Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 19

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 19
19 Ávarp biskups Íslands, Agnesar M. Sigurðardóttur Forsætisráðherra, forseti kirkjuþings, kirkjuþingsfulltrúar, vígslubiskupar, góðir gestir. Ég vil byrja á því að þakka forsætisráðherra fyrir að vera með okkur hér í dag í forföllum innanríkisráðherra. Einnig vil ég þakka þeim sem undirbúið hafa kirkjuþingið, kirkjuráði, starfsfólki Biskupsstofu, forsætisnefnd og þingfulltrúum. Einnig þeim er flytja okkur ljúfa tóna hér í dag sem og sóknarpresti og sóknarnefnd Grensáskirkju fyrir afnotin af kirkju og safnaðarheimili. Í ár hefur 200 ára afmælis Hins íslenska biblíufélags verið minnst með margvíslegum hætti. Félagið var stofnað þann 10. júlí árið 1815 að frumkvæði Skotans Ebenezers Henderson. Það er í dag ekki bara elsta félag landsins, heldur eitt af elstu Biblíufélögum í heiminum. Félagið hefur haft að markmiði að vinna að útgáfu og útbreiðslu Biblíunnar á Íslandi og stuðla að lestri og almennri notkun hennar. Þess má geta að Íslendingar voru á meðal 20 fyrstu þjóða heims sem fengu Biblíuna alla á eigin þjóðtungu. Það var menningarlegt afrek Odds Gottskálkssonar og Guðbrands Þorlákssonar og hafði ómetanlegt gildi fyrir okkur sem þjóð. Það er merkilegt að lesa rit Biblíunnar. Þó þau séu ævagömul þá eru umfjöllunarefnin í raun þau sömu og við erum að fjalla um í dag í almennri umræðu sem og umræðu um líf mannsins hér á jörð og í samfélagi manna. Í hinum kristna heimi er fyrirmyndina og leiðtogann að finna í ritum Nýja- testamentisins í barninu og manninum Jesú, sem er einnig Guð okkar kristinna manna. Ráð Drottins er hið sama til allra kynslóða eða eins og segir í Davíðssálmi 33:11 „en ráð Drottins stendur stöðugt um aldur, áform hjarta hans frá kyni til kyns“. Fjármál eru mikið í almennri umræðu og þar leggur Biblían orð í belg. Ef til vill væri betur komið fyrir þjóðinni ef hagfræði Gamla-testamentisins hefði verið í hávegum höfð, en hún gengur út á það að í góðæri sé lagt fyrir til mögru áranna. Þarna er vísað til Jósefssögunnar í 1. Mósebók, 41. kafla. Þekking á táknmáli Biblíunnar hjálpar hverjum þeim er lifir í landi sem kennir sig við Krist að skilja samfélagið og náungann. Biskup Íslands hefur verið forseti félagsins frá upphafi og í stjórn þess sitja bæði leikir og lærðir fulltrúar nokkurra kirkjudeilda. Síðustu áratugina, einkum frá lokum síðari heimsstyrjaldar hafa menn áttað sig á því að samstaða er nauðsynleg til að efla mannlíf og bæta lífsskilyrði. Íslenska Þjóðkirkjan á sæti í Alkirkjuráðinu sem eru samtök margra kirkjudeilda og í lúterska heimssambandinu. Einnig er þjóðkirkjan í sambandi evrópskra kirkna og er þátttakandi í samstarfi lúterskra kirkna á Norðurlöndunum, Eystrasaltslöndunum og víðar og anglíkönsku kirkjunnar, sem kennt er við Porvoo. Allar þessar kirkjur og samtök láta sig heimsmálin varða og boða kærleika Krists í orði og í verki. Íslenska Þjóðkirkjan er því ekki eyland. Hún byggir á guðfræði sem á uppruna sinn í helgri bók og kenningum sem Marteinn Lúter mótaði. Þess vegna verður að líta til þess grundvallar þegar fjallað er um kirkjuleg mál. Kirkjan er ekki fyrirtæki og ekki venjuleg stofnun. Hún er fjöldahreyfing. Þjóðkirkjan er kirkja fólksins. Sem slík nýtur hún trausts í nærsamfélaginu. Það er líka sóst eftir áliti kirkjunnar um mikilvæg mál sem til umræðu eru í þjóðfélaginu. Undanfarið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.