Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 34
Vikublað 19.–21. apríl 201630 Lífsstíll L eikkonan Aníta Briem er stödd hér á landi til að kynna bók sína Mömmubitar – nær­ ing og hollusta á meðgöngu. Bókina gerði Aníta í samstarfi við Sólveigu Eiríksdóttur. Aníta býr í Los Angeles ásamt eiginmanni sínum, gríska leik­ aranum og leikstjóranum Dean Paraskevopoulos, og tveggja ára dóttur þeirra Miu. Aníta fékk einmitt hugmyndina að bókinni þegar hún gekk með dóttur sína. „Ég lifi mjög heilsusamlegu líferni og hugsa vel um mataræðið,“ segir Aníta. „Þegar ég varð ólétt þá lenti ég strax í vandræðum, mér var óglatt og var orkulaus og varð afhuga mat. Ég hafði engar hugmyndir um það hvað væri réttast að borða en vissi að ég þyrfti að fá nauðsynleg og fjölbreytt næringar­ efni svo barnið þroskaðist vel. Ég fór að leita að skemmtilegri bók með nytsöm­ um upplýsingum og hugmyndum en þær bækur sem ég fann um mataræði á meðgöngu voru annað hvort 600 blað­ síðna doðrantar um næringarfræði eða vefsíður sem birtu bara neikvæða hluti um alvarlegar afleiðingar ef maður borðaði þetta eða hitt. Ég fór að krota niður hjá mér og taka nótur um ýmislegt í sambandi við mataræði og fór smám saman að sjá fyrir mér bók um næringu á með­ göngu. Ég er fínn kokkur en samt enginn meistarakokkur og vildi fá at­ vinnumann til að sjá um matarupp­ skriftirnar. Solla var eina manneskjan sem kom til greina og ég ákvað að sitja um hana þangað til ég fengi hana í lið með mér. Ég þekkti hana ekki neitt en sendi henni póst og kynnti hug­ myndina fyrir henni og henni fannst þetta vel til fundið því dóttir hennar var einmitt ólétt á sama tíma. Við Solla fór­ um að vinna saman og það er búin að vera þvílík gleði að vinna með henni. Hún er ein sú yndislegasta manneskja sem ég hef nokkru sinni kynnst.“ Depurð á meðgöngu Í bókinni er fjallað allt milli himins og jarðar sem tengist hollustu og næringu á meðgöngu. Einn kaflinn heitir Bland í poka en Aníta nýtti sér einmitt bland í poka á meðgöngunni. „Ég var með naslpoka sem ég sett í alls kyns hnet­ ur, þurrkaða ávexti og fræ. Þetta var frá­ bært fyrir mig því þannig gat ég haldið orkunni betur og spornað við ógleði. Þetta var frábært fyrir barnið því það var að fá þá reglulegu næringu sem það þurfti,“ segir Aníta. „Solla á uppskrift­ irnar að naslinu og þær eru flottari en það sem ég var með á sínum tíma. Þetta er fjölbreytt bók og við fjöllum um alls konar mat og gefum ráð sem ég veit að hefðu nýst mér á minni meðgöngu. Svo segi ég litlar sögur inni á milli um ýmis­ legt sem tengist minni óléttu.“ Ferðalag fyrir líkamann n Aníta Briem sendir frá sér bók um næringu á meðgöngu n Leikur í nýrri mynd Werners Herzog n Saknar Íslands„Ég var að lesa mér til um það hvort þessar tilfinningar væru eðlilegar en fann ekki mikið. Mér fannst ég ekki vera eins og ég ætti að vera. Svo leið sú tilfinning hjá. Aníta Briem „Ég fór ekki inn í þennan heim af kæruleysi, ég gerði mér grein fyrir því að þetta yrði ekki auðvelt líf.“ MynD Sigtryggur Ari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Allt á einum stað: Prentun, merkingar og frágangur. Inni- og útimerkingar. Segl- og límmiðaprentun. Ljósmynda-, striga- og segulprentun. Textaskraut, sandblástur, GSM hulstur og margt fleira...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.