Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 10
Helgarblað 13.–16. maí 201610 Fréttir
Gerum við Apple vörur
iP
one í úrvali
Sérhæfum okkur í Apple
Allskyns
aukahlutir s: 534 1400
Fokdýr sundsprettur fyrir
fjölskylduna í Bláa lóninu
n Stakur miði hækkað um 81% á fimm árum n Þriggja manna fjölskylduferð á 22 þúsund krónur
V
erð fyrir stakan miða í
Bláa lónið um sumartíma
hefur hækkað um 81 pró-
sent á fimm árum. Í sum-
ar, frá og með 1. júní næst-
komandi, getur ferðamaður sem
ekki hefur bókað sér tíma á vefsíðu
Bláa lónsins fyrirfram vænst þess
að greiða 8.700 krónur fyrir stakan
miða sem árið 2011 kostaði 4.800
krónur. Sumardýfa í lóninu hjá pari
með einn ungling á aldrinum 14–
15 ára með í för kostar fjölskylduna
22.400 krónur í sumar.
Stærra lón og fleiri ferðamenn
Spár gera ráð fyrir að hátt í 1,7
milljónir erlendra ferðamanna
komi til Íslands á árinu og myndi
það þýða sprengingu í fjölgun frá
því í fyrra um nærri fimm hundruð
þúsund manns. Hundruð þúsunda
gesta koma í Bláa lónið sem er
einn vinsælasti ferðamannastað-
ur landsins og hefur verið áætlað
að sjö af hverjum tíu ferðamönn-
um sem koma til landsins, hafi við-
komu í lóninu. Enda sýndi það
sig í ársreikningi Bláa lóns-
ins fyrir árið 2014 að
gestir borguðu tæpa
3,7 milljarða króna í
aðgangseyri það ár.
Ársreikningur fé-
lagsins fyrir ferða-
mannametárið í
fyrra liggur ekki
fyrir en er vænt-
anlegur. Árið 2014
kostaði stakur sum-
armiði 6.200 krónur og
nýverið var lokið við að
stækka Bláa lónið um helm-
ing. Ljóst er að tekjur lónsins í fyrra
og í ár munu verða umtalsverðar ef
fer sem horfir.
Hærra verð á háannatíma
Verðskrá Bláa lónsins er þannig í
dag að boðið er upp á vetrarverð,
sem er í gildi frá 1. janúar til 31. maí
og svo frá 1. september til 31. des-
ember ár hvert. Sumarverð, sem
er umtalsvert hærri, er í gildi frá
1. júní til 31. ágúst, á háannatíma
ferðamennskunnar á Íslandi.
Árið 2014 kostaði almennur
miði í lónið 5.400 krónur að vetri til
en 6.200 krón-
ur að sumri. Í ár
er verð á vetrar-
miða 5.800 krón-
ur en 7.300 krónur á
sumrin. Samkvæmt vef
Bláa lónsins miðast verð nú þó við
að notendur bóki á netinu fyrir-
fram. Ef greitt er við komuna í Bláa
lónið leggjast 1.400 krónur ofan á
verð. Þannig að vetrarmiðinn verð-
ur 7.200 krónur en sumarmiðinn
á 8.700. Í dag kostar miðinn fyr-
ir unglinga, sem skilgreindir eru
sem 14–15 ára í Bláa lóninu, 3.600
krónur hvort heldur sem er á vetr-
artímanum eða á sumrin. Börn,
tveggja til þrettán ára, fá frítt. Hafa
ber í huga að þetta er lægsta mögu-
lega verð á svokölluðum Standard-
pakka, sem veitir aðgang að Bláa
lóninu og kísilmaska. Síðan er hægt
að fá þrjá dýrari pakka, Comfort,
Premium og Luxury.
81% hækkun á fimm árum
Í umfjöllun DV um Bláa lónið í júní
2011 kom fram að stakur miði í lón-
ið kostaði 4.800 krónur. Samanbor-
ið við sumarverðið án netbókun-
ar í dag (8.700 kr.) er ljóst að verð á
stökum miða, fyrir einstakling sem
ekki hefur bókað fyrirfram, hefur
hækkað um 81 prósent á þessum
fimm árum frá 2011. Eða um 3.900
krónur. Á sama tímabili hefur verð-
lag hækkað um 14,5%. Hækkunin er
því langt umfram almennt verðlag.
Ein skýring á þessum hækkun-
um er meðal annars 11 prósenta
hækkun sem tilkomin var vegna
breytinga sem gerðar voru á virð-
isaukaskattslögum í fyrra og tóku
gildi 1. janúar síðastliðinn. Fram
að því hafði Bláa lónið fallið und-
ir undanþágu í lögunum þar sem
starfsemi þess taldist til starfsemi
sundstaða, heilsuræktar og íþrótta-
starfsemi og var lónið undanþegið
skattinum. Frá 1. janúar 2016 hef-
ur lónið því greitt virðisaukaskatt í
lægra þrepi af baðgjöldum, eða 11
prósent. Þessi breyting skilaði sér
út í miðaverðið milli ára. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Gríðarlegar vinsældir Spár gera ráð
fyrir 1,7 milljónum erlendra ferðamanna
í ár. Áætlað hefur verið að 7 af hverjum
10 ferðamönnum fari í Bláa lónið með-
an á dvöl þeirra stendur. Aðgangsverðið
hefur hækkað umtalsvert á undanförn-
um árum. Mynd RóbeRt ReyniSSon
Þetta kostar í Bláa lónið núna
Standard (netverð) Fullorðnir Unglingar (14–15 ára)
Sumar 7.300 kr. 3.600 kr.
Vetur 5.800 kr. 3.600 kr.
Standard (greitt við komu) Fullorðnir Unglingar (14–15 ára)
Sumar 8.700 kr. 5.000 kr.
Vetur 7.200 kr. 5.000 kr.
Ef ekki er bókað á netinu fyrirfram og greitt við komuna í Bláa lónið leggjast 1.400 krónur
á verðið. Þessi tafla sýnir verð með því álagi.