherslu, að til þess að Reikningsskilaráð nái markmiði sínu, þurfa að veljast til setu í ráðinu hæfir menn sem einvörðungu hafa fag- leg vinnubrögð að leiðarljósi í störfum sínum. Takist vel til um val manna í ráðið er ég þess fullviss að störf Reikningsskilaráðs muni auka enn á samræmi í gerð reikningsskila hér á landi, þannig að lesendur ársreikn- inga geti frekar en áður treyst á áreiðanleika og saman- burðarhæfni þessara talnafrásagna rekstrareininga af rekstri sínum og stöðu. 28

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.