Dagblaðið Vísir - DV - 13.05.2016, Side 52
Helgarblað 13.–16. maí 201652 Menning
Flex og beinbrot
Götudans frá Brooklyn og Manchester
Í opnunarsviðsverki Listahátíðar í Reykjavík munu átján FlexN-dansarar frá Brooklyn í New York
og Manchester á Englandi koma saman og sýna danstakta sem aldrei fyrr hafa sést á Íslandi – þeir
sveigja kroppinn, beygja, renna, stoppa og beinbrjóta.
FlexN-dansstíllinn er kraftmikill götudans sem á rætur að rekja til ýmissa ólíkra dansstíla. Hann
þróaðist meðal annars upp úr „bruk-up“ stílnum sem varð til í danssölum Jamaíku á tíunda ára-
tugnum. Í honum vinna dansara með ýmsar afkáralegar hreyfingar sem skapa nánast líkamlegar
sjónhverfingar – engu er líkara en þeir brjóti og beygi bein, fari í og úr lið, þegar þeir dansa.
Reggie Roc, sem er helsti brautryðjandi dansstefnunnar og maðurinn á bak við opnunarsýningu
Listahátíðar segir FlexN hins vegar vera meira en dansstíl. „Flexing er meira en dans, það er kúltúr,“
hefur hann sagt.
Á undanförnum árum hefur hann í auknum mæli velt fyrir sér hvernig dansinn getur verið valdeflandi
þegar hann gefur dönsurunum færi á að segja sögur, tjá tilfinningar, upplifun og aðstæður sínar.
„Við fórum fyrst að skilja fyrir alvöru hvernig hægt er að tala í gegnum dansinn eftir atvik í Flórída
árið 2012 þegar ungur svartur maður að nafni Trayvon Martin var skotinn til bana. Við sköpuðum það
sem varð í raun dans gegn ofbeldi. Við höfum ekki háværa rödd í litla hverfinu okkar Brooklyn, en við
getum átt í samskiptum og mótmælt í gegnum dansinn,“ sagði Reggie.
„Við reynum að endurspegla allt það sem við erum að hugsa um þessa stundina í sýningunni.“
Eftir að hafa sett upp sýningu með leikstjóranum Peter Sellars var Reggie Roc fenginn til að koma til
að halda dansverkstæði og sýningu með götudönsurum í Manchester á listahátíð borgarinnar. Þar
varð hópurinn sem kemur fram í Brim-húsinu til.
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
IVECO Da
ily 4x4
- tilbúinn
í hvað se
m er!
Konur djassa
Terri Lyne Carrington og sjö manna djassband í Hörpu
Lokaviðburður Listahátíðar verða tónleikar djasstrommuleikarans, söngkonunnar og
lagasmiðsins Terri Lyne Carrington í Hörpu. Carrington er einhver besti djasstrommuleikari
heims og hefur starfað með stórstjörnum á borð við Herbie Hancock, Wayne Shorter, Stan
Getz og Dianne Reeves.
Carrington hefur hlotið þrenn Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína, þau fyrstu hlaut hún
árið 2012 fyrir plötuna The Mosaic Project, en á henni léku einungis konur – sem þykir mjög
óvenjulegt í hinum karllæga heimi djasstónlistarinnar. Ári seinna var hún svo fyrsta konan til
að hljóta Grammy-verðlaunin fyrir djassplötu án söngs.
Tónleikarnir í Hörpu verða djassaðir en með R‘n‘B ívafi, því í fyrra kom út önnur platan í
Mosaic Project-röðinni, hin R‘n‘B skotna Love and Soul.
Á meðal listamanna sem leika með Carrington í Hörpu eru söngkonan Lizz Wright og Elena
Pinderhughes, ein efnilegasta djassflautuleikkona heims um þessar mundir.
Beinbrjótandi götudans og
tilraunakennd hámenning