Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 33

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 33
33 Húsnæðismál Biskupsstofu voru áfram til umfjöllunar á starfsárinu og ýmsir möguleikar kannaðir en ekkert hefur enn verið ákveðið um framtíðarskipan þeirra mála. Jörðin Valþjófsstaður I, Austurlandsprófastsdæmi, lagðist niður sem prestssetur þegar Valþjófsstaðarprestakall sameinaðist Egilsstaðaprestakalli þann 1.október 2014. Jörðin var í framhaldi af því leigð út á almennum markaði og hlunnindatekjur jarðarinnar af hreindýraveiði undanskildar. Greiðslumark jarðarinnar 166,9 ærgildi var selt á almennum markaði. Einnig var greiðslumark fyrrum prestssetursjarðarinnar Kolfreyjustaðar, 12,9 ærgildi, selt. Kirkjuráð mótaði þá stefnu að almennt skyldi ekki selja spildur úr jörðum kirkju- málasjóðs, en nokkrar slíkar beiðnir um kaup bárust ráðinu á starfsárinu. Unnin var úttekt á húsnæði Skálholtsskóla á starfsárinu og kom m.a. í ljós að ýmsir gallar voru á viðbyggingu við skólann sem reist var árið 2003. Mátti rekja gallana m.a. til lélegs frágangs og skorts á eftirliti. Réttarstaða kirkjunnar í þessu sambandi var könnuð en niðurstaðan var sú að hugsanlegar bótakröfur væru fyrndar. Eftirtaldar fasteignir voru, með söluheimild kirkjuþings 2014, seldar á starfsárinu: Túngata 20, Eyrarbakka söluverð 18.425.000 kr. Staðarhóll, Hvanneyri söluverð 25 millj. kr. Barmahlíð 7, Sauðárkróki, söluverð 28,5 millj. kr. Glaumbær í Skagafirði eldra íbúðarhús, söluverð 7 millj. kr. Austurvegur 9, Hrísey, söluverð 8 millj. kr. Hátún 13, Eskifirði, söluverð 13 millj. kr. Upplýsingatæknisvið Eftirfarandi eru stærstu UT-verkefnin sem unnin hafa verið á kirkjuþingsárinu: • Lokið var við úreldingu netþjóna og flutning þjónustunnar á sýndarþjóna. • Póstþjónusta við presta flutt í skýjalausn hjá Microsoft.  • Nýtt IP-símkerfi innleitt í Grensáskirkju. • Endurnýjun þráðlausra senda og nets á Laugavegi 31 og í Grensáskirkju. • Skráningarform fyrir skírnir innleitt á þjónustuvefnum. Upplýsingar um nafngjöf rata því sjálfkrafa til Þjóðskrár Íslands. Stofnanir o.fl. verkefni Skálholt Um Skálholt og Skálholtsskóla gilda lög nr. 32/1963 um heimild handa ríkisstjórninni til þess að afhenda þjóðkirkju Íslands Skálholtsstað og lög um Skálholtsskóla nr. 22/1993. Biskup Íslands og kirkjuráð hafa forræði um framkvæmdir í Skálholti og starfrækslu Skálholtsstaðar. Skálholtsskóli og Skálholtsstaður hafa verið rekin sem ein rekstrareining síðastliðin ár. Samkvæmt samþykkt kirkjuráðs frá 2012 og starfsreglum um vígslubiskupa ábyrgist vígslubiskup í umboði kirkjuráðs rekstur og starfsemi í Skálholti á grundvelli samþykktrar fjárhagsáætlunar og hefur almennt fyrirsvar vegna Skálholts. Jafnframt er stjórnun Skálholtsskóla í höndum vígslubiskups Skálholtsumdæmis fyrir hönd kirkjuráðs.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.