Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.2016, Blaðsíða 2
Vikublað 19.–21. apríl 20162 Fréttir
Sala á
golfferðum
tekið 30% Stökk
n Selja talsvert fleiri golf- og skíðaferðir en síðustu tvö ár n Slegist um pláss
Þ
að er ljóst að hluti þjóð-
félagsins hefur það ansi
gott í dag og við sjáum það
á sölunni hjá okkur, sem
hefur í ákveðnum ferð-
um aukist um 30–40%, að það eru
margir sem geta leyft sér munað
eins og golf- og skíðafrí,“ segir Jó-
hann Pétur Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri GB Ferða. Að hans
sögn hefur sala á golf- og skíðaferð-
um fyrirtækisins aukist um 30%
það sem af er þessu ári, miðað við
sama tímabil í fyrra. Þór Bæring,
framkvæmdastjóri Gaman ferða,
tekur í sama streng og segir nánast
slegist um pláss fyrir golfsett í flug-
vélum.
„Á vinsælustu dagsetningunum
til staða eins og Alicante fara oft
stærri hópar í ferðir með fleiri
golfsett en flugvélarnar bera og þá
getur orðið ansi troðið. Þegar fólk
kaupir sér flugsæti á þessum dag-
setningum, á haustin og vorin, og
ætlar að bæta golfsettinu við eftir
á, þá er það í flestum tilvikum ekki
hægt,“ segir Þór.
Munur milli ára
Jóhann Pétur segist ekki hafa séð
álíka aukningu í sölu á golf- og skíða-
ferðum árin 2014 og 2015. Skýr-
inguna á mikilli sölu á fyrsta þriðj-
ungi þessa árs má að hans mati finna
í auknum kaupmætti.
„Það er skýringin að mínu mati.
Það er búið að vera ótrúleg aukn-
ing í sölu á þessu ári miðað við árið
í fyrra. Síðustu tvö ár voru mjög svip-
uð en við höfum séð mikið stökk upp
á við í ár og við erum að tala um mjög
háar tölur eins og 35–40% aukningu.
Við erum nær eingöngu á Bretlands-
eyjum og seljum ferðir til Englands;
Birmingham og London, og tveggja
áfangastaða í Skotlandi. Ég hef ekki
viljað tala hlutina upp heldur einung-
is tala um staðreyndir en það er mikil
aukning í ár og mikil stemning í þjóð-
félaginu,“ segir Jóhann.
Minna um raðgreiðslur
Aðspurður svarar Jóhann að al-
mennt verð á golfferðum, á mann í
tvíbýli í þrjár nætur með hálfu fæði,
með farangursheimild upp á tösku
og golfsett, flugvallarsköttum og
fjóra átján holu hringi, sé um 109–
139 þúsund krónur. Í boði séu einnig
ferðir á yfir 200 þúsund krónur. DV
fékk ábendingu um að kylfingar á
leið til Flórída hefðu í síðustu viku
þurft að senda golfsett sín með öðru
flugi þegar í ljós kom að geymslu-
rými vélar þeirra hafði fyllst. Golfsett-
unum sem urðu eftir var flogið til
Bandaríkjanna tveimur dögum síðar.
„Það er klárlega aukning. Maður
sér það greinilega og það er þarna
uppsöfnuð ferðalöngun Íslendinga
og það eru margir búnir að halda
að sér höndum. Ég var líka í þessum
bransa fyrir tíu árum og í dag eru
fleiri búnir að safna fyrir ferðunum
öfugt við það sem áður var þegar allt
var á keypt á raðgreiðslum,“ segir Þór
Bæring. n
„Ég var í líka í þess-
um bransa fyrir
tíu árum og í dag eru
fleiri búnir að safna fyrir
ferðunum öfugt við það
sem áður var þegar allt var
keypt á raðgreiðslum.
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Mikil aukning Þór Bæring, fram-
kvæmdastjóri Gaman ferða, segir nánast
slegist um pláss fyrir golfsett í flugvélum.
Kylfingar „Það er ljóst að
hluti þjóðfélagsins hefur
það ansi gott í dag,“ segir
framkvæmdastjóri GB
Ferða. Mynd 123rf.coM
F
orseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hyggst bjóða sig
fram til endurkjörs. Frá þessu
greindi hann á Bessastöðum
síðdegis í gær, mánudag.
„Í kjölfar nýliðinna atburða,
hefur fjöldi fólks víða að úr þjóðfé-
laginu, höfðað til skyldu minnar og
ábyrgðar og beðið mig að endur-
skoða ákvörðunina sem ég tilkynnti í
nýársávarpinu,“ sagði Ólafur og sagð-
ist þurfa að svara þessu kalli. Ólaf-
ur sagði að undanfarin ár hefðu ver-
ið tími óvissu og umróts og minntist
á mótmæli, tíðar kosningar, fjöldaað-
gerðir almennings og Icesave-þjóðar-
atkvæðagreiðslurnar. Þá benti hann á
að nýlega söfnuðust þúsundir saman
við Alþingishúsið – til að krefjast af-
sagnar forsætisráðherra og þingkosn-
inga, sem hefði valdið talsverðum
breytingum á ríkis stjórn Íslands.
Mótmælaöldur og það hvernig
brugðist var við þeim sýndu að
ástandið í samfélaginu væri enn
viðkvæmt og að stjórnvöld og kjörn-
ir fulltrúar yrðu að vanda sig. Sagð-
ist Ólafur vilja standa áfram vaktina
með fólkinu í landinu. Sagði hann
að sá þrýstingur sem hann hefði
fundið fyrir um að gefa kost á sér
á ný hefði sett hann í vanda, enda
væri það svo að frelsið frá daglegum
önnum skaraðist á við skyldurnar.
Ólafur sagðist vera tilbúinn til
þess að viðurkenna ósigur ef þjóðin
veldi annan kandídat. „Ég geri mér
grein fyrir því að það eru ekki all-
ir á þessari skoðun og telja að það
sé tími kominn til að það sé ann-
ar sem gegni þessu embætti,“ sagði
hann og þakkaði traustið sem hon-
um hefði verið sýnt undanfarin ár.
„Ef niðurstaða þessara kosningar
yrði að þjóðin veldi annan myndi ég
taka því vel,“ sagði Ólafur og sagð-
ist þá myndu glaður ganga til móts
við frelsið. „Vil ég auðmjúkur þjóna
áfram hagsmunum og standa vakt-
ina með fólkinu í landinu.“ n
astasigrun@dv.is
Ólafur hættir við að hætta
Segist auðmjúkur vilja þjóna hagsmunum almennings
Stendur vaktina Ólafur segist tilbúinn til
þess að standa vaktina áfram. Mynd SiGtryGGur Ari