Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 26
Vikublað 19.–21. apríl 20162 Útivist - Kynningarblað
Þú kemur ekki að
tómum Fjallakofanum
Stækkar stöðugt í takt við vaxandi útivistaráhuga
S
ívaxandi áhugi landsmanna
á útivist hvers konar, til
dæmis fjallgöngum og
fjallaskíðaferðum, hefur
ekki farið framhjá neinum.
Fjallakofinn er fyrirtæki sem hefur
blómstrað í takt við þessa þróun
og hefur átt sinn þátt í að gera úti-
vistarferðir þúsunda Íslendinga
ánægjulegar: „Þessi stóraaukni úti-
vistaráhugi hefur skilað sér til okkar í
aukinni veltu og auknum umsvifum.
Við erum með þrjár verslanir sem
sérhæfa sig í að sinna þessum sér-
tæka og kröfuharða markaði,“ segir
Halldór Hreinsson, eigandi Fjalla-
kofans.
„Fólk vill vandaðan búnað því það
vill komast alla leið og aftur heim
með þeim hætti að það brosi allan
hringinn. En það er ekki skemmti-
legt að mæta illa búinn í sína fyrstu
fjallaferð á gúmmískónum og hugsa:
Hvað er ég búinn að koma mér
út í? Slakur búnaður getur drepið
viljann og löngunina. Í þessu sam-
hengi erum við afar ánægð með okk-
ar hlutdeild og sem dæmi erum við
að selja árlega allt að 4% þjóðarinn-
ar SCARPA-gönguskó en vörumerkið
SCARPA hefur verið hér í yfir 30 ár og
hefur í dag yfir 50% markaðshlutdeild
á Íslandi,“ segir Halldór og bendir
á að ánægjan af ferðinni geti alveg
staðið og fallið með skónum. Hann
segir að vandaðar vörur og fagleg
þjónusta og ráðgjöf séu hornsteinar
í starfsemi Fjallakofans. SCARPA er
ítalskt merki, fjölskyldufyrirtæki á ní-
ræðisaldri og er þriðji ættliður fjöl-
skyldunnar við stjórn núna.
Tollalækkun skilar sér að fullu í
lægra verði
„Sterkt, vandað og uppfyllir þær
kröfur og væntingar sem viðskipta-
vinurinn hefur,“ segir Halldór að séu
einkenni á þeim búnaði sem Fjalla-
kofinn leitast við að hafa til sölu. Ann-
að dæmi um það eru hin þekktu og
vinsælu útivistarföt Marmot, en þar
er um að ræða afar traust bandarískt
fyrirtæki sem var stofnað árið 1974.
„Marmot merkið er orðið mjög
áberandi meðal leiðsögumanna og
er flaggskipið okkar í útivistarfatnaði.
Þar hefur okkur jafnframt tekist að
bjóða mjög samkeppnishæft verð
miðað við Evrópu en tollalækkanirnar
hafa valdið því að þessi fatnaður hef-
ur lækkað um 12–17% í verði hjá okk-
ur,“ segir Halldór en Fjallakofinn hefur
kappkostað að láta tollalækkanir skila
sér að fullu í verðlagið. Segir hann
verðlag í verslunum Fjallakofans vera
það samkeppnishæft að þar sé góð
sala til erlendra ferðamanna eins og
til dæmis Norðurlandabúa, að ekki sé
minnst á Kínverja sem kaupi mikið af
svona hágæðafatnaði.
Reynsla og fagþekking
starfsfólks
Halldór segir að vandað og vel þjálfað
starfsfólk sé annar lykill að velgengni
Fjallakofans. Starfsfólk sé sjálft mjög
virkt í fjallaferðum og annarri úti-
vist og sé með afar mikla þekkingu
á þessu útbreidda áhugamáli land-
ans. Sjálfur hefur hann verið í þess-
um bransa í yfir 30 ár og finnst alltaf
jafn gaman að þjóna viðskiptavinum
sínum enda lítur hann á þá sem
sína vinnuveitendur og reynir því að
standa sig með sínu starfsfólki eins
vel og hægt er á hverjum degi.
Þrátt fyrir að það hafi orðið mikl-
ar breytingar í framleiðslu þess bún-
aðar sem menn nota til fjallaferða
þá vill Halldór benda á þá staðreynd
að það sem skipti mestu máli hafi
ekkert breyst:
„Það er að bera virðingu fyrir fjall-
inu sem þú ætlar að ganga á og nátt-
úru þess, þá líður þér vel á toppnum!“
Sem fyrr segir eru verslanir Fjalla-
kofans þrjár: Í Kringlunni 7, á Lauga-
vegi 11 og Reykjavíkurvegi 64. Upp-
lýsingar um afgreiðslutíma þeirra,
ítarlegar upplýsingar um vörur og
netverslun er að finna á ágætu vef-
svæði Fjallakofans, fjallakofinn.is n
MyndiR ÞoRMaR VigniR gunnnaRsson