Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Page 44
Helgarblað 13.–16. maí 201644 Lífsstíll
515 7900 | alskil@alskil.is | alskil.is
K
ynfræðingurinn Sigríð
ur Dögg Arnardóttir situr
aldrei auðum höndum.
Nýjasta bók hennar „Á
rúmstokknum“ var að koma
sjóðandi heit í verslanir en hana gaf
hún út sjálf og fjármagnaði útgáfuna
með uppistandi um það þegar hún
sjálf var að uppgötva sig sem kyn
veru.
„Bókin er svona ekta bók sem á
heima á kaffistofunni á vinnustöðum
eða í sumarbústaðnum. Bókina má
lesa upphátt fyrir hvort annað en
hún er tilvalin til þess að brjóta ísinn.
Bókin er þannig sett upp að það má
krota í hana, myndskreyta og taka
túss og strika undir. Hún er ætluð
fullorðnu fólki og í henni eru pistlar
sem ég hef skrifað árin 2010–2015.
Sumir birtust í Fréttablaðinu og sumir
hafa aldrei áður verið birtir. Að auki
eru spurningar og svör frá lesendum.“
Það leynir sér ekki á röddinni að
Sigga Dögg er ánægð með afrakstur
inn og stolt yfir að hafa komið þessu
hugarfóstri í heiminn. Við útgáfu er
að mörgu að huga en bókin var sett
upp af eiginmanni hennar, forsíðu
myndin var tekin við rúmstokkinn
þeirra og prentunin var fjármögnuð
með uppistandi.
„Mig langaði til þess að prófa að
gefa út bókina sjálf og til þess þurfti
ég að útvega mér fjármagn. Ég hef
alltaf haft mjög gaman af uppistandi
en hélt samt að það væri frátekið
fyrir klárara og fyndnara fólk en mig.
Margir hafa þó sagt við mig að fyrir
lestrarnir mínir séu hálfgert uppi
stand og þess vegna ákvað ég að það
væri engu að tapa. Markmiðið var að
fólk gæti hlegið, hvort sem það var að
mér eða með mér og ef fólk gerði það
þá var komin möguleg fjármögn
unarleið. Málið er að þora að taka
áhættuna og það hefur aldeilis skilað
sér. Ein vinkona mín sagði mér í kjöl
farið, að fyrst ég þyrði að halda uppi
stand ætli hún að halda tónleika!“
Frelsandi að hlæja að sjálfri sér
Sigga Dögg gerir skýran greinarmun
á faglegum kynfræðifyrirlestrum og
uppistandi. Hún hefur verið vinsæll
fyrirlesari fyrir unglinga og foreldra
þeirra í grunnskólum landsins auk
þess sem hún hefur frætt fagfólk og
annað áhugafólk um kynlíf og kyn
fræðslu. Við slíkar kringumstæður
fær hún oft spurningar er varða hana
sjálfa sem kynveru sem hún gefur þá
lítið fyrir. Í uppistandinu hefur hún
þó gefið annan tón sem segja má að
sé mun persónulegri.
„Uppistandið, sem heitir „Kyn
fræðingur verður til“ er um mig að
uppgötva mig sem kynveru þegar ég
var unglingur. Það fjallar til dæmis
um mínar uppgötvanir í kynlífi og
hvernig það er ekki alltaf á jafnréttis
grundvelli. Ég er að uppræta alls
konar mýtur og segja frá feilsporum
mínum í kynlífi. Þetta eru sem sagt
alls ekki „þú ert með lítið typpi“
brandarar heldur er ég að hlæja að
sjálfri mér og það er svo frelsandi.“
Sigga Dögg hikar hvergi og nefn
ir nokkur dæmi um það sem uppi
standið hefur upp á að bjóða.
„Ég er að lýsa upplifun allt frá því
að nálgast þá sem ég var skotin í, yfir
í það þegar ég snerti typpi í fyrsta
sinn og fór í fyrsta sleikinn. Ég var
svo hispurslaus og hafði strax á ung
lingsaldri afskaplega gaman af þess
um uppgötvunum. Oft dansar uppi
standið á mörkum raunveruleikans
og hins ýkta gríns, stundum þannig
að ekki alveg hægt að greina á milli.
Sumar frásagnirnar eru lygilegar en í
þeim felst líka oftast sannleikurinn.“
Viðtökurnar hafa komið Siggu
Dögg á óvart, þær skiluðu áhorf
endafjölda sem dugði fyrir prentun
og öðrum útgáfukostnaði í tengslum
við „Á rúmstokknum“ en þrátt fyrir
það virðist kynfræðingurinn ekki
ætla að hætta að gera grín.
„Uppistand mitt er háfemínískt
enda geri ég þar grín að kröfunum
sem eru gerðar til kvenna og hvernig
þær skipta engu máli þegar kemur
að ástinni og kynlífi. Ég geri til dæmis
ógeðslega mikið grín að háreyðingu,
blúndum, gstrengjum, því hvernig
við nálgumst kynlíf og hvert hlutverk
þitt er þegar þú ert með píku í kyn
lífi. Það skal því engan undra að það
eru fyrst og fremst konur sem bóka
mig og það eru konur sem mæta á
mín uppistönd þrátt fyrir að uppi
stand hafi hingað til verið mikill
karlaheimur.“
Næsta uppistand Siggu Daggar
„Kynfræðingur verður til“ verður í
Þjóðleikhúskjallaranum þann 19.
maí en miða má nálgast á tix.is. Á
rúmstokknum er komin í búðir og
nú er bara að leggjast upp í sófa með
bókina, lesa upphátt og ræða opin
skátt um efni bókarinnar. n
Kynfræðingur
grínast og
gefur út bók
Hélt að uppistand væri frátekið fyrir klárara og fyndnara fólk
Út fyrir
kassann
Kristín Tómasdóttir
skrifar
Ánægð og stolt
Sigga Dögg er ánægð
með afraksturinn
Myndir SigTryggur Ari