Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 6
Vikublað 19.–21. apríl 20166 Fréttir
Íbúðin 10 milljónum
dýrari en árið 2010
Ekki vísbendingar um verðbólu en ástæða til að vera á varðbergi
1
01 fermetra íbúð í fjölbýli á höf-
uðborgarsvæðinu kostaði að
meðaltali rúmar 22,2 milljónir
króna árið 2010. Sama íbúðar-
stærð á höfuðborgarsvæðinu
kostaði að meðaltali 32,5 milljónir
króna í fyrra, árið 2015. Hækkunin er
langt umfram verðlag, byggingarvísi-
tölu og launavísitölu. Þetta eru góðar
fréttir fyrir íbúðareigendur sem hafa
séð eign sína hækka í verði gagnvart
lánum en slæmar fréttir fyrir þá sem
eru að kaupa sína fyrstu eign eða eru
á leigumarkaði og hafa hug á því að
kaupa sér eigið húsnæði. Samkvæmt
nýjustu skýrslu greiningardeildar Ís-
landsbanka virðist þó ekki um verð-
bólumyndun á húsnæðismarkaði
hér á landi að ræða, þó sé ástæða til
að vera á varðbergi.
Hækkun umfram vísitölur
Í gögnum frá Þjóðskrá Íslands er
hægt að skoða töflur yfir meðal-
talskaupverð fjölbýlis eftir árum. Þar
má sjá að árið 2010 var mengið 2.003
íbúðir sem að meðaltali voru 101 fer-
metri að stærð. Meðaltalskaupverð
íbúðanna var 22.251 þúsund krón-
ur. Árið 2015 var mengið 5.303 íbúð-
ir sem voru að meðaltali 101 fer-
metri að stærð. Þá kostuðu íbúðirnar
32.533 þúsund krónur. Mismunur-
inn er rúmar 10,2 milljónir króna en
hækkunin nemur 46 prósentum.
Sem dæmi má nefna að verð-
lag hefur hækkað um 17,9 prósent
á sama tíma. Ef meðaltalskaup-
verð íbúða hefði fylgt verðlagi hefði
fyrrnefnd íbúð því átt að kosta rúm-
ar 26,2 milljónir en verð á fjölbýli
hækkaði samkvæmt þessu 88% um-
fram verðlag. Byggingarvísitalan hef-
ur á sama tímabili og við gefum okk-
ur hækkað um 21 prósent. Af því má
ráða að verð á fjölbýli á höfuðborgar-
svæðinu hefur hækkað 74 prósent
umfram byggingarvísitölu. Launa-
vísitalan hefur hækkað um 36 pró-
sent á sama tíma og íbúðaverðið því
hækkað 24,3 prósent umfram launa-
vísitölu.
Þessi þróun endurspeglast í vísi-
tölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæð-
inu sem sjá má í mynd 1 hér og fengin
er af vef Þjóðskrár. Myndin sýnir vísi-
tölu íbúðaverðs frá október 2008 til
febrúar 2016. Vísitala íbúðaverðs sýn-
ir breytingar á vegnu meðaltali fer-
metraverðs á höfuðborgarsvæðinu.
Sú vísitala sýnir hækkun frá júní 2010
til júní 2015 upp á 39,7 prósent.
Ekki bóla en verum á varðbergi
Í október 2015 gaf greiningardeild Ís-
landsbanka út skýrsluna Íslenskur
íbúðamarkaður þar sem spáð var
að íbúðaverð myndi halda áfram að
hækka um 7,9 prósent á þessu ári og
7,5 prósent á árinu 2017. Að raunverði
muni hækkunin í ár nema 5,1 pró-
senti en 3,8 prósentum á því næsta.
Í skýrslunni er einnig reynt að leggja
mat á hvort mikil og hröð hækkun
íbúðaverðs að undanförnu sé vegna
verðbólu á íbúðamarkaði. Það er,
hvort hækkunin sé umfram það sem
er stutt efnahagslegum grunnþáttum.
