Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Side 45

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1991, Side 45
REIKNINGSSKILANEFND FLE Að ósk ritnefndar tímaritsins skal hér stuttlega gerð grein fyrir verkefnum reikningsskilanefndar félagsins á síðustu misserum. Um þessar mundir vinnur nefndin að nokkrum verk- efnum. í fyrsta lagi var henni falið á síðasta aðalfundi að gera úttekt á reikningsskilum sem félagsmenn sendu til nefndarinnar. Stjórn félagsins stendur fyrir þessari könnun og var hugmynd stjórnarinnar sú að gera eins konar gæðakönnun á reikningsskilum sem félagsmenn hafa unnið að. Úttektin tekur einnig til reikningsskila þeirra fyrirtækja sem selja hlutabréf á þeim almenna markaði sem hér á landi hefur orðið til á síðustu árum. Tilgangur þessarar könnunar er fyrst og fremst að fá úr því skorið hversu samanburðarhæf reikninsskil þau eru, sem félagsmenn vinna að. Á þessari stundu er ekki unnt að skýra frá því, hvort þessi könnun nái tilgangi sínum, en fyrirhugað er að niðurstöður könnunarinnar verði birtar á aðalfundi félagsins í nóvember næstkom- andi. Nefndin hefur jafnframt í hyggju að senda hverj- um þátttakenda umsögn um þær skýrslur sem nefndin fékk til skoðunar. í annan stað vinnur reikningsskilanefndin að því að semja leiðbeinandi reglur um þau viðfangsefni sem hún hefur tekið sér fyrir hendur á síðustu árum. Eins og fé- lagsmönnum er kunnugt hefur nefndin birt álitsgerðir um ýmis efni, en nú er ætlan nefndarinnar að draga efni þeirra saman í styttri yfirlýsingar í þá veru sem Alþjóð- lega reikningsskilanefndin gerir. f>au efni sem hér um ræðir varða kaupleigusamninga, bókun hlutabréfa og skuldabréfa, áhrif verðbólgu á reikningsskil fyrirtækja, sjóðsstreymi og fjármagnsstreymi, gerð árshlutareikn- inga og meðferð óreglulegra rekstrarliða og reglubreyt- inga. Þriðja verkefnið sem nefndin vinnur nú að varðar með- höndlun tekjuskatts í reikningsskilum fyrirtækja. Á síð- ustu tveimur árum eða svo hefur borið á því að fyrir- tæki færi svonefndar frestaðar skattskuldbindingar. Um það efni hefur þó lítið verið fjallað hér á landi. Af þeim sökum telur nefndin rétt að greina frá hugmyndum sín- um í þessu efni, en þar er að auki stuðst við yfirlýsingar Alþjóðlegu reikningsskilanefndarinnar. Á síðasta ári sendi nefndin frá sér stuttar álitsgerðir um meðhöndlun kvóta í reikningsskilum, formbreytingar á reikningsskilum sveitarfélaga, bókun skuldabréfa hjá verðbréfasjóðum og frásögn af fjármagnskostnaði í reikningsskilum 1990. Um fyrstu tvö álitaefnin höfðu starfað vinnuhópar sem skiluðu umsögnum til nefndar- innar. Þær gerði nefndin í flestum greinum að sínum og voru álitsgerðir síðan sendar til félagsmanna. Þá stóð nefndin fyrir ráðstefnu um nokkur álitaefni reikningsskila á síðastliðnu hausti í samráði við mennt- unarnefnd félagsins. Þau efni sem tekin voru til skoð- unar voru þessi: 1) meðhöndlun kvóta í reikningsskilum, 2) birgðamat hjá sjávarútvegsfyrirtækjum og í fiskeldi, og 3) drög að leiðbeinandi reglum um reikningsskil fyrir- tækja verðbólguaðstæður. Eins og félagsmönnum er kunnugt hefur nú verið lagt fram frumvarp á Alþingi til breytingar á lögum um bók- hald. Þetta frumvarp er flutt að frumkvæði stjórnar fé- lagsins og er það gert í beinu framhaldi ráðstefnu fé- lagsins á síðastliðnu ári. Sú ráðstefna fjallaði um þá spurningu, hver ætti að móta góða reikningsskilavenju og var það mál manna að fleiri aðilar en endurskoðend- ur þyrftu að eiga aðild að mótun þessarar venju. Verði frumvarpið að lögum er ljóst að finna verður viðeignadi starfsvettvang fyrir reikningsskilanefndina. Til álita gæti komið, að nefndin sendi erindi til þess reikings- skilráðs, sem mynda á skv. frumvarpinu. Einnig gæti nefndin verið umsagnaraðili félagsins um fyrirhugaðar álitsgerðir ráðsins. Loks gæti nefndin unnið að sjálf- stæðum álitsgerðum og óskað eftir, að ráðið taki þær til umfjöllunar. 45

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.