Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Page 36
reikningsskiladegi. Viðskiptakröfur sem koma til
greiðslu á lengri tíma en einu ári er heimilt að telja
meðal veltufjármuna ef gerð er grein fyrir þeim í
skýringum með reikningskilum.
(d) Vörubirgðir.
(e) Fyrirframgreiðslur vegna veltufjármuna.
(f) Fyrirframgreiddur kostnaður sem kemur til gjald-
færslu innan eins árs frá dagsetningu reikningsskila.
Skammtímaskuldir:
22. Meðal skammtímaskulda eiga að vera skuldir sem
gjaldfalla og skuldir sem koma til greiðslu innan
eins árs frá dagsetningu reikningsskila:
(a) Bankalán og önnur rekstrarlán. Lán sem samið
hefur verið um endurgreiðslu á við lánveitanda er
heimilt að telja með skammtímaskuldum þó að
formlegur lánssamningur kveði á um heimild til
gjaldfellingar lánsins.
(b) Næsta árs afborganir af langtímaskuldum nema
því aðeins að þær séu skv. 23. grein.
(c) Viðskiptaskuldir og ógreiddur kostnaður.
(d) Ógreiddir reiknaðir skattar (Sjá alþjóðlegan
reikningsskilastaðal nr. 12 Accounting for Taxes on
Income).
(e) Ógreiddur arður.
(f) Fyrirframinnheimtar tekjur frá viðskiptamönnum.
(g) Ógreiddur kostnaður vegna atburða eftir reikn-
ingsskiladag. (Sjá alþjóðlegan reikningsskilastaðal
nr. 10 Contingencies and Events Occurring After
the Balance Sheet Date).
23. Sá hluti af langtímaskuldum sem fellur til greiðslu
innan eins árs kann að vera settur fram meðal lang-
tímaskulda ef endurfjármögnun stendur fyrir dyr-
um og fyrir liggur með nokkuð öruggum hætti að
sú endurfjármögnun nái fram að ganga. Framsetn-
ing með þessum hætti kallar á annað hvort:
(a) Aukningu hlutafjár eða samninga um langtíma-
skuldbindingu eftir dagsetningu reikningsskilanna.
(b) Óriftanlegum samningum um fjármögnun sem
fellur ekki úr gildi innan eins árs frá dagsetningu
reikningsskilanna og að lánveitandinn eða fjárfestir
geti fjárhagslega efnt samninginn.
24. Pegar fyrirtæki flokka einstakar skuldir utan
skammtímaskulda, sbr. grein nr. 23, ber að gera
grein fyrir upphæðum og skilmálum endurfjár-
mögnunar í skýringum með reikningsskilum.
Framsetning í efnahagsreikningi:
25. Einstaka liði veltufjármuna má ekki lækka með því
að draga einstaka liði skammtímaskulda frá, eða
öfugt, nema þegar lagalega liggur fyrir forsenda til
skuldajöfnunar og að slík skuldajöfnun sé í vænd-
um.
26. Innborganir á verk og aðrar fyrirframgreiðslur má
draga frá verkum í vinnslu meðal veltufjármuna ef
skýring fylgir með í reikningsskilum til samræmis
við alþjóðlegan reikningsskilastaðal nr. 11
(Accounting for Construction Contracts.)
27. Heildarniðurstaða veltufjármuna og skammtíma-
skulda á að koma fram í efnahag>reikningi.
Gildistökudagur:
28. Pessi alþjóðlegi reikningsskilastaðall gildir um þá
ársreikninga sem ná til reikningsára sem hefjast 1.
janúar 1981 eða síðar.
36