Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Page 22
Helgarblað 13.–16. maí 201622 Fréttir
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
Bæjarlind 1-3 - 201 Kópavogur - Sími: 571 5464
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is
Stærðir 38-54
100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA
MAMMA VEIT BEST KYNNIR:
Purelife Red Iron
Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum
jarðlögum þar sem plöntur og steinefni hafa
myndað einstaka járnríkan jarðveg sem
droparnir eru unnir úr.
Hentar barnshafandi konum
Milt í magann - engin hægðatrega
Öruggt og áhrifaríkt
GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN
Mamma veit best - Laufbrekka 30 - 200 Kópavogur mammaveitbest.is
100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA
MAMMA VEIT BEST KYNNIR:
Purelife Red Iron
Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum
jarðlögum þar sem plöntur og st i efni haf
myndað einstaka járnríkan jarðveg sem
droparnir eru unnir úr.
Hentar barnshafandi konum
Milt í magann - engin hægðatrega
Öruggt og áhrifaríkt
GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN
Mamma veit best - Laufbrekka 30 - 200 Kópavogur mammaveitbest.is
MAMMA VEIT BEST KYNNIR: Purelife Red Iron
100% NÁTTÚRULEGT, FLJÓTANDI JÁRN ÁN AUKAEFNA
Purelife Red Iron er unnið úr steingerðum jarðlögum þar sem plöntur og
steinefni h fa myndað einstaklega járnríkan jarðveg sem droparnir eru unnir úr.
• Hentar barnshafandi konum
• Milt í magan - engin hægðartregða
• Öruggt og áhrifaríkt
GLÚTENLAUST - GERLAUST - MJÓLKURLAUST - VEGAN
n Sex ára stúlka bundin á fótum með
sippubandi til að gera æfingu rétt
n Viðurkennd aðferð segir formaður F
aðir sex ára stúlku segir dóttur
sína ekki fara á aðra æfingu
hjá Fimleikadeild Fylkis í Ár
bænum eftir að hún var, að
hans mati, beitt harðræði á
æfingu. Stúlkan unga hafi kom
ið grátandi heim af æfingu eftir
að þjálfari, sem nýlega fór að
þjálfa hana, batt fætur henn
ar saman með sippubandi því
hún gat ekki gert tiltekna æf
ingu á tvíslá rétt. Formaður
fimleikadeildarinnar segir
þjálfunaraðferðirnar ekki
óeðlilegar. Þjálfarinn kveðst
hafa spurt stúlkuna leyfis.
Kvíðin og lítil í sér
„Honum er alveg sama, hann
virðist ekki skilja og segir
þeim bara að gera hitt og þetta. Það
hafa fleiri haft samband við okkur
og spurt hvort við höfum tekið eftir
breytingum hjá okkar börnum,“ segir
Gauti Fannar Gestsson, faðir um
ræddrar stúlku. Hann segir að dóttir
sín hafi verið orðin lítil í sér og farin
að kvíða því að mæta á æfingar.
Að sögn Gauta hafa engin skýr
svör borist frá Fylki varðandi málið.
Foreldrum boðið að
funda með þjálfara
Í samtali við DV sagði Guðrún Ósk
Jakobsdóttir, formaður Fimleika
deildar Fylkis, að foreldrunum hafi
verið boðið að tala við þjálfarana.
Sömuleiðis hafi dótturinni verið
boðið að færa sig í annan hóp, þar
sem hún sé í keppnishóp. Í keppnis
hópnum eru nokkrar stelpur valdar
og gerðar eru meiri kröfur til þeirra.
DV spurði Guðrúnu hvort hún kann
aðist við að þjálfarinn hafi bund
ið saman fæturna á stúlkunni með
sippubandi vegna þess að hún hafi
ekki getað gert æfingu rétt. Segir
Guðrún að það sé eðlilegt að settur
sé púði eða að fæturnir séu bundnir
þegar gerðar séu æfingar á tvíslá.
„Hann spurði hvort hann mætti
binda fæturna, því það væri betra.
Bæði þjálfarinn og aðstoðarþjálfari
hans sögðu að hún hefði jánkað
þegar ég spurði þau nánar um þetta,“
segir Guðrún, sem þvertekur fyrir að
harðræði hafi verið beitt.
Bað leyfis
Karak Olah István er þjálfarinn sem
um ræðir og hefur hann svipaða
sögu að segja og Guðrún. Hann
segist hafa spurt stúlkuna hvort hann
mætti setja band utan um fæturna á
henni og hún hafi gefið leyfi til þess
Hann segist aldrei hafa fengið kvart
anir á því átta og hálfa ári sem hann
hafi starfað hjá Fylki.
„Ég myndi vilja fá að tala við föð
urinn augliti til auglits, ef hann er að
ásaka mig um eitthvað,“ segir Karak
að lokum.
Kom grátandi heim
„Barnið mitt kemur grátandi heim út
af þessu,“ segir Gauti Fannar þegar
viðbrögð fimleikadeildarinnar eru
borin undir hann. „Ef þú ert full
orðinn maður og þjálfari og spyrð sex
ára barn um leyfi til að gera eitthvað,
hver er með valdið? Mín skoðun er
sú að þetta sé gjörsamlega fyrir neð
an allar hellur og hún upplifði þetta
svona,“ bætir hann við.
DV leitaði álits hjá Ásu Ingu Þor
steinsdóttur, framkvæmdastjóra
Gerplu, á þeim þjálfunaraðferðum
sem hér hefur verið lýst. Ása segir
að hún viti ekki til þess að börn séu
bundin, en ef barnið upplifi ein
hvers konar misbeitingu væri slíkt
grafalvarlegt mál. Hún lagði þó
áherslu á að erfitt væri fyrir hana
að tjá sig um mál sem hún væri ekki
kunnug. n
Með börnunum Gauti fannar og dætur hans tvær.
Bundin á fótum Faðir sex ára stúlku segir að
hún hafi verið beitt harðræði á æfingu hjá fim-
leikadeild Fylkis á dögunum. Hún var bundin á
fótum til að gera æfingu á tvíslá. Forsvarsmenn
fimleikadeildarinnar segja aðferðirnar ekki óeðli-
legar og hafna því að harðræði hafi verið beitt.
Arnar Örn Ingólfsson
arnarorn@dv.is
„Barnið mitt
kemur grátandi
heim út af þessu
Fimleika-
þjálFari
sakaður um
harðræði