Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Side 40

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Side 40
Hjörleifur Pálsson löggiltur endurskoðandi Alþjóðlegur reikningsskilastaðall IAS 23 UM EIGNFÆRSLU FJÁRMAGNSKOSTNAÐAR „Capitalisation of Borrowing Cost" Efni staðals og skilgreiningar. Alþjóðlegur reikningsskilastaðall númer 23 fjallar um eignfærslu fjármagnskostnaðar í ársreikningum fyrir- tækja, sem hluta af kostnaðarverði tiltekinna fjárfest- inga. Ekki skiptir máli hvort fjárfestingin er ætluð til notkunar innan fyrirtækisins sjálfs eða til þess að selja öðrum. Staðallinn nær til fjárfestinga þar sem tiltölulega langur tími líður frá því að fyrst er lagt í kostnað vegna þeirra, og þar til þær eru komnar í tekjuöflunarhæft ástand, eða tilbúnar til sölu. Með fjármagnskostnaði er átt við þann kostnað sem fyrirtæki þarf að bera í tengslum við lántökur. Þar með talið afföll eða yfirverð útgefinna skuldabréfa, lántöku- kostnað og hugsanlegan gengismun. Staðallinn gerir ekki þá kröfu að fjármagnskostnaður á byggingartíma sé eignfærður. Staðallinn mælir fyrir um að fyrirtæki sem bera fjár- magnskostnað í tengslum við þær fjárfestingar sem um ræðir, taki afstöðu til þess hvort þessi kostnaður skuli eignfærður eða ekki. Sé sú afstaða tekin að eignfæra fjármagnskostnað þá á að beita þeim aðferðum sem staðallinn mælir fyrir um. Rök með og á móti eignfærslu fjármagnskostnaðar. 1. Gjaldfæra allan fjármagnskostnað; Fjármagnskostnaður tengist starfsemi fyrirtækja í heild og hann er því ekki hægt að eyrnamerkja öflun einstakra eigna. Hjá fyrirtæki sem fjármagnar eignir með eigin fé er þessi kostnaður ekki fyrir hendi. Rök á mótieru að allir peningar „kosta“ án tillits til þess hvort um er að ræða lánsfé eða eigið fé. Ekki er hægt að tala um kostnaðarverð eigna ef sá kostn- aður sem hlýst af fjárbindingu er ekki innifalinn. 2. Eignfæra þann fjármagnskostnað sem raunverulega fellur til á byggingartíma og tengist framkvæmdum; Fjármagnskostnaður sem fellur til á byggingartíma er hluti af því að fullgera eign og er sögulegur kostn- aður rétt eins og laun, efni og annað sem til fellur í tengslum við framkvæmdir. Ef eign erkeypt af utanaðkomandi aðila, í stað þess að fyrirtæki búi hana til sjálft, hlýtur kaupverð- ið í flestum tilfellum að fela í sér þann kostnað sem hlýst af notkun lánsfjár í tenglum við byggingu eign- arinnar. • Ef fyrirtæki heimasmíðar eign og eignfærir þann fjármagnskostnað sem rekja má til þess, verður betra samræmi í kostnaðarverði þar sem ekki skiptir þá lengur máli hvort eignin er keypt tilbúin eða hvort hún er heimasniíðuð. Rök á mótieru að eignfærsla fjármagnskostnaðar leiði til mismunandi kostnaðarverðs sambærilegra eigna á milli fyrirtækja eftir þvf hvemig fjármögnun er háttað og eftir því hvaða stefnu fyrirtækið aðhyll- ist í eignfærslu. 3. Eignfæra allan kostnað af fjárbindingu á byggingar- tíma, hvort sem utanaðkomandi vaxtakrafa verður til eða ekki. Hagfræðilegt hugtak sem byggir á því að allar framkvæmdir feli í sér kostnað af notkun fjármagns, hvort sem um er að ræða eigið fé eða lánsfé. Fjár- magnskostnaður hvort sem hann er reiknaður eða byggir á utanaðkomandi kröfu er hluti af kostnaðar- verði eigna sem taka þarf tillit til. Það sem mælir gegn þessu sjónarmiði er að reikn- aðir vextir vegna eiginfjármögnunar eru huglæg 40

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.