Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 12

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 12
12 13 Heilagur Agústínus sagði að ritningin kenndi í raun ekkert nema kærleika. Sérhvert ritningarorð ætti að skoða vandlega þar til við hefðum skilning á því hvernig samúð og kærleikur væru kjarninn í því. Glíman við að finna samúð og kærleika í þessum gömlu og oft flóknu textum er allavega góð æfing til að takast á við lífið með hið sama að leiðarljósi. Gerum við það almennt? Er samúð og kærleikur meginstefið í okkar hegðun og það sem mótar okkar viðhorf? Eða getur verið að það skipti nú mestu máli fyrir fólk að hafa rétt fyrir sér í einu og öllu? Vita best, kunna betur, já hafa rétt fyrir sér. Hvort er betri leiðbeining og undirbúningur fyrir lífið fyrir fermingarbörn að setja í fyrsta sæti að hafa alltaf rétt fyrir sér eða að sýna öllum samúð og kærleika? Það er sagt að það sé gott að vera með fólki sem leitar sannleikans en stórvafasamt að dvelja lengi hjá þeim sem hafa fundið hann. Gullna reglan er ekki bara leiðbeining um hvernig við eigum að koma fram við okkar nánustu.. Okkur er kennt að hún eigi alltaf að eiga við og gilda gagnvart öllum. Og það er ekki einkamál kristinna manna. Um hið sama má lesa í gömlum kínverskum ritum. “Jian ai, umhyggja fyrir öllum” Það þarf ekki mikla fjarlægð til að allt slíkt sé gleymd. Svokölluð athugasemdakerfi á netinu birta ekki sérlega fallega mynd af viðhorfum til annarra. Það mæti gjarnan biðja um smá slurk af Jian ai inn á þann vettvang. Kannski má einnig spyrja hvort við gætum nægilega vel að Gullnu reglunni þegar kemur að samskiptum okkar sem berum mikla ábyrgð innan hinnar íslensku þjóðkirkju. Standast okkar orð og athafnir alltaf gullnu reglunna? Elskum við þau sem eru ósammála okkur? Þessu svarar að sjálfsögðu hver og einn fyrir sig. En það er þetta með aðra. Tilhneigingu til að skilgreina allt út frá okkur og hinum. Það sé allt í lagi að koma fram við hina öðruvísi en okkur. Það má velta því fyrir sér að hebreska orðið fyrir hinn heilaga þegar átt er við Guð er Kadosh, hið aðgreinda eða annað. Undanfarið hefur verið mikið af fréttum um aðra og hina. Um fólk sem er eitthvað öðruvísi og hefur hingað til verið okkur fjarlægt. En nú kemur það nær okkur og við köllum þau flóttamenn. Eru þau sköpuð í Guðsmynd? Á Gullna reglan við um þau? Fyrir tveimur dögum hélt þjóðmálanefnd kirkjunnar ráðstefnu um stöðu flóttamanna. Yfirskrift ráðstefnunnar var „Hver er þá náungi minn“? Áleitin spurning sem við þekkjum úr Biblíunni. Spurning sem nú er beinlínis beint til okkar. Breytum við eins og samverjinn eða eins og hinir sem gengu framhjá? Það er umhugsunarefni hvort viðhorf okkar og gjörðir mótist af gullnu reglunni. Og þá hvaða túlkun af henni. Eitt er að forðast það að gera öðrum illt, annað er að leggja sig fram við að gera að auki það fyrir aðra sem við vildum að þeir gerðu fyrir okkur. Á þessu er munur. Það er kostur að búa í samfélagi þar sem fólk passar sig á því að gera öðrum ekki illt eða valda öðrum óþægindum. En er ekki betra að lifa þar sem fólk auk þess reynir að hjálpa og aðstoða þá sem að á þurfa að halda í samræmi við það hvernig það sjálft myndi gjarnan vilja að sér væri hjálpað eða veitt aðstoð? Undanfarin ár hefur verið mikil umræða um að koma kristinfræðslu út úr skólum og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.