Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 25
Helgarblað 13.–16. maí 2016 Fréttir Erlent 25
F
jögur smábörn í Bandaríkj-
unum létust á einni viku í
apríl eftir að þau komust
í skotvopn á heimilum
sínum og skutu sig í ógáti.
Í þeirri sömu viku skaut tveggja
ára stúlka móður sína til bana
þegar þær keyrðu í gegnum smá-
bæ í Milwaukee-ríki. Stúlkan fann
skammbyssu undir bílstjórasætinu
og tók í gikkinn.
Bandaríska stórblað-
ið New York Times birti ný-
verið fréttaskýringu þar
sem vakin er athygli á tíðni
dauðsfalla í landinu sem
rekja má til þess að börn á
aldrinum eins til þriggja ára
komust í skotvopn. Eins og
gefur að skilja er þar í öll-
um tilvikum um að ræða
voðaskot sem börnin verða
oftast sjálf fyrir. Í umfjöll-
un blaðsins segir að um 30
Bandaríkjamenn hafi lát-
ist í slíkum slysum í fyrra
og að árlega verði um 30 þúsund
dauðsföll þar sem skotvopn komi
við sögu. Í sömu viku og smábörn-
in fjögur létust komu einnig upp
fimm önnur dauðsföll í landinu
sem rekja má til þess að börn eða
unglingar komust í skotvopn.
Þar er einnig sagðar sögur
nokkurra bandarískra barna sem
hafa dáið eftir voðaskot. Sha'Quille
Kornegay, tveggja ára gömul stúlka
sem var jörðuð í Kansas City í
Missouri í apríl síðastliðnum, er
eitt þeirra. Hún fann skammbys-
su sem faðir hennar geymdi und-
ir kodda uppi í rúmi. Byssan var
búin laser-geisla sem vakti áhuga
litlu stúlk unnar. Þegar faðir henn-
ar vaknaði lá Sha'Quille grátandi á
gólfinu með skotsár á höfði. Hún
var jörðuð nokkrum dögum síðar, í
bleikri líkkistu og með litla kórónu á
höfðinu sem faldi sárið. Faðir henn-
ar, Courtenay Block, var ákærð-
ur fyrir manndráp og vanrækslu
barns. Í yfirheyrslum hjá lögreglu
viðurkenndi Block að hafa falið
byssuna áður en hann hljóp með
dóttur sína út úr húsinu til að kalla
eftir aðstoð.
Kiyan Shelton, þriggja ára
drengur, er annað barn sem New
York Times fjallar um. Kiyan var
að leik í eldhúsinu heima hjá sér
þegar farsími móður hans, Kan-
ishu Shelton, fór að hringja ofan í
veski hennar. Hann náði sér í stól
og klifraði upp á eldshúsborðið.
Í veskinu var einnig lítil skamm-
byssa. Nokkrum sekúndum síðar
heyrði Kanisha skothvell og fann
síðan Kiyan með skotsár á brjósti.
Hann var úrskurðaður látinn á há-
skólasjúkrahúsi Indiana polis-
borgar síðar um kvöldið. n
Hópefli í fákaseli
Ingolfshvoll, 816 Ölfus | fakasel@fakasel.Is | símI: 483 5050
Matur, drykkur
og skemmtun
Fjögur smábörn létust
af völdum voðaskota
n Tveggja ára stúlka í Missouri fann skammbyssu undir kodda föður síns n 30 deyja á ári hverju
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Dýrkeypt mistök Árið 2015 mátti rekja
um 280 voðaskot til þess að börn eða
unglingar komust í skotvopn.
Tveggja ára Sha'Quille Kornegay
fann byssu undir kodda föður síns.
Hún var jörðuð í lítilli bleikri kistu í
Kansas City í síðasta mánuði.
Ákærður Courtenay
Block, faðir Sha'Quille
Kornegay, hefur verið
ákærður fyrir manndráp.
» Loftsíur
» Smurolíusíur
» Eldsneytissíur
» Kælivatnssíur
» Glussasíur
Baldwin® hefur sérhæft sig í
smur-, loft- og hráolíusíum.
Við bjóðum upp á Baldwin® síur í
flestar gerðir þungavinnu- og sjóvéla á
hagstæðum verðum.
Verkstæði og viðgerðarþjónusta
Aðalsmerki Bætis er verkstæðið og
viðgerðarþjónustan.
Á verkstæði okkar erum við með öll tæki
til endurbyggingar á allt að 1750 hestafla
vélum.
Túrbínur
Bætir ehf. býður upp
á viðgerðarþjónustu
fyrir flestar gerðir
túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík