Gerðir kirkjuþings - 01.01.2015, Side 122
122 123
í hlutfalli við fjölda sóknarbarna í prestakallinu, 16 ára og eldri miðað við 1. desember
næstliðinn.
Biskupsstofa veitir upplýsingar um fjölda kjörmanna hverrar sóknar í kjörnefnd prestakalls.
Prófastur er formaður kjörnefndar, stýrir störfum hennar, fundum og er í fyrirsvari fyrir
nefndina. Prófastur hefur ekki atkvæðisrétt nema þegar kjörinn er héraðsprestur.
Allir fundir kjörnefndar skulu bókaðir og staðfestir af fundarmönnum. Þá skal kjörnefnd
gæta þess að varðveita gögn er varða starfsemi hennar. Um vörslu þessara gagna skal fara
í samræmi við gildandi lög hverju sinni. Kjörnefnd velur ritara.
Sé presti ætlað að þjóna í fleiri en einu prestakalli skulu kjörnefndir í þeim prestaköllum
sameinaðar í eina kjörnefnd. Prófastur er formaður hinnar sameinuðu kjörnefndar og
gilda um störf hennar sömu reglur og um kjörnefndir prestakalla eins og við getur átt.
Umboð sameinuðu kjörnefndarinnar fellur niður þegar nefndin hefur lokið störfum.
Sé presti ætlað að þjóna prestakalli að hluta og embætti héraðsprests að hluta, skal
kjörnefnd prestakalls og héraðsnefnd sameinaðar í eina kjörnefnd undir formennsku
prófasts. Umboð sameinaðrar kjörnefndar fellur niður þegar nefndin hefur lokið störfum.
Um hæfi kjörnefndarmanna fer eftir ákvæðum II. kafla stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Í stað
þeirra sem segja sig frá kjöri eða sem kjörnefndin úrskurðar vanhæfa, skal skipa varamenn
viðkomandi kjörnefndar. Sé prófastur vanhæfur skipar biskup varamann hans.
Prófastar fylgja því eftir að kjörnefndir séu kosnar samkvæmt reglum þessum og að ávallt
sé til staðar sá fjöldi aðalmanna og varamanna sem áskilið er.
6. gr.
8. gr. starfsreglnanna orðist svo:
Störf kjörnefndar prestakalls
Biskup sendir kjörnefnd og/eða héraðsnefnd öll gögn er varða umsækjendur.
Eftir að öll gögn um umsækjendur hafa borist kjörnefnd, skal formaður eins fljótt og
kostur er, boða skriflega til nefndarfundar með a.m.k. viku fyrirvara.
Að fenginni niðurstöðu matsnefndar, sbr. 6. gr. boðar kjörnefnd þá umsækjendur, sem
matsnefnd hefur metið hæfasta, til viðtals.
Hafi kjörnefnd náð samstöðu um að óska ekki eftir þjónustu matsnefndar, sbr. 2. gr., metur
kjörnefnd hæfi umsækjenda og velur þá umsækjendur sem hún boðar til viðtals.
Kjörnefnd getur eftir atvikum boðið umsækjendum að sýna fram á hæfni til helgihalds,
boðunar og sálgæslu auk leiðtoga- og samskiptahæfni. Kjörnefnd er heimilt að óska þess
að umsækjendur messi, prédiki, kenni eða haldi fyrirlestur. Gæta ber jafnræðis milli
umsækjenda í viðtölum, s.s. varðandi spurningar.
Þeim prestum sem áfram þjóna í prestakallinu skal boðið að tjá sig við kjörnefndina um
umsækjendur, sem valið skal á milli, séu þeir sjálfir ekki meðal umsækjendanna.
Allt fram að kjöri er umsækjanda heimilt að draga umsókn sína til baka.
Kjörnefnd kýs sóknarprest eða prest úr hópi þeirra sem matsnefnd hefur talið hæfasta til
að gegna viðkomandi prestsembætti.
Hafi matsnefnd ekki starfað kýs kjörnefnd sóknarprest eða prest úr hópi umsækjenda.
Sá umsækjandi telst hafa hlotið kosningu í prestsembætti sem hlýtur meirihluta greiddra