Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 20
Vikublað 19.–21. apríl 201620 Umræða Stjórnmál TrausTið er farið n Staða Sigmundar orðin mjög þröng n Ávísun á afhroð að fara í kosningar með hann í brúnni F ramsóknarflokknum er nær ómögulegt að fara inn í al- þingiskosningar með Sig- mund Davíð sem formann. Geri flokkurinn það á hann á hættu að þurrkast út. Þetta hljóta framsóknarmenn að sjá og gera má ráð fyrir að hart verði lagt að Sig- mundi að víkja úr formannsstóli, kjósi hann ekki að gera það sjálfur. Staða Sigmundar er mjög þröng en hann á þó ása uppi í erminni, hann er mjög afgerandi stjórnmálamaður og hefur áður náð næsta undraverð- um árangri í pólitík. Opni hann mál sín upp á gátt, veiti undanbragða- laust allar upplýsingar sem beðið verður um og skýri mál sitt er mögu- legt að hann eigi sér pólitíska fram- tíð. Hins vegar er hætt við að erfitt verði fyrir hann að endurheimta traust almennra flokksmanna eftir vendingar síðustu vikna. Þetta er mat álitsgjafa Eyjunn- ar sem beðnir voru að leggja mat á stöðu Sigmundar Davíðs Gunn- laugssonar, fyrrverandi forsætis- ráðherra og formanns Framsóknar- flokksins, eftir að Wintris-málið svokallaða olli því að Sigmundur neyddist til að víkja úr forsætis- ráðherrastóli. Svo mikið hefur ver- ið fjallað um það mál og Panama- skjölin að undanförnu að óþarfi ætti að vera að rifja það upp hér. Álitsgjafar Eyjunnar eru jafnframt á þeirri skoðun að það væri fullkomið óráð ef Framsóknarflokkurinn færi í kosningabaráttu með Sigmund í brúnni, sem formann. Áhrifamenn gagnrýna Sigmund Ljóst er að staða Sigmundar er veru- lega löskuð. Á það við hvort held- ur sem er utan flokks eða innan. Áhrifafólk í flokknum hefur þannig stigið fram og gagnrýnt Sigmund harðlega. Strax 4. apríl síðastliðinn, daginn eftir að Kastljósþáttur þar sem fjallað var um Panama-skjölin og aðkomu Sigmundar að aflands- félaginu Wintris var sýndur, kröfðust bæjarfulltrúar á Akureyri og áhrifa- menn í flokknum þess að Sigmund- ur segði af sér sem forsætisráðherra. Ljóst má vera að Sigmundur á ekki mikill stuðnings að vænta úr þeirri átt sem formaður flokksins. Þá lýsti Karl Garðarson, þingmað- ur Framsóknarflokksins, óánægju sinni með samráðsleysi Sigmundar við þingflokk flokksins þegar hann hótaði sjálfstæðismönnum þing- rofi og kosningum ef þeir styddu ekki ríkisstjórnina undanbragða- laust. Höskuldur Þórhallsson þing- maður sagði í viðtali við Fréttablað- ið að Sigmundur hefði átt að segja af sér þingmennsku og Frosti Sigur- jónsson sagði í viðtali í Ríkisútvarp- inu að trúnaðarbrestur hefði orðið þegar Sigmundur varð uppvís að því að segja ósatt. Á enn harða stuðningsmenn Framannefndir eru ekki einu fram- sóknarmennirnir sem hafa lýst því yfir að Sigmundur njóti ekki trausts þeirra eða annarra flokksmanna. Hins vegar á Sigmundur hóp ákafra stuðningsmann innan flokksins og eru þeir tilbúnir að berjast fyr- ir því að Sigmundur leiði flokkinn áfram. Þannig lýsti Vigdís Hauks- dóttir því í viðtali við Útvarp Sögu að hún myndi styðja Sigmund ef hann sæktist eftir því að leiða flokk- inn áfram. Þó verður að telja yfirgnæfandi líkur á að forystumenn Framsóknarflokksins átti sig á því að þeir geti ekki farið inn í kosningabaráttu án uppgjörs varðandi formannsembættið. Það væri einfaldlega ávísun á afhroð. n Freyr Rögnvaldsson freyr@eyjan.is Á einn leik í stöðunni Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ S tuðningsgrundvöllur Sigmundar Davíðs er alveg horf- in honum. Hans aðalstuðningshópur var InDefence- hópurinn, andstaðan við Icesave, það var á honum sem Sigmundur kom inn í pólitík. Það þarf nú ekki annað en að lesa yfirlýsingar Ólafs Elíassonar, eins forsvars- manna hópsins, eða Frosta Sigurjónssonar. Það er ekki leng- ur neinn stuðningur við Sigmund á þessum vígstöðvum. Svo kom á dögunum skoðanakönnun frá Gallup þar sem ekki nema þrjú prósent aðspurðra vilja sjá Sigmund sem for- sætisráðherra. Framsóknarflokkurinn sjálfur er nú kominn niður í afar lágt fylgi, um sjö prósent í skoðanakönnunum, og ég held að það myndi klára flokkinn algjörlega ef það myndu skapast harðar deilur um formannsembætti, það hvort Sig- mundur myndi stíga niður eða ekki. Staða hans sem formað- ur og sem þingmaður er bara engin orðin, hvort sem mönn- um þykir það sanngjarnt eða ekki. Sigmundur á hins vegar leik í stöðunni sem gæti orðið honum til sóma. Framsóknarflokkurinn er svo gæfusamur að hafa innan sinna raða Lilju Dögg Alfreðsdóttur, sem nú er búið að gera að utanríkisráðherra, og hún yrði mjög frambærilegur formaður fyrir flokkinn. Lilja Dögg vann með Sigmundi í forsætisráðuneytinu og hann yrði í talsambandi við hana, yrði hún formaður flokksins. Ég tel að Sigmundur gerði best í því að hverfa úr formannsembætti og styðja Lilju Dögg í formannsembættið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.