Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Síða 33
er þá miðað við samskonar eignir, sem hafa verið not-
aðar við svipuð skilyrði.
AFSKRIFTARAÐFERÐ
Afskriftir er sú fjárhæð sem er skipt á hvert reiknings-
skilatímabil eftir líftíma eignarinnar og er farið eftir fyr-
irfram ákveðnum aðferðum.
Nauðsynlegt er að beita ávallt sömu afskriftaraðferð
og valin var í upphafi, án tillits til hagnaðarstigs fyrir-
tækisins og skattaskilyrða en það er gert til þess að
tryggja samanburðarhæfni við mat á árangri fyrirtækis-
ins frá einu tímabili til annars.
LAND OG FASTEIGNIR
Land hefur venjulega ótakmarkaðan líftíma og er yfir-
leitt ekki skilgreint sem fyrnanleg eign. Samt sem áður
mætti hugsa sér að meðhöndla land sem fyrnanlega
eign ef líftíminn er ekki óendanlegur.
Fasteignir eru fyrnanlegar eignir vegna þess að þær
hafa takmarkaðan líftíma.
í sumum tilfellum er fasteign ekki talin fyrnanleg
eign af þeirri ástæðu að verðmæti hennar og þess lands
sem fasteignin stendur á, er ekki talið fara lækkandi.
Þar sem land og fasteignir eru aðskildar eignir, hefur
verðhækkun á landi ekki áhrif á afskriftaraðferðir fast-
eigna sem á landinu standa.
SKÝRINGAR
Val á afskriftaraðferð og mat á líftíma fyrnanlegra
eigna verður alltaf matsatriði.
í skýringum skal þess alltaf getið hvaða aðferð er
notuð við útreikning afskrifta svo og um áætlaðan end-
ingartíma eða afskriftarhlutfall, þannig að lesanda
reikningsskilanna sé ávallt ljóst hvaða aðferðum er
beitt. Petta er nauðsynlegt til þess að hægt sé að sjá
hvaða stefnu stjórnendur fyrirtækisins hafa valið og
gerir einnig mögulegan samanburð á milli fyrirtækja.
Af sömu ástæðu er nauðsynlegt að skýra frá afskrift-
um á tilteknu tímabili svo og uppsöfnuðum afskriftum í
lok tímabilisins.
ALÞJÓÐLEGUR REIKNINGSSKILASTAÐALL NR. 4.
AFSKRIFTIR í REIKNINGSHALDI
Alþjóðlegur reikningsskilastaðall nr. 4 nær yfir grein-
ar 13 -19 og skal lesa í samhengi við inngangsorð að al-
þjóðlegum reikningsskilastöðlum.
13. Afskriftum fyrnanlegrar eignar skal skipt á kerfis-
bundinn hátt á hvert reikningsskilatímabil eftir end-
ingartíma hennar.
14. Afskriftaraðferð sem valin er, skal notuð frá einu
tímabili til annars nema breyttar aðstæður réttlæti
breytingar. A því tímabili þegar breytt er um að-
ferð, skulu áhrif breytingarinnar reiknuð út og skal
greint frá þeim í skýringum, og einnig skal gerð
grein fyrir ástæðu fyrir breyttri aðferð.
15. Líftími fyrnanlegrar eignar er metinn eftir athugun
á eftirfarandi atriðum:
(a) væntanlegum endingartíma,
(b) (tæknilegri) úreldingu,
(c) lagalegum eða öðrum takmörkunum á notkun
eignarinnar.
16. Líftíma aðalfyrnanlegra eigna fyrirtækis ætti að yf-
irfara á vissum fresti og endurmeta afskriftarhlut-
fallið í nútíð og framtíð ef væntingar eru um miklar
breytingar frá því sem verið hefur. Áhrif breytinga
ættu að koma fram í skýringum með reikningsskil-
unum á því tímabili þegar breytingin á sér stað.
17. Matsreglur sem eru notaðar til þess að ákveða þær
fjárhæðir sem fyrnanlegar eignir eru skráðar á, ættu
að koma fram í skýringum um reikningsskilaaðferð-
ir eins og fram kemur í alþjóðlegum reikningsskila-
staðli nr. 1.
18. Eftirfarandi atriði varðandi alla helstu flokka
fyrnanlegra eigna ættu að koma fram í skýringum
með reikningsskilum fyrirtækis:(a) hvaða afskrifta-
raðferð er notuð,
(b) við hvaða líftíma eða afskriftarhlutfall er mið-
að,
(c) hvaða fjárhæð er færð sem afskrift á því tímabili
sem reikningsskilin ná yfir,
(d) hvert er heildarverð fyrnanlegra eigna svo og
uppsafnaðar afskriftir.
GILDISTÖKUDAGUR
19. Þessi alþjóðlegi reikningsskilastaðall gildir um þá
ársreikninga sem ná til reikningsára sem hefjast 1.
janúar 1977 eða síðar.
33