Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Blaðsíða 102

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Blaðsíða 102
102 103 Fjöldi atkvæðisbærra manna miðast við þá sem eru skráðir í þjóðkirkjuna í prestakallinu samkvæmt þjóðskrá þann dag sem auglýsing um embættið birtist. Lista yfir atkvæðisbæra skal biskupsstofa afla þann dag sem auglýsing birtist. Atkvæðisbærir eru þeir sem náð hafa 16 ára aldri þann dag sem auglýsing birtist. Ef ágreiningur rís um hvort almenn kosning eigi að fara fram eða um framkvæmd kosningarinnar að öðru leyti, úrskurðar yfirkjörstjórn þjóðkirkjunnar þar um, sbr. starfsreglur um kjör til kirkjuþings og þingsköp. Að öðru leyti gilda ákvæði um kjörstjórn í starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 301/2013, eins og við getur átt. 14. gr. Kjörstjórn við almennar prestskosningar. Jafnskjótt og biskup hefur fengið í hendur óskir frá lögboðnum fjölda atkvæðisbærra manna í prestakallinu um almenna kosningu skal hann tilkynna kjörstjórn um framkomnar óskir. Biskupsstofu er heimilt að gera kröfu um rafræna skrá ásamt undirskriftum. Kjörstjórn við kirkjuþingskjör, sbr. starfsreglur um kjör til kirkjuþings og þingsköp, er jafnframt kjörstjórn við almennar prestskosningar. Kjörstjórn er heimilt að fela prófasti eða öðrum starfsmönnum þjóðkirkjunnar að annast undirbúning og framkvæmd kosningar á ábyrgð kjörstjórnar. Biskupsstofa lætur kjörstjórn í té nauðsynlega aðstöðu og þjónustu svo kjörstjórn geti rækt starfa sinn. 15. gr. Störf kjörstjórnar. Kjörstjórn ákveður hvenær kosning skuli fara fram og skal hún auglýst með minnst fjögurra vikna fyrirvara. Kjörstjórn annast prentun kjörseðla. Kjörseðlar skulu vera úr pappír sem prent eða skrift sést ekki í gegnum. Á þá skal prenta nöfn umsækjenda í stafrófsröð. Kjörstjórn auglýsir á heimasíðu þjóðkirkjunnar og með öðrum tíðkanlegum hætti, hvernig, hvenær og hvar kosning skuli fara fram og hverjir séu í kjöri. Kjörstjórn er heimilt að ákveða að hafa fleiri en eina kjördeild ef aðstæður í prestakalli þykja gefa tilefni til þess. Kjörstjórn er heimilt að ákveða að kosning verði rafræn og fer þá um framkvæmd hennar samkvæmt starfsreglum um kjör til kirkjuþings nr. 301/2013. 16. gr. Kjörskrá. Kjörstjórn annast gerð kjörskrár í hverri sókn, á grundvelli gagna frá Þjóðskrá Íslands. Á kjörskrá skal taka þá sem skráðir eru í íslensku þjóðkirkjuna, eiga lögheimili í prestakallinu og hafa náð 16 ára aldri á þeim degi sem kosning fer fram. Þegar kjörskrá hefur verið samin skal hún staðfest á fundi kjörstjórnar og undirrituð af formanni kjörnefndar. Kjörskrá skal liggja frammi á aðgangsstýrðum vef eigi síðar en þremur vikum fyrir kjördag, þar sem kjósandi getur flett upp hvort hann sé á kjörskrá. Við aðgangsstýringuna er notuð almenn innskráningarþjónusta s.s. Íslykill Þjóðskrár Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.