Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 46
Helgarblað 13.–16. maí 201646 Lífsstíll U ppskriftir eru stöðugt gang- andi manna og kvenna á milli, oft breytast þær aðeins og batna þar sem þær hafa viðkomu enda eru ástríðu- kokkar líklegir til að setja sitt mark á sköpunina. Bergljót Björk, matgæð- ingur og góð vinkona DV, spáir mikið í uppskriftir og er dugleg við að breyta og bæta. Eitt sinn áskotnaðist Beggu óvenjuleg uppskriftabók sem henni þykir einstaklega vænt um. Begga féllst á að deila með lesendum uppskrift úr bókinni góðu. Gefum Beggu orðið: „Þegar ég flutti frá Svíþjóð eftir 10 ára dvöl fannst sænsku yndis- og matarvinkonu minni henni Línu ekki hægt að kveðja mig með öðru en handskrifaðri uppskriftabók með ýmiss konar uppskriftum. Við áttum nefnilega eftir að bjóða hvor annarri í mat og kaffi, enda deilum við ástríðu til matar og vorum spenntar fyrir því að kynna ýmsa uppáhaldsrétti fyrir hvor annarri. Þetta var hennar leið til að sjá til þess að þessir gullmolar færu ekki framhjá mér óeldaðir. Við þessa dásamlegu laxalasanja- uppskrift hefur Lína skrifað til mín eftir farandi skilaboð: „Uppskriftin hljómar kannski furðulega á margan hátt. Og er það kannski líka, en eldaðu þetta samt því þetta er gott!“ Ég hlýddi matarvinkonu minni að sjálfsögðu. Margrar uppskriftir í bók- inni krefjast innihaldsefna sem fást ekki hér svo ég varð afar glöð þegar ég fann anísfræin sem bragðbæta spínatið og feníkuna, svo dásamlega, í Krydd- og tehúsinu í Þverholti.“ n 800g lax, roðflettur, beinlaus og skorinn í 1 cm. þykkar sneiðar 2 dl parmesan eða mozzarellaostur, rifinn Nokkrar lasanjaplötur Tómatsósan 1 laukur, saxaður 2 hvítlauksrif, söxuð 1 tsk. timjankrydd 1 dós tómatar salt, pipar og klípa af sykri Hvítvínssósan 2 dl hvítvín 6 dl mjólk 2 msk. grænmetiskraftur, fljótandi 3 msk. Maízena-maísþykkni Nokkrir snúningar úr piparkvörninni Spínat og fenníka 1 fenníkuhaus/hnúður, skorinn í þunnar ræmur 1,5 tsk. anísfræ, barin létt í morteli 200 g ferskt spínat 1 tsk. salt 2 klípur múskatkrydd Hitið ofninn í 200 gráður og byrjið á tómatsósunni. Laukur, hvítlaukur og timjan er steikt upp úr olíuslettu í potti í um það bil 2–3 mínútur. Tómatar settir saman við og leyft að malla við vægan hita á meðan haldið er áfram með elda- mennskuna. Þá er það vínsósan. Hellið hvítvíni í pott og leyfið að sjóða hressilega þar til vökvinn hefur soðið niður um helming. Bætið þá við 5 dl af mjólkinni ásamt grænmetiskraftinum og leyfið að ná suðu. Hrærið nú 1 dl af mjólk saman við Maízena-þykknið og bætið í sósuna. Athugið að þeyta vandlega með píski svo ekki myndist kekkir þegar sósan þykknar. Bætið við pipar. Bræðið smjörklípu á pönnu og steikið léttilega fenníku og anísfræ þar til fenníkan er orðin mjúk. Bætið við spínatinu og leyfið að hitna. Kryddið með salti, pipar og múskati. Takið nú fram veglegt ofnhelt lasanja- form. Tómatsósan ætti nú að vera búin að malla í nokkrar mínútur og má bragðbæta með sykurklípu, salti og pipar. Hellið fjórðungi af vínsósunni í botninn á forminu og raðið einu lagi af lasanjaplötum ofan á. Setjið helming spínatmauksins næst, og tómatsósu og laxabita þar á eftir. Öðrum fjórðungi vínsósunnar hellt ofan á og aftur lasanja- plötur, restin af spínatinu, tómatsósa, laxabitar, fjórðungur vínsósu og lasanja- plötur. Afgangi vínsósunnar er að lokum hellt ofan á og osti stráð yfir. Bakað í ofninum í um 30 mínútur. Gott er að leyfa réttinum að kólna örlítið áður en lasanjað er skorið í bita og borið fram á diski, gjarn- an með salati og jafnvel hvítlauksbrauði. HjallaHraun 2, HFj. - S: 663-0790 Gæði í merkingum Glæsileg gjafasett með persónulegri merkingu www.graf.is - Leiðandi á leiksvæðum jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is HEILDARLAUSNIR FYRIR LEIKSVÆÐI Uppsetningar, viðhald og þjónusta • Útileiktæki • Girðingar • Gervigras • Hjólabrettarampar • Gúmmíhellur • Fallvarnarefni Tilboð á Lappset útileiktækjum 2016 Leitið til sölumanna í síma 565 1048 n Matargjöf frá góðri vinkonu n Fersk útgáfa af vinsælum rétti Laxalasanja Línu Begga með bókina góðu Heimfarar- gjöfin frá hinni sænsku Línu. Myndir SigTryggur Ari Sjúklega girnilegt! Lasanjað lítur vel út á diski. ilmandi úr ofni Það er næstum hægt að finna ilminn af myndunum. Spínat og fennika Þessi græna hollusta leynist líka í lasanjanu. Laxalasanja Línu Begga og Lína Svona líka hressar vinkonur í myndakassa í Stokkhólmi. ragnheiður Eiríksdóttir ragga@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.