Ráðunautafundur - 12.02.1983, Page 74
134
þessarra áburðartegunda á Sólheimasandi og í Gunnarsholti var
tilefni þeirra tilraunat sem hér greinir frá.
Tilgangur tilraunanna var að kanna, hvort reynslan hefði
viö rök að styðjast og greina hvort um væri að ræða svörun við
brennisteini eða kalki eða hvoru tveggja. Loks var hugmyndin
að fá nánari vitneskju um magnþörf þessarra efna, ef einhver
væri. Brennisteinsþörfin var augljós af almennri reynslu en
kalkþörf á sandatúnum var hins vegar síður en svo sjálfsögð.
Var ekki síst talin ástæða til þess að kanna svörun við jafn
litlum kalkskömmtum og fylgja blandaða áburðinum.
1. LÝSING TILRAUNA.
Tilraunalandið var fyrst ræktað um 1969. Túnið var endur-
raektað 1975 og sáð blöndu af vallarfoxgrasi 60% og túnvingli
40%. áöur voru hafrar í spildunni í nokkur ár.
áburður hefur verið Græðir 4 (23-14-9), 600 kg/ha árlega
til ársins 1981, en þá voru notuð 700 kg/ha af Græði 7 (20-10-
l0+4Ca+lS) .
í tilraun 593-82 eru vaxandi skammtar af kalki 0, 50, 100,
500 kg/ha árlega og 2000 kg/ha til 4 ára. Við hvern kalkskammt
eru reyndir 3 skammtar af brennisteini f kaliumsúlfati 0, 6 og
12 kg/ha S. Kalímagn er jafnt á öllum reitum, jafnað út meö
kalLklórfði. Grunnáburður er 140 N, 37 P og 75 K í Græði 4
(609 kg/ha) og kaltáburði (a. 59 kg kaliklórið (0S), b. 35 kg
kalisúlfat + 29 kg kaliklórið (6 S), eöa c. 71 kg/ha kalisúlfat
(12 S)).
f tilraun 594-82 eru bornar saman þrjár tegundir af
blönduðum áburði. f þeim er N, P og K i' sömu hlutföllum, en
þær eru mismunandi hvað snertir magn af brennisteini og kalki.
Tegundirnar eru:
Græðir 4 (23-14-9)
Græðir 4a (23-14-9+2S)
Græðir 7 (20-12-8+4Ca+lS)
Af hverri áburðartegund eru reyndir þrír skammtar, sem
svarar 60, 120 og 180 kg/ha af N.
Borið var á tilraunirnar 13. maí 1982. Skeljakalkið og
hluti af grunnáburöinum var þó borinn á tilraun nr. 593-82
þann 28. maí. Þessi hluti af grunnáburöinum var sem svarar