Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Qupperneq 24
Helgarblað 13.–16. maí 201624 Fréttir Erlent
avis.is
591 4000
Frá
1.650 kr.
á dag
Vissir þú að meðal heimilisbíll er
notaður í eina klukkustund á dag
Langtímaleiga er
þægilegur, sveigjanlegur
og skynsamlegur kostur
Á
R
N
A
S
Y
N
IR NOTAÐU ÞITT FÉ
SKYNSAMLEGA
Gullgrafari fann mola
á stærð við hænuegg
n Líklega úr skipi sem ferjaði gull frá Ástralíu n Stærsti moli sem fundist hefur við Bretland
G
ullleitarmenn og aðrir ævin-
týramenn flykkjast nú í fjöru
eina við Bretlandsstrendur
eftir að sextugur Breti fann
gullmola við ströndina.
Gullmolinn er talinn vera úr segl-
skipinu Royal Charter, sem fórst við
norðvesturströnd Wales í fellibyl árið
1859.
Vincent Thurkettle átti ekki til
aukatekið orð þegar það rann upp
fyrir honum að glitrandi steinn sem
hann fann neðansjávar, steinsnar frá
ströndinni, reyndist vera úr skíra-
gulli. Um var að ræða tæplega 100
gramma gullmola, á stærð við hænu-
egg. Molinn er talinn vera hluti af 21
milljarðs króna fjársjóði sem legið
hefur neðansjávar í meira en 150 ár.
Verðmæti gullmolans hleypur á tæp-
lega níu milljónum króna.
Um er að ræða stærsta gullmola
sem fundist hefur á Bretlandseyjum,
að sögn breska blaðsins Mirror.
Sá næststærsti fannst árið 1808 og
mældist 59 grömm.
Varð agndofa
Fram kemur í umfjölluninni að fjár-
sjóðsins hafi verið leitað allar götur
síðan skipið sökk. Sjálfur hefur
Vincent leitað stíft. Hann varði sjö
sumrum við fjársjóðsleit áður en
hann rakst á gullmolann. Á hverju
sumri fékk hann fjölskyldumeðlimi
til liðs við sig í um sex vikur. Hann
fann molann í lítilli sprungu á hafs-
botni, þegar hann var að snorka við
strönd Anglesey í Wales. „Ég varð
agndofa þegar ég sá molann. Sólin
skein svo það glampaði á hann. Og
vegna þess að hann var undir vatni
virtist hann risastór.“ Hann segist
aðeins hafa gert ráð fyrir að finna
gullryk. Því hafi fundurinn komið
honum gjörsamlega í opna skjöldu.
„Þetta var ótrúleg stund.“
Hann segir að fyrsta hugsunin
hafi verið sú að svona mola hefði
hann hvergi sé nema á söfnum. „Ég
vildi ekki snerta hann til að byrja
með heldur reyna að grafa í minnið
þessa ótrúlegu stund og átta mig á
hversu fallegur hann var.“ Hann seg-
ir að molinn hafi strax minnt sig á
Faberge-egg. Þegar hann hafi tekið
molann upp hafi hann verið þyngri
en hann hafði gert sér í hugarlund.
Hélt fundinum leyndum
Vincent greindi aðeins nýverið frá
fundinum en molann fann hann í
raun árið 2012. Hann vildi fullvissa
sig um að ekki væri meira gull á
svæðinu, áður en hann gerði öðrum
viðvart – lái honum hver sem vill.
Þannig háttaði nefnilega til að þegar
Vincent fann molann hafði óveður
skolað ógrynni af sandi af botninum
– og leitt þannig í ljós svæði sem
hafði verið hulið áratugum saman.
„Ég hef leitað að gulli í 39 ár og hand-
leikið marga mola – en aldrei hef ég
fundið svona stóran mola sjálfur.“
Talið er að ekki færri en 450
manns hafi farist með skipinu þegar
það sökk, þann 26. október árið
1859. Skipið var á leið til Liverpool
en í farmi þess var gull frá Ástralíu.
Molann fann Vincent á fimm metra
dýpi í um 40 metra fjarlægð frá þeim
stað þar sem skipið fór niður.
Fær fundarlaun
Það sem kann að skýra þann drátt
sem hefur orðið á því að Vincent
gerði grein fyrir fundinum er sú stað-
reynd að molanum varð hann að
skila til krúnunnar. Lög kveða á um
það – í ljósi þess hve nærri flakinu
hann fannst. „Ég var miður mín að
þurfa að láta hann af hendi, en ég
held reyndar að það sé mikilvægt að
hann fái notið sín á safni – fyrir allra
augum.“ Hann bætir við að molinn
hafi verið orðinn honum mjög kær,
en fyrir hann fær hann þó einhver
fundarlaun. Hann segir fundinn þó
til marks um að fólk geti enn gert
stórmerkilegar uppgötvanir við Bret-
landsstrendur. n
Seglskip Skipið hefur legið á hafbotni í
157 ár.
Gullmoli
Vincent þurfti
að láta molann
af hendi.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Laugavegur 24
Sími 555 7333
publichouse@publichouse.is
publichouse.is
BENTO BOX
11.30–14.00 virka daga / LUNCH
11.30–15.00 um helgar / BRUNCH
1.990 kr.