Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 48

Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Blaðsíða 48
Helgarblað 13.–16. maí 2016 komin í verslanir Sennilega hollasta rauð a kjöt sem völ er á IP-dreifing | Fornubúðir 3, Hafnarfj. | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408 Opið virka daga 10 - 18, Laugardaga 11 - 16, Sunnudaga Lokað Rauðarárstígur 12 - 14 sími 551-0400 www.myndlist.is Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur, Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar, Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving. Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400 Erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð Við leitum að listavErkum S agan um Mógli sást síðast í bíó árið 1994 sem leikin mynd, og þá án talandi dýra. Ástsælasta útgáfan af þess- um sögum Kiplings hlýtur þó að vera Disney-teiknimyndin frá 1967. Hér er millivegurinn farinn, Mógli er mennskur leikari en tölvu- gerðu dýrin tala og syngja. Það er vissulega gaman að rifja upp kynnin við Balú, Bakíra og alla hina, og allt gerist nokkurn veginn eins og maður á von á. Bæði dýrin og strákurinn tala eins og Bandaríkja- menn nútímans frekar en Indverj- ar á 19. öld, en mögulega hefði farið illa að láta Mógli hljóma eins og Apu í Simpsons. Umhverfið er hið raun- verulegasta og því eru söng atriði dýranna dálítið eins og út úr kú. Og Mógli sjálfur er hér barn og ekki unglingur, sem gerir hann óþarflega úrræðagóðan en býður um leið upp á nýjan endi. Slagsmálatriðin eru fulllöng fyrir mynd sem þessa, en maður bíður eftir hverju kunnug- legu atriðinu og hefur ágætlega gaman af. Áhugaverðasta breytingin er gerð á King Louie, órangútanapar eru ekki til á Indlandi en til að hafa allt sem réttast er honum breytt í út- dauðan risapa sem minnir á Kaftein Kurtz í Apocalypse Now. Enn annarrar myndar um Mógli er að vænta á næsta ári, og manni finnst þær kannski heldur tilgangslitlar þar sem varla verður gerð betri útgáfa en teikni- myndin var. En tilganginum er ef til vill náð með því að kynna þessa skemmtilegu sögu (sem var fyrir- rennari Tarzan) fyrir nýrri kynslóð. Heildarupplifunin er frekar eins og „tribute“-tónleikar en klassísk plata. En ágætis kvöldstund samt. n Gamlir kunningjar í nýjum búningum„Umhverfið er hið raunverulegasta og því eru söngatriði dýranna dálítið eins og út úr kú. Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir The Jungle Book IMDb 7,9 RottenTomatoes 95% Metacritic 77 Leikstjóri: Jon Favreu Aðalhlutverk: Neel Sethi, Bill Murray og Ben Kingsley Byggt á sögu Rudyard Kipling 106 mínútur Frumskógarbókin Gamlir kunningjar, Mógli og Balú, mæta á hvíta tjaldið í nýrri útgáfu af Jungle Book. 48 Menning
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.