Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 13.–16. maí 201646 Lífsstíll
U
ppskriftir eru stöðugt gang-
andi manna og kvenna á
milli, oft breytast þær aðeins
og batna þar sem þær hafa
viðkomu enda eru ástríðu-
kokkar líklegir til að setja sitt mark á
sköpunina. Bergljót Björk, matgæð-
ingur og góð vinkona DV, spáir mikið
í uppskriftir og er dugleg við að breyta
og bæta. Eitt sinn áskotnaðist Beggu
óvenjuleg uppskriftabók sem henni
þykir einstaklega vænt um. Begga féllst
á að deila með lesendum uppskrift úr
bókinni góðu. Gefum Beggu orðið:
„Þegar ég flutti frá Svíþjóð eftir
10 ára dvöl fannst sænsku yndis- og
matarvinkonu minni henni Línu
ekki hægt að kveðja mig með öðru
en handskrifaðri uppskriftabók með
ýmiss konar uppskriftum. Við áttum
nefnilega eftir að bjóða hvor annarri í
mat og kaffi, enda deilum við ástríðu
til matar og vorum spenntar fyrir því
að kynna ýmsa uppáhaldsrétti fyrir
hvor annarri. Þetta var hennar leið til
að sjá til þess að þessir gullmolar færu
ekki framhjá mér óeldaðir.
Við þessa dásamlegu laxalasanja-
uppskrift hefur Lína skrifað til mín
eftir farandi skilaboð: „Uppskriftin
hljómar kannski furðulega á margan
hátt. Og er það kannski líka, en eldaðu
þetta samt því þetta er gott!“
Ég hlýddi matarvinkonu minni að
sjálfsögðu. Margrar uppskriftir í bók-
inni krefjast innihaldsefna sem fást
ekki hér svo ég varð afar glöð þegar
ég fann anísfræin sem bragðbæta
spínatið og feníkuna, svo dásamlega, í
Krydd- og tehúsinu í Þverholti.“ n
800g lax, roðflettur, beinlaus
og skorinn í 1 cm. þykkar
sneiðar
2 dl parmesan eða
mozzarellaostur, rifinn
Nokkrar lasanjaplötur
Tómatsósan
1 laukur, saxaður
2 hvítlauksrif, söxuð
1 tsk. timjankrydd
1 dós tómatar
salt, pipar og klípa af sykri
Hvítvínssósan
2 dl hvítvín
6 dl mjólk
2 msk. grænmetiskraftur, fljótandi
3 msk. Maízena-maísþykkni
Nokkrir snúningar úr piparkvörninni
Spínat og fenníka
1 fenníkuhaus/hnúður, skorinn í
þunnar ræmur
1,5 tsk. anísfræ, barin létt í morteli
200 g ferskt spínat
1 tsk. salt
2 klípur múskatkrydd
Hitið ofninn í 200 gráður og byrjið á
tómatsósunni. Laukur, hvítlaukur og
timjan er steikt upp úr olíuslettu í potti í
um það bil 2–3 mínútur. Tómatar settir
saman við og leyft að malla við vægan
hita á meðan haldið er áfram með elda-
mennskuna.
Þá er það vínsósan. Hellið hvítvíni í
pott og leyfið að sjóða hressilega þar til
vökvinn hefur soðið niður um helming.
Bætið þá við 5 dl af mjólkinni ásamt
grænmetiskraftinum og leyfið að ná
suðu. Hrærið nú 1 dl af mjólk saman við
Maízena-þykknið og bætið í sósuna.
Athugið að þeyta vandlega með píski svo
ekki myndist kekkir þegar sósan þykknar.
Bætið við pipar.
Bræðið smjörklípu á pönnu og
steikið léttilega fenníku og anísfræ þar til
fenníkan er orðin mjúk. Bætið við spínatinu
og leyfið að hitna. Kryddið með salti, pipar
og múskati.
Takið nú fram veglegt ofnhelt lasanja-
form. Tómatsósan ætti nú að vera búin að
malla í nokkrar mínútur og má bragðbæta
með sykurklípu, salti og pipar.
Hellið fjórðungi af vínsósunni í
botninn á forminu og raðið einu lagi af
lasanjaplötum ofan á. Setjið helming
spínatmauksins næst, og tómatsósu
og laxabita þar á eftir. Öðrum fjórðungi
vínsósunnar hellt ofan á og aftur lasanja-
plötur, restin af spínatinu, tómatsósa,
laxabitar, fjórðungur vínsósu og lasanja-
plötur. Afgangi vínsósunnar er að lokum
hellt ofan á og osti stráð yfir. Bakað í
ofninum í um 30 mínútur. Gott er að leyfa
réttinum að kólna örlítið áður en lasanjað
er skorið í bita og borið fram á diski, gjarn-
an með salati og jafnvel hvítlauksbrauði.
HjallaHraun 2, HFj. - S: 663-0790
Gæði í
merkingum
Glæsileg gjafasett með
persónulegri merkingu
www.graf.is
- Leiðandi á leiksvæðum
jh@johannhelgi.is • johannhelgi.is
HEILDARLAUSNIR
FYRIR LEIKSVÆÐI
Uppsetningar, viðhald og þjónusta
• Útileiktæki
• Girðingar
• Gervigras
• Hjólabrettarampar
• Gúmmíhellur
• Fallvarnarefni
Tilboð á Lappset
útileiktækjum 2016
Leitið til sölumanna í síma 565 1048
n Matargjöf frá góðri vinkonu n Fersk útgáfa af vinsælum rétti
Laxalasanja Línu
Begga með bókina góðu Heimfarar-
gjöfin frá hinni sænsku Línu.
Myndir SigTryggur Ari
Sjúklega
girnilegt! Lasanjað
lítur vel út á diski.
ilmandi
úr ofni Það
er næstum
hægt að finna
ilminn af
myndunum.
Spínat og
fennika
Þessi græna
hollusta
leynist líka í
lasanjanu.
Laxalasanja Línu
Begga og Lína Svona
líka hressar vinkonur í
myndakassa í Stokkhólmi.
ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is