Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Page 40
Helgarblað 13.–16. maí 201640 Sport
Er bíllinn klár fyrir
sumarið?
Við einföldum líf bíleigandans
Ferðabox
Reiðhjóla-
grindur
Þverslár
n Boleyn Ground kvaddur n Reid í hóp þeirra sem skoruðu kveðjumörkin á frægum leikvöngum
Þeir skoruðu síðustu mörkin
N
ýsjálenski varnarmaður-
inn Winston Reid tryggði
West Ham United 3-2
sigur á Manchester United
í ensku úrvalsdeildinni
á þriðjudagskvöld. Markið kom á
lokamínútum leiksins og reyndist
jafn sögulegt og það var dramatískt.
Þetta mikilvæga sigurmark Reid,
sem leikið hefur með West Ham frá
árinu 2010, reyndist nefnilega síð-
asta markið sem skorað verður á
Boleyn Ground, heimavelli félags-
ins síðastliðin 112 ár. Þegar flautað
var til leiksloka blésu stuðnings-
menn West Ham sápukúlum í síð-
asta skipti yfir völlinn sinn sem
lengi vel var kenndur við Upton
Park. West Ham flytur sig á næst-
unni yfir á Ólympíuleikvanginn
í Stratford í Lundúnum og ljósin
verða slökkt á Boleyn Ground.
Sigurmark Reid mun væntan-
lega lifa í hugum áhangenda West
Ham um ókomna tíð, en hverjir
skoruðu síðustu mörkin á öðrum
sögufrægum leikvöngum enskra
félagsliða? DV rifjar upp nokkur
söguleg síðustu mörk. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
The Dell
Matt Le Tissier (2001)
Það var eitthvað svo ótrúlega viðeigandi
að síðasta markið sem skorað var á hinum
agnarsmáa en sjarmerandi heimavelli
Southampton, The Dell, væri skorað af
goðsögninni Matt Le Tissier. Enski framherj-
inn lék allan sinn 16 ára feril með félaginu
og skoraði þar yfir 200 mörk – þar af flest
stórglæsileg. Mörg voru líka mikilvæg
enda Southampton oft í botnbaráttu á
lokadögum mótsins. En í lok leiktíðarinn-
ar 2000/2001 var sætið tryggt. Síðasti
leikurinn á The Dell, heimavelli félagsins til
103 ára, var gegn Arsenal. 15.252 áhorfend-
ur smekkfylltu völlinn og vonuðust eftir
hinum fullkomna endi. Staðan var 2-2 þegar
nokkrar mínútur voru eftir af leiknum þegar
Le Tissier, sem ekki hafði skorað mark á
tímabilinu, fékk boltann skoppandi til sín
í teignum, sneri sér og hamraði hann við-
stöðulaust í fjærhornið með vinstri á loka-
sekúndum leiksins. Allt ætlaði hreinlega um
koll að keyra á The Dell og kveðjustundin
ósvikin og fullkomin.
Boleyn Ground West Ham lék sinn síðasta leik á vellinum gegn Man Utd á þriðjudags-
kvöld. Leiknum lauk með 3-2 sigri Hamranna og skoraði Winston Reid síðasta markið á
þessum ágæta velli. Mynd EPA
Filbert Street
Matt Piper (2002)
Leicester City tryggði sér sinn fyrsta
úrvalsdeildartitil í 132 ára sögu félagsins á
dögunum en fyrir 14 árum var sagan önnur.
Á lokadegi mótsins tímabilið 2001/2002 var
ljóst að Leicester var fallið og yrði í neðsta
sæti deildarinnar hvernig sem lokaleikurinn
gegn Tottenham færi á Filbert Street, sem
hafði verið heimavöllur félagsins í 111 ár.
Teddy Sheringham kom Spurs yfir með víta-
spyrnu í fyrri hálfleik áður en Paul Dickov
jafnaði. Skallamark miðjumannsins Matt
Piper reyndist síðan ekki aðeins sigurmark
Leicester heldur einnig síðasta markið sem
skorað var á Filbert Street.
Maine Road
Michael Svensson (2003)
Það eru ekki alltaf heimamenn sem eiga
lokaorðið, eins og Manchester City komst
að þegar kom að því að kveðja Maine
Road í lok tímabilsins 2002/2003 eftir
80 ár. Southampton kom í heimsókn og
var ekkert á því að leyfa City að fá hinn
fullkomna kveðjuleik eins og Southampton
hafði sjálft fengið tveimur árum áður.
Skallamark frá sænska miðverðinum
Michael Svensson á 34. mínútu leiksins
reyndist það síðasta á Maine Road.
Highbury
Thierry Henry (2006)
Það var sömuleiðis viðeigandi að síðasta
markið á Highbury, heimavelli Arsenal, væri
skorað af franska snillingnum Thierry Henry
– markahæsta leikmanni í sögu félagsins.
Lokaleikur 2005/2006 tímabilsins var
mikilvægur fyrir Arsenal sem þurfti að vinna
Wigan og treysta á að Tottenham tapaði
gegn West Ham til að tryggja sér Meistara-
deildarsæti. Í stöðunni 3-2 Arsenal í hag
fengu þeir víti þegar fimmtán mínútur voru
eftir. Það kom aldrei neitt annað til greina
en að Henry tæki það. Hann skoraði auð-
vitað úr vítinu, sitt þriðja mark í leiknum og
síðasta markið sem skorað var á Highbury, í
93 ára sögu Arsenal á leikvanginum. Henry
fagnaði markinu með því að kyssa grasið í
kveðjuskyni. Tottenham tapaði gegn West
Ham og fjórða sætið var Arsenal. Fullkom-
inn dagur og dramatískur hjá Skyttunum.