Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Qupperneq 13
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Fréttir 13
S
teinar Þór Guðgeirsson,
hæstaréttarlögmaður og ráð-
gjafi Seðlabanka Íslands, og
Haukur C. Benediktsson,
forstöðumaður Eignasafns Seðla-
bankans (ESÍ), hafa tekið sæti
sem fulltrúar stjórnvalda í stjórn
Lyfju. Kröfuhafar slitabús Glitnis
framseldu allt hlutafé Lyfju, sem er
ein af stærstu lyfjakeðjum landsins,
til íslenska ríkisins fyrr á þessu ári
sem hluta af stöðugleikaframlagi
þeirra.
Lyfja var yfirtekið af Glitni árið
2012 þegar þáverandi eigandi fé-
lagsins gat ekki staðið við skuld-
bindingar sínar. Tilraunir Glitnis
í kjölfarið til að selja fyrirtækið til
fjárfesta báru hins vegar engan ár-
angur, ekki síst vegna þess, sam-
kvæmt heimildum DV, að Glitn-
ir vildi fá erlendan gjaldeyri til
sín við söluna. Á árinu 2014 nam
hagnaður Lyfju 293 milljónum
króna og meira en tvöfaldaðist frá
fyrra ári. Þá jókst einnig hagnað-
ur fyrir afskriftir og fjármagnsgjöld
(EBITDA) og var samtals 667 millj-
ónir en velta fyrirtækisins var tæp-
lega 8.500 milljónir á árinu 2014.
Lyfja er eitt af fjölmörgum fyrir-
tækjum sem íslenska ríkið eignað-
ist hluti í vegna stöðugleikafram-
laga föllnu bankanna. Þannig er
ríkið meðal annars orðið hluthafi
í félögum á borð við Lýsingu, Reiti
fasteignafélag, tryggingafyrirtækið
Sjóvá og Eimskip. Haukur og Stein-
ar sitja í stjórnum fjölmargra fé-
laga sem voru framseld til stjórn-
valda í kjölfar nauðasamninga
gömlu bankanna. Þá var Haukur
einnig nýlega skipaður af fjármála-
ráðherra í þriggja manna stjórn fé-
lagsins Lindarhvols ehf. en það
mun annast umsýslu með og fulln-
usta þær tugmilljarða eignir sem
voru afhentar ríkinu í tengslum við
stöðugleikaframlög slitabúanna. n
hordur@dv.is
YOUR BEST CHOICE IN COLOR.
HANNAH IS WEARING
SHADE N° 3-65
PALETTE DELUXE
NOW WITH LUXURIOUS
OLEO-GOLD ELIXIR.
TURN COLOR
INTO A LUXURY.
FOR UP TO 30% MORE SHINE.*
EUROPE'S NO. 1
NEW
Í takt við tímann
• Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa.
• Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum.
Stjórnvöld með tvo
fulltrúa í stjórn Lyfju
Steinar Þór og Haukur C. Benediktsson koma nýir inn í stjórn
Lyfja Er að fullu í eigu ríkisins.
Mynd Sigtryggur Ari
StjórnvöLd Sýna afLandS-
krónueigendum á SpiLin
n frumvarp kynnt í næstu viku n Opinn gluggi í fjórar vikur n Hvati að sem flestir taki þátt n Stórauknar heimildir lífeyrissjóða
í apríl í fyrra þegar bankinn fór fram
á að taka það yfir af framkvæmda-
hópi stjórnvalda um losun hafta. Sá
hópur sem hefur einkum unnið að
undirbúningi útboðsins hefur ver-
ið skipaður þeim Sturlu Pálssyni,
framkvæmdastjóra markaðsvið-
skipta og fjárstýringar í Seðlabank-
anum, Ingibjörgu Guðbjartsdóttur,
framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits-
ins, og Benedikt Gíslasyni, ráðgjafa
fjármálaráðherra. Þá vann Lilja Al-
freðsdóttir, fyrrverandi aðstoðar-
framkvæmdastjóri á skrifstofu seðla-
bankastjóra og alþjóðasamskipta,
náið með hópnum áður en hún var
skipuð í embætti utanríkisráðherra í
síðasta mánuði.
