Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 48
Helgarblað 13.–16. maí 2016
komin í verslanir
Sennilega hollasta rauð
a kjöt sem völ er á
IP-dreifing | Fornubúðir 3, Hafnarfj. | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408
Opið virka daga 10 - 18,
Laugardaga 11 - 16,
Sunnudaga Lokað
Rauðarárstígur 12 - 14
sími 551-0400
www.myndlist.is
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist.
Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval,
Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B.
Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs
Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal
og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband
í síma 551-0400
Erum að taka á móti verkum
á næsta listmunauppboð
Við leitum að
listavErkum
S
agan um Mógli sást síðast
í bíó árið 1994 sem leikin
mynd, og þá án talandi dýra.
Ástsælasta útgáfan af þess-
um sögum Kiplings hlýtur
þó að vera Disney-teiknimyndin frá
1967. Hér er millivegurinn farinn,
Mógli er mennskur leikari en tölvu-
gerðu dýrin tala og syngja.
Það er vissulega gaman að rifja
upp kynnin við Balú, Bakíra og alla
hina, og allt gerist nokkurn veginn
eins og maður á von á. Bæði dýrin og
strákurinn tala eins og Bandaríkja-
menn nútímans frekar en Indverj-
ar á 19. öld, en mögulega hefði farið
illa að láta Mógli hljóma eins og Apu
í Simpsons. Umhverfið er hið raun-
verulegasta og því eru söng atriði
dýranna dálítið eins og út úr kú.
Og Mógli sjálfur er hér barn og ekki
unglingur, sem gerir hann óþarflega
úrræðagóðan en býður um leið upp
á nýjan endi. Slagsmálatriðin eru
fulllöng fyrir mynd sem þessa, en
maður bíður eftir hverju kunnug-
legu atriðinu og hefur ágætlega
gaman af. Áhugaverðasta breytingin
er gerð á King Louie, órangútanapar
eru ekki til á Indlandi en til að hafa
allt sem réttast er honum breytt í út-
dauðan risapa sem minnir á Kaftein
Kurtz í Apocalypse Now.
Enn annarrar myndar um
Mógli er að vænta á næsta ári,
og manni finnst þær kannski
heldur tilgangslitlar þar sem varla
verður gerð betri útgáfa en teikni-
myndin var. En tilganginum er ef
til vill náð með því að kynna þessa
skemmtilegu sögu (sem var fyrir-
rennari Tarzan) fyrir nýrri kynslóð.
Heildarupplifunin er frekar eins og
„tribute“-tónleikar en klassísk plata.
En ágætis kvöldstund samt. n
Gamlir kunningjar
í nýjum búningum„Umhverfið er hið
raunverulegasta
og því eru söngatriði
dýranna dálítið eins og
út úr kú.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
The Jungle Book
IMDb 7,9 RottenTomatoes 95% Metacritic 77
Leikstjóri: Jon Favreu
Aðalhlutverk: Neel Sethi, Bill Murray og
Ben Kingsley
Byggt á sögu Rudyard Kipling
106 mínútur
Frumskógarbókin
Gamlir kunningjar, Mógli
og Balú, mæta á hvíta
tjaldið í nýrri útgáfu af
Jungle Book.
48 Menning