Ráðunautafundur - 14.02.1978, Page 61
355
þar sem ormalyf voru gefin, enda var hin stöðuga ormalyfja-
gjöf þá farin að draga úr smitinu. Áhrif ormasýkingarinnar
á þunga lambanna kemur greinilega fram á línuriti 2_.
Blönduð beit:Blandaða beitin var ekki rannsökuð með
tilliti til sníkjudýra. Hvað sníkjudýr varðar þá kemur
blönduð beit kálfa og kinda út sem dreifðari beit hvorrar
tegundar fyrir sig, þar sem aðeins fáar tegundir orma eru
þeim sameiginlegar og það eru ormategundir er minna máli
skipta. Þrif kálfa og kinda á blönduðu beitinni voru yfir-
leitt heldur skárri sé miðað við heildarbeitarþunga.
UMRÆÐUR.
Það dylst engum sem skoðar línurit 1 og 2 að ormar hafa
greinileg og mikil áhrif á þrif kálfa og lamba. Þó eru gripir
þeir er fengu ormalyf engan veginn alveg lausir við áhrif orma,
og munur sá er kemur fram á línuritunum er munur milli mikið
sýktra dýra.og minna sýktra dýra.
Þessar tilraunir sýna fyrst og fremst hvernig farið getur
þegar þröngt er beitt og ekki er tekið tillit til ormasmitsins.
Ef ekki er að gætt getur það orðið til þess að kálfa- og sauð-
fjárrækt á þröngu landi verði óframkvæmanleg. Með ormalyfja-
gjöf hálfsmánaðarlega allt sumarið ár ef-tir ár er greinilega
hægt að halda ormasmitinu í skefjum og fá góð þrif, en slíkt
er auðvitað óframkvæmanlegt í venjulegum búskap.
Er þá hægt að fá fram viðunandi þrif á gripum á þröngri
sumarbeit, án þess að kostnaður og fyrirhöfn fari úr hófi fram?
Um það eru til ákveðnar hugmyndir byggðar á því er fram hefur
komið í tilraununum á Hvanneyri, svo og á reynslu og rannsókn-
um erlendis frá. Ætlunin er að breyta tilraununum á Hvann-
eyri næsta sumar og kanna notagildi ákveðinna beitarkerfa er
ste/na að því að fá fram viðunandi þrif á gripum á þröngri
beit, án of mikils kostnaðar og fyrirhafnar. Hugmyndirnar
byggjast á því að rjúfa lífsferla sníkjuormanna með beitar-
skiptum og takmarkaðri ormalyfjagjöf. Einnig er ætlunin að
reyna þar ný ormalyf. Það er nauðsynlegt að gildi slxkra beit-
arkerfa sé vel könnuð, áður en farið verður að beita kálfum
og lömbum í stórum stíl á þrönga sumarhaga.