Á síðustu vikum, samhliða því að
vinna við útboðið hefur verið á loka-
metrunum, hefur verið lögð á það
mikil áhersla að frumvarpið um stöð-
ugleikareikninga og framkvæmd út-
boðsins muni ekki hafa nein neikvæð
áhrif á lánshæfismat ríkissjóðsins.
Þar hafa stjórnvöld meðal annars
notið liðsinnis fjárfestingabankans
JP Morgan auk þess sem bandaríski
lögmaðurinn Lee Buchheit hefur
veitt ráðgjöf í tengslum við útboðið.
Þá hafa stjórnvöld einnig upplýst Al-
þjóðagjaldeyrissjóðinn og stóru láns-
hæfismatsfyrirtækin um þá aðferða-
fræði sem verður beitt til að leysa
aflandskrónuvandann svo hægt sé að
taka afgerandi skref í að opna nán-
ast alfarið á erlendar fjárfestingar Ís-
lendinga. n
Fær tæki til að stemma
stigu við vaxta-
munarviðskiptum
Stjórnvöld stefna að því að samtímis
fyrirhuguðu aflandskrónuútboði í næsta
mánuði verði Seðlabankinn tilbúinn með
í vopnabúri sínu stjórntæki til að stemma
stigu við miklu innflæði kviks áhættufjár-
magns á grundvelli vaxtamunarvið-
skipta, samkvæmt heimildum DV. Þar er
einkum horft til þess að Seðlabankinn
geti beitt sérstakri bindiskyldu í því skyni
að gera slík viðskipti hættulegri fyrir
fjárfesta og ávinninginn af þeim minni.
Leggja þarf fram frumvarp fyrir Alþingi til
að gera Seðlabankanum kleift að beita
slíku stjórntæki.
Frá því um mitt síðasta ár hafa erlendir
fjárfestingarsjóðir, meðal annars núver-
andi aflandskrónueigendur, staðið að baki
um 80 milljarða gjaldeyrisinnflæði vegna
kaupa á óverðtryggðum ríkisskuldabréf-
um. Sú staðreynd að vaxtamunarvið-
skiptin séu núna einkum drifin áfram af
aflandskrónueigendum, ásamt einnig
kröfuhöfum gömlu bankanna, sem hafa
verið fastir með fé sitt undir höftum á
Íslandi um árabil, þykir vísbending að um
sé að ræða afar kvikt fjármagn, að sögn
þeirra sem þekkja vel til stöðu mála.
Í ræðu Más Guðmundssonar
seðlabankastjóra á ársfundi Seðla-
bankans í marsmánuði síðastliðnum
kom meðal annars fram að mikilvægt
væri að þróa stjórntæki sem hægt
væri að beita til að draga gagngert úr
óhóflegu fjármagnsinnflæði vegna
vaxtamunarviðskipta. Valkostirnir í
þeim efnum væru einkum skattur eða
sérstök bindiskylda en í báðum tilfellum
er þörf á lagabreytingum. „Færa má fyrir
því rök að slíkt tæki þurfi að vera komið
á lögbókina um líkt leyti og fyrirhugað
útboð vegna aflandskróna fer fram því
að gangi það eins vel og stefnt er að er
hugsanlegt að traust á Íslandi aukist enn
og fjármagnsinnstreymi magnist,“ sagði
seðlabankastjóri.
Margboðað
aflandskrónuút-
boð Bjarni Benedikts-
son fjármálaráðherra
hyggst gera grein fyrir
frumvarpi sínu á ríkis-
stjórnarfundi í næstu
viku. Mynd Sigtryggur Ari