Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Page 48
48 49
• Útbúið verði efni sérstaklega ætlað til dreifingar á samfélagsmiðlum fyrir virka
meðlimi þjóðkirkjunnar.
• Æskulýðsstarf verði styrkt svo það geti skapað umgjörð fyrir sína félaga til
virkrar þátttöku í umræðunni og á samfélagsmiðlum.
•
Skipulag
Þegar kom að umfjöllun um skipulag var sjónum einkum beint að þeim þáttum
sem vikið er að hér að ofan. Full samstaða var í hópnum um nauðsyn þess að
forgangsraða í þágu fræðslu og fjölmiðlunar til að ná eyrum almennings. Það er
grunnurinn að því að verkefni sem þetta gangi upp og skili árangri.
Samhljómur var að nýta sem allra best það sem nú þegar er fyrir hendi innan
kirkjunnar. Þar er helst litið til félagatalsins og notkunarmöguleika þess innan
sóknanna.
• Mikilvægt er að kirkjuráð og kirkjuþing samþykki að ráðast í slíkt verkefni þar
sem litið yrði til nokkurra ára í senn og því útbúin áætlun sem lítur til næstu 5
ára. Slík áætlun verði unnin af fagfólki í samstarfi við kirkjuráð.
• Gerð verði könnun í upphafi sem sýnir stöðu og ímynd kirkjunnar hjá þjóðinni.
Könnunin verði nýtt til viðmiðunar árlega eða á tveggja ára fresti í framhaldi
af því.
• Fjármunum verði forgangsraðað í þágu fræðslu og fjölmiðlunar til að ná eyrum
almennings. Fjármagnið fari í verkefnaráðningar á fagfólki, framleiðslu á efni,
stærri viðburði og annað sem fram hefur komið í skýrslu þessari.
• Útbúin verði aðgerðaráætlun fyrir hvert ár fyrir sig. Slík áætlun yrði unnin af
fagfólki í samstarfi við kirkjuráð og sérstaklega litið til þeirra þátta sem hér
hafa verið nefndir.
• Fagfólk sem sérhæfir sig í upplýsingamálum og markmiðasetningum verði
fengið til að koma að fræðslu og fjölmiðlun.
• Kveðið verði á um stöðu og hlutverk presta og sóknarnefnda gagnvart sóknum
og sóknarmeðlimum sínum í verkefni sem þessu.
• Fagfólk, ásamt starfsfólki Biskupsstofu, fari í gagnaöflun og myndi halda utan
um og sinna fræðslu og kynningu á notkunarmöguleikum félagatals kirkjunnar.
• Kveðið verði á um stöðu og hlutverk æskulýðsstarfs og æskulýðsfulltrúa í
verkefni sem þessu.
Kostnaðargreining
Gera þarf áætlun til 5 ára um eflingu fræðslu-, kynningar- og fjölmiðlastarfs
þjóðkirkjunnar og verja til þess að minnsta kosti 30 milljónum króna árlega til
viðbótar þeim fjármunum sem varið er í þessa þætti á fjarhagsáætlun fyrir árið
2015.
Hér væri um að ræða nýtt verkefnafé, fjárfestingu sem ætlað er að ná mælanlegum
árangri með skilgreindum viðfangsefnum, en ekki stofnun nýrra embætta.