Í skýrslunni, sem tekur til landsins
alls og áhrifa á efnahagsstöðugleika,
segir að erfitt geti verið að meta hvort
verðmæti eigna sé í jafnvægi en sögu-
legt hlutfall milli íbúðaverðs og launa,
leiguverðs og byggingarkostnaðar geti
gefið góða vísbendingu. Verð íbúða
í hlutfalli af tekjum, leiguverði og
byggingarkostnaði sé að mati grein-
ingardeildarinnar ekki langt frá lang-
tíma meðaltali, sem gefi til kynna að
ekki sé verðbóla á íbúðamarkaðinum.
„Áðurgreind hlutföll hafa þó öll
hækkað nokkuð undanfarið sem gef-
ur ástæðu til að vera sérstaklega á
varðbergi gagnvart því að verðbóla
myndist á þessum markaði á næstu
misserum.“ n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Verð fjölbýlis á höfuðborgarsvæðinu 2010–2015
Ár Fjöldi mengis Meðaltalsflatarmál mengis (fermetrara) Meðaltalskaupverð fjölbýlis í þús. kr.
2015 5.303 101 32.533 kr.
2014 4.430 101 29.631 kr.
2013 4.119 101 26.924 kr.
2012 3.755 100 24.758 kr.
2011 3.256 102 23.388 kr.
2010 2.003 101 22.251 kr.
Hækkun á meðaltalskaupverði íbúða milli 2010–2015: 46% (Heimild: Þjóðskrá)
Til samanburðar: Hækkun annarra vísitalna (Júní 2010–júní 2015):
Verðlagsvísitala: 17,9% Byggingarvísitala: 21% Launavísitala: 36%
Vísitala íbúðarverðs á höfuðborgarsvæðinu Hér má sjá hvernig vísitalan hefur þró-
ast frá því í október 2008 á vegnu meðaltali fermetraverðs á höfuðborgarsvæðinu. Mynd ÞJóðSkrÁ
Eignir að 40
milljónum rjúka út
„Það er gott að gera, ekki brjálað, það er
bara jafnt og þétt, gott að gera almennt
yfir markaðinn. Einu vandamálin liggja
í því að það vantar
fleiri eignir á skrá. Það
vantar ekki kaupendur,
það vantar fasteignir,“
segir Hannes Stein-
dórsson, fasteignasali
og stjórnarmaður í
Félagi fasteignasala,
aðspurður um hvernig
tíðin sé hjá fasteignasölum nú um mundir.
„Það er 20% aukning í fjölda kaup-
samninga milli ára þrjú ár í röð, það verður
eflaust svipað í fjölda samninga og veltu á
þessu ári, eins og síðastliðin tvö ár.“
Hannes segir að mjög vel gangi að selja
þær eignir sem koma í sölu og það virðist
gegnumgangandi á markaðinum.
„Allar eignir undir 30 og upp undir 40
milljónir seljast mjög hratt í dag. En það er
enginn æsingur. Það er jafnt og þétt, fínt
að gera hjá mönnum. En ég held að það
þurfi að byggja fleiri fasteignir.“
Hannes segir að ástæður hækkunar
á íbúðaverði sé líklega fremur vöntun
á fasteignum en lánamöguleikum. Það
sé ekki skortur á aðgengi að lánsfé, þar
sem hægt sé að fá hátt í 90 prósenta
lán á minni fasteignir og fyrir kaupendur
að fyrstu eign. Hann telji ekki ráðlegt
að hækka það hlutfall um eitt einasta
prósent.
Hannes segir að lokum að spá
Greiningar Íslandsbanka um 7,9 prósenta
hækkun á íbúðaverði í ár sé hóflega
áætluð.
„Það held ég að sé varlega áætlað. Ég
held að þetta hækki allavega ekki minna
en það.“
í alla bíla
Varahlutir
Við einföldum líf bíleigandans